Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Side 45

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Side 45
F.YFIRZK FRASOGN UM M OÐ U H ARÐINDIN allmörgum hér innan sveitar að því- likar voru 1 og 2 á bæ, óvíða fleiri í senn, og gjörði slíkt fólki ei alllítið tjón og mæðu. Fæstar kýr drápust úr svoddan tilfelli, heldur hjörnuðu við aftur eftir langan tíma, og sumar áttu í því fullan fjórðung árs. En fólk, í verandi ofurkýreklu, þreytti við að bjarga þeim og hagræða hvað kunni, því mesta lífsraun var í því ásigkomu. lagi að missa kýr. Fyrrtéðan vetur, 1784, hrundu og hross niður firnum, bæði harðendum veðurs og jarðbanna, hvar til og eitt hið mesta gjörði undanfarin ólyfjan af misturinu, því fyrst voru flest hross undan sumrinu 1783 um haustið svo útgjörð að holdum,einkum unghryssi, að þvílík hefðu þótt í almennu árferði að vortíma illa haldin, síðan um vet- urinn drápust þau niður, ekki einasta úti í haganum, heldur og, þeim menn reyndu til að hjúkra sem kúnum, sum með lífvænlegum holdum að finna, en gagnfirrt öllum kröftum og líka sem öll uppstirðnuð væru, komust og ei úr stað sum, þótt uppistaðið gætu nokkra hríð. En þegar út af féllu, tjáði ei að freista til bjargráða við þau framar þótt til væri reynt. Nú í haust 1785 og fram eftir önd- verðum þessum vetri örlaði enn á þeim tilfellum á sauðkindunum er að líkindum voru leifar eður menjar of- angetinnar óáranar; var það tanna eður helzt jaxlaofvöxtur, svo skepn- ur komu ei saman munninum og gátu ekki tekið fóðrið, því sá eini (eður tveir) ofvaxtarjaxl fyrirmunaði hrúkun hinna náttúrligu. Heyrða eg getið að nokkrir hefðu lagt frá þær sauðkindur sínar er þannig vurðu á sig komnar, svo sem alls óviðhjálpan- legar. En aðrir tóku það til bragðs að klípa af eður brjóta með töng ofhæð- ina af þess háttar jöxlum, og vann sú aðferð að minni vitund fulla þörf, svo þessar sauðkindur þóktu jafngóðar þar eftir. Fleira kann eg ekki um þetta efni hér fram að færa, því þótt mér hafi til eyrna borizt ýmisligar frásagnir ein- stöku manns um annarlig tilfelli á kindum sínum, nær fleiri hafa ekki upplokið sama munni um þvílíkt, svo með faraldri teljast mætti, hefi eg ekki viljað það hér tína, þar ósýnt þókti hvort svoddan hafi meir verið að kenna óáraninni, þótt þeir hafi viljað láta svo heita, heldur en misgá þeirra eður kannske fákænsku í með' höndlan skepnanna. 123

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.