Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 32

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 32
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR virðuleik; hún þarfnast ekki annarra skijríkja en gleðinnar, hennar að sjálf- sögðu skilyrðislaust. Maður gæti með engu móti hafið hana til hærri vegs, þó hann t. d. gerði hana að siðgæðismarkaði; það yrði þá brátt að gá að því, hvort hún hefði ekki einmitt verið niðurlægð, en það mundi þegar í stað verða, ef hún gerði ekki hið siðferðilega ánægjulegt, og meira að segja ánægjulegt fyrir skynfærin — en á því getur hið siðferðilega vissuleg aðeins grætt. Ekki skyldi þess einusinni vænzt af henni, að hún kenni neitt, að minnsta kosti ekk- ert nytsamlegra en það, hvernig maður hreyfir sig vellystilega, í líkamlegu eða andlegu tilliti. Leiklistin verður nefnilega helzt að vera eitthvað fyllilega óþarft, sem merkir þá vitaskuld, að við lifum fyrir það, sem er óþarft. Síður en allt annað þarfnast skemmtanir varnar. 4 Það, sem þeir gömlu að sögn Aristótelesar láta harmleiki sína gera, verð- ur því ekki kallað neinu æðra eða óæðra nafni en að skemmta fólki. Þegar maður segir, að leiklistin sé sprbttin af guðsdýrkuninni, þá segir maður aðeins, að hún hafi orðið leiklist við að yfirgefa hana; frá helgileikunum tók hún ekki heldur guðstrúna með sér, heldur skemmtunina af henni, hreint og beint. Og þessi katharsis, sem Aristóteles talar um, hreinsunin í ótta og með- aumkun eða af ótta og meðaumkun, er þvottur af því tagi, sem ekki var aðeins stofnað til á ánægjulegan hátt, heldur beinlínis í skemmtunarskyni. Með því að krefjast meira af leiklistinni eða gera henni meira á fæturna, setur maður aðeins hennar eigið markmið of lágt. 5 Jafnvel þegar maður talar um æðri og óæðri tegundir skemmtana, lætur listin sér hvergi bregða, því hún óskar eftir að fara hátt og lágt og vera látin í friði, ef hún aðeins skemmtir fólki með því. 6 Aftur á móti eru til innan leiklistarinnar veikar (einfaldar) og kraftmikl- ar (samseltar) skemmtanir. Þær síðarnefndu, sem við höfum kynni af í hin- um tiginborna leikritaskáldskap, ná fyllingunni eitthvað ámóta og hvílubrögð- in í ástinni; þær eru fjölbreyttari, frjósamari i boðskap sínum, auðugri að andstæðum og árangursríkari. 7 Og skemmtanir ólíkra tíma voru eðlilega ólíkar, alveg eftir þvi, hvernig menn lifðu þá og þá saman. Demos paðreimsins í Hellas, er harðstjórar réðu fyrir, varð að skemmta öðruvísi en lénshirð Lúðvíks fjórtánda. Leiklistin varð að koma með aðrar eftirmyndir af samlífi mannanna, ekki einungis eftir- myndir af annarskonar mannlífi, heldur og eftirmyndir annarrar tegundar. 126
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.