Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Síða 67

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Síða 67
ELías Elíasson botnlangi, hvað þá annað meira, heldur venjuleg uppsölupest með hitavellu. Og hann þverneitar að koma í kvöld. Stelpan hefir fengið smávegis heila- hristing, ekkert við hana að gera, nema láta hana liggja. Ef hún verður verri á morgun getur hann litið á hana, annars engin ástæða til. Engin meðul, hatnar af sjálfu sér. Allt í fína. Síðan er hann horfinn úr símanum og ótaland- vörp hvína í eyrum bóndans frá hlustandi húsfreyj um á línu hans. Nei, lækn- irinn er ekki að ómaka sig að þarflausu núorðið. Munur eða fyrsta árið, með- an hann var að vinna sér hylli. Aftur á móti kemur presturinn, eins og um var beðið. Hann kemur meðan fólkið situr að kvöldverði og ræðir, nær sammála, um þá leti og það kæruleysi fyrir líkamsvelferð héraðsbúa, sem héraðslækn- irinn er orðinn ber að í seinni tíð. Vinkona ekkjunnar ber ein í bætifláka fyr- ir hann, en hún ber í bætifláka fyrir alla, dauða og lifandi, svo enginn tek- ur mark á því. En — sem sagt — á meðan fólkið matast og fróar innibyrgðri gremju sinni með upprifjun á syndaregistri líkamshirðis síns, þýtur Sesar upp með áköfu gjammi og um leið bregður skærum glampa á gluggann og allir vita, að þar rennir sáluhirðirinn bifreið sinni í hlað. Presturinn, ungur, grannvaxinn, fölleitur og þunnhærður, öllum mönnum alúðlegri og alþýð- legri, vill helzt fá að setjast inn í eldhús til fólksins. En ekkjan tekur slíkt ekki í mál. í stofuna skal hann. Hún lætur kveikja á stóra lampanum yfir miðju borði og býður gestinum til sætis við innri borðsendann. Þetta er stórt, klunnalegt eikarborð og á því miðju útsaumaður dúkur undir glerskál fullri af jólakortum. Umhverfis borðið eru fjórir stólar, slitnir og harðir viðkomu, en nýlegur stofuskápur með glerrúðum fyrir efsta hólfi öðru megin fataskáps trónar við vegginn andspænis dyrunum. I stofunni er einnig sligaður legubekkur og rauðbrúnt teppi breitt yfir hann. Á hann er raðað ísaumuðum púðum, kross- saums-, augnsaums- og gobelíns-saumuðum, — sýnilega kvennaskólahann- yrðir, eins og dúkurinn á borðinu. Blóm í gluggum. Myndir á veggjum, skáp, kommóðu og litlu borði milli glugganna. Myndir af ungu hjónunum og börn- um þeirra, systkinum þeirra og ýmsu skyldfólki, að ógleymdum fyrrverandi húsbónda á þessu heimili, Elíasi Elíassyni. Mynd hans, í gylltum ramma, nýt- ur sín mæta vel á veggnum yfir miðjum stofuskápnum, eins og vera ber. Gluggar stofunnar, tveir, vita í suður, litlir gluggar, tjaldaðir gegnsæjum, rósamynstruðum blúndum. Úti fyrir þeim grúfir svart, regnþungt nóvember- myrkrið og teygir krumlur inn í hvert skot. Og þótt hlýtt sé í stofunni, er loftið þar inni þungt og ofurlítið blandið fúkka, eins og oft verður í herbergj- um, sem sjaldan er gengið um. Ef til vill er það þess vegna að hnerra setur að 25 TMM 385
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.