Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 79

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 79
Elías Elíasson úr lionuni. Og systir hans leyfir tárunum að flóa óhindruðum án tillits tii við- staddra, snökktir hátt öðru hvoru og skelfur af ekka. Móðir hennar gefur henni þyrrkingslegt hornauga annað veifið. Þvílíkt flóð! Þegar sálminum lýkur er komin verulega andleg stemmning og samhugur í þennan sundurleita hóp. Og presturinn gagntekinn háleitri köllun. Hann beygir höfuð til bænar og virðir hálfluktum augum fyrir sér fólkið, sem er að setjast tii þess að geta staðið upp og tekið við blessun hans að lokinni bæn. En um leið og það sezt fer undarlegur titringur um hið þunga og sterka eikarborð, svo að kort- in hreyfast greinilega í glerskálinni á því miðju. Allir verða þess varir, og hvorki prestinum né ekkjunni og vinkonu hennar kemur það á óvart, en tengdadóttirin fölnar, meir þó af furðu en ótta, og Elías bóndi beygir sig ósjálfrátt niður og lítur undir borðið. En það er ekkert óvenjulegt að sjá, ekkert nema fætur hinna í þeim stellingum, sem ómögulega gætu komið borði af þessari þyngd til að titra. — Látum oss biðja, byrjar presturinn hátíðlega, alveg eins og í kirkju þar sem ekkert óvenjulegt hefir skeð. Sigga snökktir hátt og lengi. Og áður en presti gefst tóm til að halda bæninni áfram, flýgur mynd Eiíasar Elíassonar niður af veggnum, skellir öðrum stjakanum um koll í fluginu, lyftir sér yfir höfuð ekkjunnar og tengda- dótturinnar og staðnæmist ekki fyrr en á kortaskálinni, en glerbrotin fljúga í allar áttir. Þar liggur hún á hvolfi og út í loftið standa ryðbrunnir snæris- endar, þar sem bandið hefir legið á naglanum. — Nú er mér nóg boðið! lirópar ekkjan heiftarlega. Og áður en nokkur getur áttað sig þrífur hún myndina heldur ómjúklega, leggur hana í kjöltu sér og sópar með sálmabók- inni sinni glerbrotunum af dúknum ofan á andlitið á Elíasi Elíassyni. Að því loknu kemur hún myndinni fyrir á borðinu fyrir framan sig og leggur sálma- bókina ofan á allt saman. Síðan gefur hún presti merki um að halda áfram, þar sem hann stendur enn í bænastellingum, þrátt fyrir áfallið. En einhvern- veginn er bænarstemmningin vikin, ýmist fyrir áköfum hjartslætti vegna þessa furðulega fyrirbæris, eða öðrum áhrifum þess. Stúlkan á legubekknum starir galopnum augum og gleymir að snökkta. — Látum oss biðja — byrjar presturinn í annað sinn, ofurlítið skjálf- raddaður. En lengra kemst hann ekki að heldur. Því á samri stundu leikur húsið á reiðiskjálfi með ferlegum gný, hurðaskellum hverjum af öðrum, þungu, þrammandi fótataki og einhverju hvæsandi ískri, sem nístir gegnum merg og bein og virðist fylgja þessu yfirþyrmandi fótataki, sem óðfluga nálg- ast stofudyrnar. Allir spretta á fætur, nema vinkona ekkjunnar. Sýnilega er henni að verða illt, en enginn sinnir því. Allra augu mæna á dyrnar í stein- 397
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.