Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Side 99
3. Kapituli (8 greinar)
Um Val Yjirordu- og Heidurslima,
þeirra Skylldur og Ret.
4. Kapituli (6 greinar)
Hvörnveg kosit skal til Embætta.
5. Kapituli (7 greinar)
Um Forsetumanns Embœtti.
6. Kapituli (15 greinar)
Um Skrifara Embœtti.
7. Kapituli (12 greinar)
Um Fehirdis Embœtti.
8. Kapituli (8 greinar)
Um Samkomur, og Ordu þaa er þar
skal halldaz.
9. Kapituli
Hvörnveg Rit skal dœma.
1.
Nu kemr Bookmaali nockr af einhvörs
aarligri Otlun Felaginu til Handa, þaa
sendiz saa þegar til Yfirsioonar millum
allra Ordidima i lokadri Tausku. Skulu
þeir lesa slik Rit med goodri Gaumgæfni,
og merkia hvad þeim syniz aabootavant.
2.
Felagit skal aaqueda i hvörri Raud og
Ordu slikir Bæklingar beraz Felagslima aa
mille, og maa einginn hiaa ser hallda Riti
nockurru leingri Tima enn aaskilit er, eptir
þess Stærd, og audrum Kringumstædum;
Fer þat sidan fraa Manni til Mans, enn
hvör faai nytt Rit at yfirskoda, þa hann
sleppir enu fyrra, unz aull eru lesin.
3.
Þaa allir hafa aa Þennan Haatt yfirfarit
Bæklingana, hvörn einn serilagi, skulu þeir
upplesnir aa Felags-Fundi, og hvör einn
Fyrstu íslenzku tímaritin I
frammbera þat er hanum syniz midr fara,
skal sidan fullkominn Urskurd aaleggia,
hvört saa skuli aa Prent gaanga edr ecki.
4.
Þoo skal i slikum Doomi framarst virda
Meiningu þeirra og Tillögur, er best eru
ad ser giörvir, og einkum idka þaa Lær-
doms List, er Ritit umhaundlar.
5.
Ef Felaginu virdiz Bæklingr einhvör nyt-
samligr at Efni oc Ordfæri, enn aalyktar
þoo at nockru Leiti midr vandadann enn
skylldi, þaa maa Felagit þat lagfæra, edr
senda Ritsmidnum siaalfum til Leidretting-
ar, fyrr enn prentadr se.
6.
Rit þau er ræk verda, skilaz aptr þeim
þau hefir samansett, nær han þess beidiz.
Þessi samþykkt eða félagslög, sem
voru að sögn Ólafs á Kóngsbergi að-
allega samin af Sveini Guðlaugssyni
Sander18 munu hafa gilt í félaginu
meðan Jón Eiríksson stýrði því, en
árið 1787 voru prentaðar „Nýiar
Samþycktir, sem þat Islenzka Lær-
dóms-lista Félag hefir á almennilegri
Samkomu þann 4da Apr. 1787 med
fleztra atqvædum giördar til umbreyt-
íngar edr aukníngar Laga sinna.“
Nýju lögin munu m. a. hafa verið
við það miðuð að gera Thodal fyrr-
verandi stiftamtmann kj örgengan sem
forseta. Einnig var tækifærið notað
til þess að gera mat og val ritgerða
nokkru einfaldari í framkvæmd, og
var kerfið samt býsna flókið eftir
sem áður.
TMM 27
417