Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 72

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 72
Timarit Máls og menningar legu háði í samtalinu milli Andrisar og Filpusar — skoðanaágreiningur þeirra tekur meðal annars til háralit- ar og augna! Hins vegar skipta meira máli þær athugasemdir sem Þórberg- ur gerir við túlkun staríshróður síns á siðgæðismati Erlends. Þannig vitn- ar hann í eftirfarandi setningu er Halldór leggur í munn vinar síns: „Það líður varla sá dagur að ég gefi ekki einhverjum drykkjuræfli vini mínum fyrir flösku“ (Skáldatími, hls. 177). Gegn þessu teflir Þórherg- ur andstæðum ummælum Erlends er hann kveðst sjálfur hafa orðið áheyr- andi að: „Maður á aldrei að láta menn hafa peninga til að drekka fyrir“. Og hann lítur svo á, „að Er- lendur hefði aldrei lagt manni þetta heilræði, ef hann hefði ekki farið nokkurnveginn eftir því sjálfur“ (Tímarit bls. 174). Yfirleitt fellir Þórbergur sig illa við að Halldór eigni Erlendi þversagnakennda af- stæðuviðmiðun — svo ekki sé sagt nihilisma — í lífsviðhorfi, meðal annars pólitísku. Slík afstaða vitnar ekki um frjálslyndi og sanna mann- úð, hún er rangsnúin mannúð. Hér hefur Halldór, samkvæmt skoðun Þórbergs, gert sér far um að breyta hinum látna vini í samherja í núver- andi stöðu hans sjálfs. Svipaða and- úð á þessari lýsingu á Erlendi lætur rithöfundurinn Gunnar Benedikts- son einnig í ljós í ritdómi sínum um Skáldatíma (Þjóðviljinn 17/111963). Einnig í þessu atriði virðist gagn- rýnin á lýsingu Erlends hafa sett spor í samtal Andrisar og Filpusar. Þeir hafa ólíkar skoðanir á viðhorfi meist- arans gagnvart víndrykkju og hjú- skaparbrotum. Kynlífssiðgæði er reyndar einnig til umræðu í grein Þórhergs, að vísu ekki fyrst og fremst í sambandi við Erlend sjálfan heidur móður hans Unu. Halldór hafði nefnilega gefið í skyn að í húsi þeirra væri augunum lokað fyrir „fylliríi og kvennafari“ (Skáldatími, bls. 169) hjá hinum mislita gestahópi. En Þór- bergur fullyrðir — jafnframt því sem hann hrósar víðsýni Unu, um- burðarlyndi og hve fjarri hún var öllum faríseahætti, „að henni var meinilla við drykkjuskap og lausung í kynferðismálum“ (bls. 148). Yfir- leitt er óneitanlega líking með annars vegar þeirri hlæjandi upphafningu yfir „öllum hégóma“ (Sjöstafakver- ið, bls. 169) sem Filpus man eftir í fari meistarans og hins vegar þeirri grundvallarreglu „að hjálpa mönnum að gera það, sem þeir vilja sjálfir“ og skilyrðislausri trú á „frelsið sem frumskilyrði fyrir mannlegu lífi“ (Skáldatími, bls. 177), sem Halldór telur sig hafa fundið í fari Erlends. Þessi hugmyndatengsl milli Jóns í Brauðhúsum og Erlends í Unuhúsi hefðu auðveldlega átt að geta mynd- azt í huga höfundar sem á ungum aldri fannst hinn roskni vinur vera „það sem hjá kaþólskum mundi vera 62
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.