Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Side 98
Tímarit Máls og menningar
Þess vegna, á sama tíma og fingur Jakobs hófu áslátt sinn og
dönsuðu líkir ballettmeyjum eftir tannhvítum hljómborðum þá pikk-
aði Nikulás af hliðstæðri leikni á stafrófslykla ritvéla, enda í stað þess
að ljúka einleikaraprófi á píanó, brautskráðist hann sem stúdent frá
Verslunarskólanum.
Og með þau réttindi sem því fylgdi, var Nikulás rétt nýbyrjaður í
námi sínu við viðskiptadeild háskólans og bjartsýnn á framtíðarhorf-
ur sínar hugði hann jafnvel á framhaldsnám, sem ekkert varð úr þegar
leiðir þeirra Nönnu lágu saman aðeins nokkrum mánuðum eftir að
Jakob var horfinn úr lífi þeirra beggja.
Það var á dansleik og Nanna, sem á þeim tíma vann fyrir sér sem
leiðbeinandi við fegrunar og tískuskóla, hélt þar fyrirlestra um
fatasnið, reifaði kenningar um borðbúnað og kenndi ungum stúlkum
kvenlega framkomu, auk þess sem hún í aukavinnu skipulagði tísku-
sýningar er síðar einsog gefur að skilja reyndust henni notadrjúg
hjálparhella við skreytingar á sköllóttu verslunarbrúðunni, já hún var
enn hnuggin og þannig séð í tilfinningalegri rúst þegar hún í þoku-
móðu danshússins sá Nikulás birtast einsog endurborinn draum,
elskhuga sinn upprisinn, og hún mundi alltaf eftir feimninni, axla-
yppingunum, vandræðalega samtalinu og titringnum í fingrunum
áður en þau liðu útá gólfið, inní draumkennda leiðslu danssporanna
og þaðan inní huliðshjúp veraldar sem full af gleymsku og sæluríkum
andvörpum skildi ekki aðeins eftir í brjóstum þeirra bitra sektar-
kennd morguninn eftir heldur líka holdleg frumdrög að Katrínu sem
nú löngu seinna í frekar stórri kjallaraíbúð innarlega í miðju hverfinu
liggur í stofusófa einsog hún hugsi þetta eða hana sé byrjað að
dreyma.
VIII
Það er hljóðlátur þytur.
Það er hrollkaldur gustur.
Það er malbik sem rennur einsog svartur draumur.
Það eru hvítir blettir í flögnuðum línum.
Og stjörnur.
Það eru stjörnur, himintungl sem með ljósbláum sjáöldrum horfa
útí geiminn.
360