Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Blaðsíða 129

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Blaðsíða 129
uppsöfnun kjarnorkuvopna. Hann átel- ur hana fyrir að taka ekki afstöðu í heimsmálunum, en hún vill halda sig fyrir utan þá umræðu þar sem hún getur engin áhrif haft á framvindu mála. Og um leið tekur hún þá afstöðu „að verða ekki brjáluð." (98) Hér er enn skírskotað til raunveru- leikans og komið inn á vanmátt einstakl- ingsins til að hafa áhrif á ástandið í heiminum. Móðir Konráðs lætur sér nægja að reyna að stjórna sínu nánasta umhverfi. Sýnt er hve djúp áhrif óvissa í friðar- málum heims hefur á börn og unglinga. Pú veist ekkert hvernig það er að alast upp í skugga sprengjunnar. (95) Móðir hans fullyrðir að hún hafi kynnst áþekkum ótta í æsku: En svo lærðum við að lifa með hræðslunni. En hún er alltaf þarna undir niðri. (124) Hér bendir Auður á að hver kynslóð alist upp við ógnir af einhverju tagi sem hún síðan venst. Unglingsárin reynast mörgum erfitt tímabil. Ymist er litið á unglinginn sem barn eða fullorðinn, allt eftir því hvernig vindurinn blæs. Unglingar hafa enga fasta stöðu í þjóðfélaginu. Sjálfsímynd þeirra er á reiki. Þeir reyna að losna undan áhrifavaldi foreldra en jafnframt hafa þeir mikla þörf fyrir þá. Konráð gerir tilraunir til þess að brjótast undan pilsfaldi móður sinnar með því m. a. að kalla hana ýmsum öðr- um nöfnum en mömmu, svo sem kell- ingu (17), konuna sem ég bý hjá (20) eða blýantssalann (19). Umsagnir um bakur Uppreisn Konráðs gegn umhverfi sínu er dæmigerð uppreisn unglings gegn ríkjandi hefðum. Hann er óvenju gagnrýninn og erfiður í umgengni. Líkt og flestir unglingar hlustar hann á músik helst ekki undir 100 desibilum til þess að veita sveiflukenndum tilfinningum út- rás. Móðir hans gerir sér fulla grein fyrir því að vandi hans er „Hormónastríð" (28). Það stríð vinnur enginn nema tím- inn. í sögulok er að baki stormasamt skeið og komið á jafnvægi á heimilinu. Kon- ráði hefur lærst að sýna móður sinni til- litssemi og í fyrsta skipti í tvö ár kallar hann móður sína mömmu. Breytingin sem verður á Konráði fer ekki fram hjá móður hans. Þér hefur farið mikið fram . .. Þú ert að læra að svara til baka í stað þess að öskra bara í rökþroti. Það er mikið þroskamerki. (122) í sögunni leggur móðirin snjalla gátu fyrir Konráð sem hann glímir við og skapar tvíþætta spennu í frásögnina: Lesandanum leikur forvitni á því að komast að lausn gátunnar og jafnframt hvort Konráði tekst að leysa hana. Konráð spyrst fyrir hvarvetna en án árangurs. Það er ekki fyrr en í sögulok sem hann leitar á náðir móður sinnar og hún upplýsir málið. Með þessu er Auð- ur að hvetja unglinga til þess að afla sér þekkingar um samfélagið, gefast ekki upp við fyrsta mótbyr, hætta ekki fyrr en þau fá viðunandi svör. Ytri tími sögunnar er samtíminn. Frá- sögnin hefst fyrri hluta vetrar og endar á aðfangadagskvöldi. Þetta er þroskasaga unglings, sögð frá sjónarhóli hans. Mál- 391
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.