Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Blaðsíða 119
Tímarit Máls og menningar Réttlœti og trúarsannindi
útvíkkun á sannleikshugtakinu miðað við „venjuleg sannindi" (þótt hún
komi þeim heilmikið við), en sú útvíkkun er nauðsynleg ef sannleikurinn á
að koma að einhverju gagni í siðferðilegri umræðu. Og sú siðferðilega krafa
að sannleikurinn, „og helzt af öllu allur sannleikurinn"19 um fólk fái að
koma í ljós er „kerygmatísk“ en ekki „vísindaleg“ í þeim skilningi sem
Gunnar Kristjánsson notar þessi hugtök.20 Þar með er ekki sagt að hún eigi
ekki við rök að styðjast, heldur að hún kalli okkur til ákvördunar um líf
okkar og breytni. Kristnir menn lifa í þeirri von, að réttlætið nái fram að
ganga á „efsta degi“. Þorsteinn vitnar í nafna sinn Erlingsson:
Eg trúi því sannleiki, að sigurinn þinn
að síðustu vegina jafni;
og þér vinn ég, konúngur, það sem ég vinn,
og því stíg ég hiklaus og vonglaður inn
í frelsandi framtíðar nafni.21
Sannleikskrafa Þorsteins er því ekki bara „kerygmatísk“; hún er „eskató-
lógísk“ að auki.22 Sannleikurinn er hans Guð, því á honum byggir hann von
sína, traust og bjartsýni. En það er ekki kristin trú, nema „konúngurinn“ sé
Kristur.
En sannleikskrafan er vandmeðfarin. Gregers í Villiöndinni taldi sig hafa
höndlað sannleikann. Hann viðurkenndi ekki takmarkanir sínar, reiddi sig á
fullkomnun annarra og settist í dómarasæti yfir þeim með „hugsjónina" á
lofti. Sannleikurinn um faðerni Hedvigar skiptir minnstu máli um það hver
hún er, en það eru engu að síður einföld og óbrotin sannindi. Hættan felst í
því að menn gerist þrælar slíkra sanninda á kostnað þjónustunnar við lífið
og náungann. Sannleikurinn kann að virðast einfaldur þegar horft er fram
veginn til jafnaðar og bræðralags, en í margbreytileik mannlegra aðstæðna
liggur hann ekki alltaf í augum uppi. Þetta eru þau almennu sannindi sem
leikrit Ibsens leiðir í ljós. En ef til vill er það Jóhannes úr Kötlum sem sýnir
okkur best fram á mikilvægi trúarinnar á að draumur okkar um sannleika
og réttlæti muni rætast:
Fagra Blekking
ofsótta drottning Hillingalandsins:
hvernig get ég lifað án þín?
Ef ég hlýðnast kröfu Yfirdómarans
og svelti þig til bana
í dýflissu staðreyndanna
381