Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1987, Síða 69

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1987, Síða 69
Samvitundin og Ijósvakinn löndum Evrópu, og jafnvel var leitast við að vekja verkalýðinn til meðvit- undar með blaðaskrifum. Einn hófsamur athugandi kemst svo að orði að fréttablaðið hafi „frá upphafi verið raunverulegur eða hugsanlegur fleinn í holdi hins ríkjandi valds“ (McQuail, 1983, bls. 20). Þegar leið á 19. öldina urðu blöðin víða veldi í sjálfum sér, jafnvel svo að þegar árið 1829 komst Carlyle svo að orði að ritstjórar dagblaðanna væru hin raunverulega Eng- landskirkja um þær mundir. Slík framsýni, sem vitnast 19 árum áður en Marx og Engels birta þann boðskap sinn að trúarbrögðin séu ópíum fólksins, mætti kenna þeim auðmýkt, sem þykjast frumlegir og segja að fjölmiðlarnir séu nú ópíum fólksins. Anthony Smith (1979b) telur sjónvarpið á okkar dögum vera tæki sem komi í stað fornra valdafesta og móti opinbert líf í eina heild. Smith líkir sjónvarpinu við neðri deild breska þingsins á 18. öld og segir það þenja sig yfir önnur festi og vera í senn loftvog og áhrifavald stjórnmálanna. Það er hæfileg goðgá að mínu mati að tilnefna máttugustu fjölmiðlana sem arftaka hinnar sameinandi þjóðkirkju, ekki síður á Islandi á ofanverðri 20. öld en á Englandi á fyrri hluta 19. aldar. Spurningin er hins vegar hvort þessi nýja kirkja verður áfram máttug og sterk eða hvort hún sundrast í sér- trúarhópa og glatar þar með mætti sínum og áhrifum. Islensk þjóðfrelsisöfl nýttu sér prentlistina snemma, þótt ekki væri stutt á milli útgáfudaga í jafnfámennu og strjálbýlu landi. Oslitin ganga dagblaða hér á landi hófst ekki fyrr en á öðrum áratug þessarar aldar, en áhrif blaðanna á hugarfar almennings og úrslit mála virðast hafa verið umtalsverð fyrir þann tíma. Þannig telur Heimir Þorleifsson að andstaða ísafoldar og Þjóðólfs við Uppkastið 1908 hafi haft „geysimikil áhrif“. Sögu íslenskra dagblaða svipar til sögu dagblaða á öðrum Norðurlöndum sem er hins vegar í veigamiklum atriðum frábrugðin blaðsögu annarra Evrópulanda. Dæmi- gert dagblað á Bretlandi eða meginlandi Evrópu er í eigu eins aðila, jafnvel einstaklings, sem kann að hafa hugsjón og vilja halda fram ákveðnum málstað, en verður jafnframt að tryggja efnahagslega velferð fyrirtækis síns. Blað hans verður því að njóta víðtæks trausts og vera hafið yfir grunsemdir um að ganga erinda þröngra hagsmunahópa. Dæmigert norrænt (þ. m. t. íslenskt) dagblað er í höndum hreyfingar sem nýtur stuðnings minnihluta þjóðarinnar og lítur fyrst og fremst á blaðið sem tæki til að auka áhrif sín og efla málstað sem hreyfingin berst fyrir. Islendingar virðast hafa dregið sínar ályktanir af þessum kringumstæðum. I víðtækri könnun sem Hagvangur hf gekkst fyrir meðal almennings árið 1984 var m. a. spurt um traust manna á ýmsum helstu máttarstoðum þjóðfélagsins. I ljós kom að dagblöðin nutu minna trausts en nokkur annar þeirra 9 aðila sem um var spurt. Hinir aðilarnir voru: Kirkjan, mennta- 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.