Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1987, Qupperneq 84

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1987, Qupperneq 84
Tímarit Máls og menningar klifra upp í turninn þótt hún skylfi á beinunum af ótta við nauðgun, en sjálfur myndi hann ekki þora þangað upp þótt hann væri bara hræddur um að stolið yrði úr vösum hans eða fínustu tilfinningar hans særðar. Það var engin lyfta og enginn dyravörður eða inngangseyrir: það kostaði ekkert að fara inn. Hún varð fyrri til að ganga út úr sólskininu og inn í skuggalegt anddyrið: þar var aðeins breiður stígur sem lá upp á við, engar tröppur. „Komdu,“ sagði hún. „Þetta er óraleið," sagði hann. „Og ábyggilega ólykt þarna uppi.“ „Mér er sama um lyktina," sagði hún. „Ef þú bíður eftir mér hérna niðri, þá get ég farið upp ein. Mig langar til að sjá hvernig þetta lítur út.“ „Það er ekkert að sjá,“ sagði hann en samt lagði hann af stað á eftir henni því að hann gat með engu móti látið hana fara upp eina, enda var eitthvað ómótstæðilegt við þá hugmynd að fara upp fyrst þau voru komin svona langt. Hann lagði af stað upp í móti, altekinn þeirri auðmýkjandi kennd að hann væri að leggja sig í hættu. Þau voru búin að fara þó nokkra hringi og komin nokkra metra frá jörðu áður en hann gerði sér ljóst með nokkrum kvíða að ekkert af hinu fólkinu á leið upp og niður, var ferðamenn: þetta voru eintómir arabar og hvergi var leiðsögubækling að sjá. Þetta var enn verra en hann hafði óttast. Hann tók fastar um vegabréfið og ferðatékkana í vasa sínum og velti fyrir sér hvort hann ætti að vekja athygli Klói á þessari staðreynd en hún var nokkrum metrum á undan honum, gekk hægt og festulega og virtist ekki finna fyrir mæðinni sem angraði hann. Hann neyddist til að halda áfram því að hann vildi ekki vekja á sér athygli með því að kalla til hennar á erlendu tungumáli. Enginn af aröbunum virtist veita honum neina sérstaka athygli, það máttu þeir eiga, og enginn hafði svo mikið sem boðið honum póstkort, og hann slakaði ögn á eftir því sem áreynslan við að ganga upp í móti leyfði og beindi athyglinni að útsýninu sem varð æ áhugaverðara og rifaði í gegnum raufarnar á veggjunum. Hann fór jafnvel að gera sér vonir um að eitthvað yrði að sjá ofan af turninum. Nóg var af fólkinu sem var einlægt að koma og fara og eitthvert erindi hlaut það að eiga: allir virtust ánægðir og í hátíðaskapi. Smám saman fór hann að verða feginn því að þarna hafði ekki verið nein 72
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.