Morgunblaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. D E S E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 291. tölublað 102. árgangur
LÖGIN EINS OG
FERSKUR BLÆR
INN Í SÁLINA
ÓTTALAUSIR GAUL-
VERJAR OG
VÍKINGAR
FYRSTA SÝNING
LADDA Í HEIMA-
BÆNUM
TEIKNIMYNDASÖGUR 39 EKTA GAFLARI 10HRÖNN SVANSDÓTTIR 41
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Takist Landsbankanum ekki að
sækja sér lánsfé á erlendum mörk-
uðum fyrir 2018 mun bankinn aðeins
þurfa að greiða um 66 milljarða í af-
borganir af erlendum skuldabréfum
við gamla Landsbankann (LBI) á ár-
unum 2015 til 2021.
Þetta kemur fram í kynningu LBI
til kröfuhafa á samkomulaginu sem
gert var við Landsbankann í síðustu
viku og Morgunblaðið hefur undir
höndum. Samkvæmt þeim breyt-
ingum sem voru gerðar á skilmálum
bréfanna er nú til staðar heimild
sem veitir Landsbankanum rétt á að
fresta greiðslu hluta þeirra afborg-
ana – um 39 milljarða – sem eru að
óbreyttu á gjalddaga 2018 og 2020.
Bankinn getur nýtt sér þá heimild ef
lánshæfiseinkunn hans í erlendri
mynt er enn í ruslflokki í júní 2018.
Markmiðið var að fá LBI til að
taka að hluta þátt í endurfjármögn-
unaráhættu Landsbankans eftir
2018. Þann 21. nóvember sl. kom
Seðlabankinn þeim skilaboðum til
LBI að slík breyting á skuldabréf-
unum væri eitt af skilyrðum þess að
hægt yrði að veita undanþágu frá
höftum vegna greiðslu 400 milljarða
til forgangskröfuhafa. »19
Geti frestað 40 milljarða greiðslu
Ef Landsbankanum tekst ekki að sækja sér erlent lánsfé
má hann fresta afborgunum á gjalddaga 2018 og 2020
Morgunblaðið/Golli
Landsbankinn Skuldin við LBI
stendur nú í 196 milljörðum.
Það var mikið stuð og stemning á jólahátíð fatlaðs fólks á Hilton Reykjavik
Nordica í gær. Fyrir hátíðinni stóð André Bachmann og var þetta í 32.
skiptið sem hún var haldin. Steig fjöldinn allur af listamönnum á svið og
voru forsetahjónin heiðursgestir hátíðarinnar í ár.
Í hátíðarskapi á jólahátíð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjör og gleði á Hilton Reykjavík Nordica í gær
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Byggingafulltrúanum í Reykjavík
hafa það sem af er ári borist tæplega
40 fyrirspurnir um leyfi til að breyta
húsnæði þannig að það henti undir
rekstur gististaða. Fyrirspurnirnar
varða allt frá smæstu gististöðum og
upp í 93 herbergja hótel.
Fjöldi fyrirhugaðra gistirúma er
aðeins gefinn upp í hluta fyrirspurna
og er uppgefinn fjöldi ríflega 700.
Um 500 þessara gistirúma eru á
þremur stöðum og eru framkvæmdir
þar ýmist hafnar eða að hefjast.
Óvíst er hvort sum smærri verkefnin
verða að veruleika en sjö af alls 37
fyrirspurnum var synjað. Aðeins 38
af áðurnefndum 700 gistirúmum
tengjast verkefnum sem var synjað.
Til samanburðar leiðir úttekt
Morgunblaðsins í ljós að minnst um
1.650 hótelherbergi eru áformuð í
Reykjavík á árunum 2014 til 2017.
Séu tveir í herbergi eru alls 3.300
gistirúm í þessum herbergjum. Að
meðtöldum þeim 660 gistirúmum
sem hafa verið samþykkt, eða bíða
afgreiðslu, eru því tæplega fjögur
þúsund gistirúm í bígerð í Reykjavík
2014-2017. Eru þá ótaldar umsóknir
sem verða lagðar fram á næstu
þremur árum og hugsanlega fleiri
óþekkt verkefni í hótelgeiranum.
Þúsundir gistirúma í pípunum
Það sýnist því varlegt að áætla að
gistirúmum muni fjölga um fjögur
þúsund í Reykjavík 2014 til 2017. Til
að setja þá tölu í samhengi áætlar
Hagstofan að gistirúm á höfuð-
borgarsvæðinu hafi verið um 10.600 í
júlí í fyrrasumar, þegar háannatími
var í ferðaþjónustu. Tölur fyrir
Reykjavík voru ekki til reiðu.
Mikill þorri gistirúma á höfuð-
borgarsvæðinu er í Reykjavík og má
því bera framboðið saman við áform
um uppbyggingu hótela í borginni og
draga af því ályktanir. Fjölgun í
Reykjavík einni bendir til að gisti-
rúmum á höfuðborgarsvæðinu fjölgi
í 15 þús. næstu 3 ár, eða um tæp 40%.
MMikil ásókn ... »12
Margir vilja
spreyta sig á
hótelrekstri
Fjöldi aðila vill opna hótel í Reykjavík
Fjögur þúsund gistirúm í pípunum
Þó netnotkun
Íslendinga sé
ein sú mesta
meðal aðild-
arþjóða OECD
og níu af hverj-
um tíu fari á
netið daglega er
Ísland í 16. sæti
þegar kemur að
kaupum á vöru og þjónustu yfir
netið, miðað við upplýsingar um
notkunina á seinasta ári. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu OECD
um netnotkun íbúa aðildarland-
anna. Þar segir að áhyggjur af
því að öryggi sé ekki nægilega
tryggt í netviðskiptum séu mjög
útbreiddar í löndum sem sam-
anburðurinn náði til en eftir sem
áður hefur aðeins um þriðjungur
allra netnotenda í löndum OECD
einhvern tíma breytt öryggisstill-
ingum á netvafra sínum. »22
Í 16. sæti á lista yfir
netverslun þjóða
Jóhann Jó-
hannsson tón-
skáld hefur verið
tilnefndur til
Golden Globe-
verðlaunanna
2015. Tilnefn-
inguna hlýtur
hann sem höf-
undur tónlistar í
kvikmyndinni
The Theory of
Everything sem fjallar um lífshlaup
eðlisfræðingsins Stephen Hawking
og eiginkonu hans Jane. „Fókusinn
í tónlistinni er mjög mikið á tilfinn-
ingar,“ segir Jóhann en söguþráð-
urinn fjallar meira um manneskj-
una en um vísindamanninn
Hawking.
Aðrir sem tilnefndir eru í sama
flokki eru óskarsverðlaunahafinn
Hanz Zimmer fyrir tónlist við kvik-
myndina Interstellar, Alesandre
Deplat fyrir tónlistina í Imitation
Game, Trent Reznor og Atticus
Ross fyrir Gone Girl og Antonio
Sanchez fyrir Birdman. »41
Jóhann fékk Golden
Globe tilnefningu
Jóhann
Jóhannsson
„Það er gaman að sjá íslenska
hugsmíði með íslenskri tónlist, ís-
lenskum teikningum og íslenskri
forritun ná þessum árangri,“ segir
Bryndís Guðmundsdóttir talmeina-
fræðingur en smáforrit sem þróað
var í kringum kennsluefni og að-
ferðafræði hennar hefur rokið upp
bandaríska listann á App Store yfir
vinsælustu smáforritin sem hægt er
að hlaða niður frítt.
Forritið sem um ræðir er ætlað
til talþjálfunar og lestrarkennslu
og kallast „Kids Sound Lab Pro“.
Það var í 40. sæti lista App Store
fyrr í vikunni. »4
Íslenskt „app“ í 40. sæti á lista yfir vin-
sælustu ókeypis smáforritin á App Store
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gjöf sem lifnar við
dagar til jóla
12
Giljagaur kemur í kvöld
www.jolamjolk.is