Morgunblaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Golli
Heimabærinn Þrátt fyrir að vera ekta Gaflari, fæddur í heimahúsi á Nönnustígnum, hefur Laddi aldrei verið með
sýningu í Hafnarfirði. Í kvöld verður hann með sýningu í Bæjarbíói og Eiríkur Fjalar stígur á svið á sunnudaginn.
þangað til það kom ný mynd en það
var ekki skipt um myndir mjög oft,“
segir Laddi sem minnist þess að hafa
hlaupið á milli kvikmyndahúsanna
tveggja á staðnum. „Við fórum líka í
það sem við kölluðum Árnabíó eða
Hafnarfjarðarbíó. Þetta passaði
nefnilega svo vel á sunnudögum því
þá vorum við á drengjafundi í KFUM
á Hverfisgötu og hann var búinn þeg-
ar klukkuna vantaði korter í þrjú og
þá hljóp maður beint niður eftir, eins
og maður sagði: Beint á húninn. Sá
sem var fyrstur á húninn var nefni-
lega fyrstur inn.“ Það var eins gott að
vera á meðal þeirra fyrstu því það
var ekki bara verið að horfa á bíó-
myndir í Bæjarbíói. „Maður var með
fullt af Jesúmyndum með sér því svo
var verið að skiptast á hasarblöðum
og Andrési Önd. Þegar maður var fá-
tækur og átti kannski ekki nein blöð
til að skipta þá notaði maður Jesú-
myndirnar. Þú gast kannski fengið
eitt gamalt Andrésblað fyrir tuttugu
Jesúmyndir. Það þurfti svolítið
margar Jesúmyndir því þær voru
ekki alveg jafn verðmætar og blöð-
in,“ segir Laddi. Þetta var gert áður
en myndin byrjaði og allir græddu
eitthvað á skiptunum, eða fengu í það
minnsta eitthvað nýtt í safnið.
Frostgestirnir jólabarnsins
Það verða kannski ekki Jesú-
myndir í Bæjarbíói núna en það verð-
ur fjör, svo mikið er víst. Á sýningu
kvöldsins verða ýmsar þjóðþekktar
persónur úr smiðju Ladda en á
sunnudaginn klukkan 17 verða á
sama stað jólatónleikar fyrir alla fjöl-
skylduna. „Þá verður Eiríkur Fjalar
með sína jólatónleika. Hann er svo
mikið jólabarn þannig að hann vildi
vera með eitthvað svona eins og
Laddi vinur hans og verður með stór-
skemmtun í Bæjarbíói líka. Hann
vildi gera svona eins og Björgvin
Halldórsson, sem er nú Hafnfirð-
ingur líka og er með Jólagesti Björg-
vins. En hann vildi ekki láta þetta
heita Jólagestir Eiríks Fjalars því
það er of líkt, þannig að jóla-
tónleikarnir heita Frostgestir Eiríks
Fjalars,“ segir Gaflarinn Þórhallur
Sigurðsson. Fleiri Hafnfirðingar
verða gestir Eiríks Fjalars, þar á
meðal þeir Bjössi Bolla og Steinn Ár-
mann Magnússon. Miða á viðburðina
má kaupa á vefnum www.midi.is.
Frostgestir Til aðgreiningar frá jólatónleikum Frostrósa og Jólagesta
Björgvins nefnir Eiríkur Fjalar sína jólatónleika einfaldlega Frostgesti.
ekki þátt í neinu í skólanum. Ef það
var til dæmis skólaskemmtun eða
eitthvað annað þá þorði ég aldrei að
mæta,“ segir hann en vinir hans tveir
sem bjuggu í sömu götu voru ekki
heldur virkir í félagslífinu og fóru
þeir þrír gjarnan í leiðangra út í
hraun meðan skólafélagarnir mættu
á skemmtanirnar.
Þó að skólagangan hafi verið
hálfgerð þrautaganga segir Laddi að
það hafi verið dásamlegt að alast upp
í Hafnarfirðinum. Hann ber enn
sterkar tilfinningar til bæjarins og er
þar tíður gestur. Sérstaklega nefnir
hann Bæjarbíó en sýning hans í
kvöld verður einmitt haldin þar í
kvöld sem og jólatónleikar Eiríks
Fjalars. „Við vorum alltaf í Bæjarbíói
sem litlir strákar. Maður sá kannski
sömu myndina fjórum, fimm sinnum,
Morgunblaðið/Árni Sæberg
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014
www.volkswagen.is
Volkswagen fólksbílar
Einstakt
tækifæri
Nú nálgast jólin óðfluga og Volkswagen
er í sérstöku jólastuði. Í tilefni jólanna eru
sýningar- og reynsluakstursbílar
á frábærum kjörum í desember.
Kynntu þér málið hjá
sölufulltrúum okkar
á Laugavegi 170.
Takmarkað magn
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.isTil afgreiðslu strax
Á morgun laugardag heldur þýski organ-
istinn Christian Schmitt tónleika í Akur-
eyrarkirkju kl. 17. Schmitt hefur leikið
með öllum helstu sinfóníuhljómsveitum
Evrópu og er nú sérstakur orgelráðgjafi
Fílharmóníusveitar Berlínar. Christian er
einn eftirsóttasti konsertorganisti
heimsins í dag og árið 2013 hlaut hann
hin eftirsóttu Echo-verðlaun sem eru ein
æðstu verðlaun tónlistarmanna í Þýska-
landi. Hann hefur borið sigur úr býtum í
meira en tíu alþjóðlegum orgel- og tón-
listarkeppnum. Efnisskráin á morgun er
fjölbreytt, m.a. verk eftir Johann Sebast-
ian Bach, Olivier Messiaen, Carl Philipp
Emanuel Bach og Charles Frost.
Ókeypis er á tónleikana.
Christian Schmitt
Orgelsnilli Christian Schmitt.
Einn eftirsóttasti konsert-
organisti heims spilar á Akureyri
Því miður hef ég aldrei upp-lifað það að vera kvenmað-ur. Ég hef hins vegar sembetur fer aldrei upplifað
það að vera kvenmaður á íslensku
næturlífsbrölti. Því er statt og stöð-
ugt haldið fram að kynferðislegt
áreiti eigi sér ekki stað á skemmti-
stöðum landsins og að virðing sé ætíð
borin fyrir náunganum. Það er firra.
Allar þær stelpur sem ég þekki hafa
verið áreittar í miðbænum, í þær klip-
ið, yfir þær slefað, á þær gelt ósæmi-
legum orðum og þær niðurlægðar á
einn eða annan hátt í þeim eina til-
gangi að lítilmennskugreyjum finnist
þeir vera með stórt typpi.
Ég hreinlega veit ekki hvort ég á
að finna til með þeim aumkunarverðu
hræjum sem ráfa þreifandi og þukl-
andi um borgina eða hvort ég á að
fyrirlíta þau. Vita hræin betur? Færa
má rök fyrir því að greyin séu fórnar-
lömb ráðandi dægurmenningar sem
hefur stimplað inn í þau frá unga
aldri að slík hegðun sé í lagi.
Nauðgunarpoppið glymur í eyr-
um grunnskólabarna og hold-
gervingar ofbeldis dýrkaðir.
Allt frá klassískustu kvikmynd-
um yfir í saklausasta barnaefni
eru kvenkyns persónur hlut-
gerðar sem dægradvöl
karlmanna; persónur
sem eiga sér þann eina
tilgang að veita hinum
sterka karlmanni
hugarfró og líkamlega
nautn þegar hann þarf
á því að halda. Á þeirri
upplýsingaöld sem nú
ríkir er þó varla hægt
að nota slíkt sem afsök-
un. Það er ekki eins og við
búum enn í torfbæjum og eina upp-
lýsingin sem við komumst í sé útslitið
eintak af hinni heilögu Ritningu.
Upplýsingin er handan við hornið og
sú ábyrgð hlýtur að liggja að stórum
hluta hjá hverjum og einum að upp-
fræða sjálfan sig.
Nú gelta nokkrir hundar sem hafa
sig hvað mest í frammi í niðurlæging-
unni að karlmenn verði nú líka fyrir
kynferðislegu áreiti í miðbænum – og
er það hárrétt og miður. Er það þó
einhver afsökun? Ef fertug kona
grípur í liminn á mér á dansgólfinu,
gefur það mér þá leyfi til að fingra
næstu stelpu á dansgólfinu gegn
vilja hennar? Nei. Þeir aumingjar
sem finnst nauðsynlegt að upp-
hefja eigið sjálf og eigin kynímynd
með því að áreita aðra kynferð-
islega eru því óvinsamlegast beðn-
ir um að halda sig heima hjá
sér þar til heimska þeirra
lekur úr þeim samhliða
slefinu og geltinu. Því
miður er ég hræddur um
að sá leki verði ekki fyrr
en sú nauðgunarmenn-
ing og aumingjadýrkun
sem viðhefst hér á landi
líður undir lok.
»Ef fertug kona grípur íliminn á mér á dans-
gólfinu, gefur það mér þá
leyfi til að fingra næstu
stelpu á dansgólfinu gegn
vilja hennar? Nei.
HeimurDavíðs Más
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is