Morgunblaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Takist Landsbankanum ekki að end-
urfjármagna hluta af erlendum
skuldabréfum sínum við gamla
Landsbankann (LBI) fyrir árið 2018
hefur hann heimild til að fresta
greiðslu að fjárhæð tæplega 40 millj-
arðar króna sem yrðu að óbreyttu á
gjalddaga 2018 og 2020. Þetta var á
meðal þeirra breytinga sem voru
gerðar á fyrirliggjandi samkomulagi
Landsbankans og LBI sl. maí um að
lengja í afborgunarferli erlendra
skulda bankans þannig að loka-
greiðsla verði 2026 í stað 2018. Með
þeim breytingum var LBI fengið til
að taka þátt í endurfjármögnunar-
áhættu Landsbankans eftir 2018.
Í kynningu slitastjórnar LBI til
kröfuhafa á samkomulaginu við
Landsbankann, sem Morgunblaðið
hefur undir höndum, kemur fram að
þetta hafi verið eitt af þeim atriðum
sem Landsbankinn fór fram á í bréfi
sem hann sendi til LBI 17. nóvem-
ber síðastliðinn. Fjórum dögum síð-
ar kom Seðlabanki Íslands þeim
skilaboðum á framfæri við slit-
astjórn LBI að slík breyting á skil-
málum skuldabréfanna væri jafn-
framt eitt af skilyrðum þess að hægt
yrði að veita undanþágu vegna
greiðslu 400 milljarða í erlendum
gjaldeyri til forgangskröfuhafa LBI.
Útgreiðsla fyrir áramót
Seðlabankinn gerði slitastjórninni
einnig skýra grein fyrir því að sú
krafa LBI að allar greiðslur af
skuldabréfum Landsbankans yrðu
undanþegnar fjármagnshöftum –
um 230 milljarðar króna auk vaxta-
greiðslna – yrði ekki samþykkt. Að-
eins væri hægt að veita undanþágu
til að inna af hendi hlutagreiðslur til
forgangskröfuhafa að fjárhæð 400
milljarðar. Eftir að Seðlabankinn og
fjármálaráðherra veittu LBI þá
undanþágu í síðustu viku í tengslum
við nýtt samkomulag sem náðist
milli Landsbankans og LBI hafa
forgangskröfuhafar slitabúsins nú
fengið greidda um 1.116 milljarða,
eða sem nemur 85% af höfuðstól
krafna sinna. Ráðgert er að LBI inni
af hendi hlutagreiðsluna til for-
gangskröfuhafa fyrir áramót.
Samkvæmt þeim breytingum sem
gerðar voru á samkomulaginu milli
Landsbankans og LBI er nú fyrir
hendi heimild sem veitir Lands-
bankanum rétt við tilteknar aðstæð-
ur til að fresta greiðslu hluta þeirra
afborgana – um 39 milljarða króna –
sem eru að óbreyttu á gjalddaga
2018 og 2020. Landsbankinn getur
þó aðeins nýtt sér þá heimild ef láns-
hæfiseinkunn bankans til lengri
tíma í erlendri mynt er lægri en
BBB- hjá Standard & Poor’s hinn
30. júní árið 2018. Markmiðið með
slíkri heimild er að treysta fjárhags-
stöðu Landsbankans í erlendri mynt
ef bankanum tekst ekki að sækja sér
lánsfé á erlendum mörkuðum til að
endurfjármagna skuldabréfin við
LBI. Veginn meðallíftími skulda-
bréfanna mun hækka úr 6,6 árum í
7,6 ár verði heimildin nýtt af Lands-
bankanum.
Vaxtaálagið hækkar eftir 2018
Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans, hefur sagt að þær
breytingar sem hafi náðst á skilmál-
um skuldabréfanna muni auðvelda
bankanum alþjóðlega fjármögnun.
Samtímis því að gengið var frá sam-
komulaginu greiddi bankinn jafn-
virði um 30 milljarða inn á skuld sína
við LBI. Eftirstöðvar skuldabréf-
anna eru því nú um 196 milljarðar
króna. Lágmarksveðhlutfall lækkar
úr 125% í 115% af eftirstöðvum
skuldabréfanna á hverjum tíma.
Vaxtakjör haldast óbreytt – 2,9%
álag ofan á LIBOR-vexti – til októ-
ber árið 2018. Eftir það fer vaxta-
álagið hins vegar stighækkandi og
verður 3,5% vegna gjalddaga 2020
og að lokum 4,05% vegna lokagjald-
dagans 2026.
Getur frestað greiðslu 40 milljarða
Afborganir Landsbankans til LBI*
* Fjárhæðir eru í milljörðum Heimild: Kynning LBI fyrir kröfuhafa
Ef greiðslum 2018 og 2020 er
frestað að hluta
Miðað við núgildandi samkomulag
60
50
40
30
20
10
0
2014 2016 2018 2020 2022 2024 2026
35
,3
30
,4
4
0
,6
33
,9
29
,6 3
3,
9
52
29
,6
39
,7
39
,7
18
,7
17
,2
30
,43
5,
3
Landsbankinn má fresta greiðslu á 40 milljörðum á gjalddaga 2018 og 2020 ef bankanum tekst ekki
að sækja sér fjármagn á erlendum lánsmörkuðum Var eitt skilyrða Seðlabankans fyrir undanþágu
Skuld Landsbankans
» Á árunum 2018 og 2020
þarf Landsbankinn að greiða
um 75 milljarða í afborgarnir af
erlendum skuldabréfum við
LBI samkvæmt samkomulagi
sem náðist í síðustu viku.
» Ef Landsbankinn verður ekki
búinn að sækja sér erlent
lánsfé til að endurfjármagna
skuldabréfin árið 2018 má
hann fresta greiðslu að fjár-
hæð um 40 milljarðar.
» Markmiðið er að slitabú LBI
sé einnig látið taka þátt í
endurfjármögnunaráhættu
Landsbankans eftir árið 2018.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
6
3
4
1
NISSAN LEAF RAFBÍLL
4
KLST.
5 ÁRA ÁBYRGÐ
Öllum Nissan Leaf rafbílum sem BL ehf. selur fylgir 3 ára
verksmiðjuábyrgð auk 5 ára verksmiðjuábyrgðar á rafhlöðu
sem tryggir þig fyrir mögulegum bilunum, innköllunum
eða uppfærslum á búnaði sem kunna að koma upp yfir
ábyrgðartímann.
NOTAÐUR BÍLL SEM INNÁBORGUN
Þeir sem kaupa Nissan Leaf Nordic rafbíl frá BL ehf. geta
greitt hluta kaupverðsins með notuðum bíl. Restina er hægt
að taka að láni að hluta eða öllu leyti.
45 DAGA SKIPTIRÉTTUR
Langar þig að prófa en ert ekki viss? Öllum Nissan Leaf Nordic
rafbílum sem BL ehf. selur fylgir 45 daga skiptiréttur.**
ÞÚ KEMST ALLRA ÞINNA FERÐA Á NISSAN LEAF NORDIC
FYRIR EINUNGIS 2.900 KR. Á MÁNUÐI*
Í TAKMARKAÐAN TÍMA BJÓÐUM
VIÐ HEIMAHLEÐSLUSTÖÐ OG
VETRARDEKK Í KAUPAUKA
KAUPAUKI AÐ
ANDVIRÐI 350.000 KR.
**Ef viðskiptavinur sem keypt hefur Nissan Leaf Nordic telur bílinn ekki henta
þörfum sínum bjóðum við 45 daga skiptirétt. Viðskiptavinur getur þá skilað bílnum
og látið kaupverðið ganga upp í kaup á sambærilegum eða dýrari nýjum bíl frá
BL ehf. Miðað er við að bíllinn sé ekinn að hámarki 1.500 km á tímabilinu.
BL ehf / Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
NORDIC ÚTGÁFA
Verð: 4.490.000 kr.
*Miðað við verðskrá ON 10.09.2014 og 1.250 km akstur á mánuði / 15.000 km á ári.
GE bílar / Reykjanesbæ / 420 0400 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – IB ehf. / Selfossi / 480 8080