Morgunblaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014
Cuxhavengata 1 • Hafnarfirði • Sími 560 0000 • www.safir.is • safir@safir.is
SKIPASALA • KVÓTASALA
Góður línu og netabátur eða alhliða vinnubátur Mjög öflugt Línuskip LOA 52,5m x B 11,59m
G135
Til sölu
Til sölu
Eigum til sölu varanlegar aflaheimildir í báðum kerfum nánari upplýsingar í síma 560 0000
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
Veldu viðhaldsfrítt
PVC gluggar og hurðir -
íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
Nýjung - viðhaldsfrítt þakkantsefni PVC gluggar og hurðir
PGV Framtíðarform er stöðugt að leita að nýjung-
um sem gætu hentað erfiðum veðurskilyrðum hér
á landi. Viðhaldsfría þakkantsefnið hefur hlotið
frábærar viðtökur og greinilegt að mikil þörf eru á
slíkri nýjung.
Barnalæsing - Mikil einangrun
CE vottuð framleiðsla - Sérsmíði eftir málum
Glerjað að innan - Áratuga ending - Næturöndun
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Playmobil-leikföngin fagna 40 ára af-
mæli sínu í ár en leikföngin komu
fyrst fram á sjónarsviðið á leik-
fangasýningu í Nürnberg 1974. Ári
síðar komu þau á markað hér á Ís-
landi og slógu í gegn svo um munaði
og ekki sér fyrir endann á sig-
urgöngu þessa einfalda plast-
leikfangs.
„Playmobil-fyrirtækið er mjög
íhaldssamt og hefur lítið breyst í ár-
anna rás. Það er búið að bætast að-
eins við, eins og svipbrigði og skegg,
en í grunninn er leikfangið alveg eins
í dag og fyrir 40 árum,“ segir Halldór
Baldvinsson, vörustjóri leikfanga hjá
afþreyingarfyrirtækinu Senu sem
flytur Playmobil-leikföngin til lands-
ins.
Aðspurður hvort Playmobil-
vörurnar renni enn út eins og heitar
lummur segir hann svo vera. Vin-
sældirnar haldi sér ár frá ári óháð
árstíma. „Við erum með kastala, hús,
bíla, húsbíla og fjöldann allan af leik-
föngum. Af stóru hlutunum er það
sjóræningjaskipið sem hefur gengið
best, en síðan fyrsta skipið kom á
markað árið 1978 hafa um 16 milljón
eintök selst af því. Jóladagatölin og
litlu Playmo-pokarnir hafa verið
mjög vinsæl að undanförnu, trúlega
er það jólasveinninn,“ segir hann en
gera má ráð fyrir að einhver börn
hafi vaknað glöð í morgun með
Playmobil-dót í skónum sínum í
glugganum.
Merkið stendur eitt og sér
Playmobil hefur aldrei tengt sig
við önnur vörumerki, ólíkt t.d. Lego.
Þannig er ekki til Star Wars Playmo
eða neitt álíka. Merkið stendur alveg
eitt og sér og hefur alltaf gert. Hall-
dór segir að lítil breyting hafi orðið á
hönnun Playmobil í gegnum árin –
enn sé hægt að taka hárið af Playmo-
konu frá 1974 og setja það á konu
sem framleidd er nú 40 árum síðar.
Þó Playmobil hafi lítið breyst er
það vinsælt meðal safnara úti í hinum
stóra heimi. Þannig má t.d. sjá
Playmobil-hús frá upphafsárum
merkisins til sölu á E-bay á 1500
pund eða rúmlega 300 þúsund krón-
ur. Það gætu því leynst gersemar
uppi á lofti eða inni í bílskúr hjá fólki.
Brosandi í 40 ár
Playmobil fagnar 40 ára afmæli í ár
Kom til Íslands ári síðar
Ljósmynd/Katherine Rose for t
Fjölgar ört Um 3,2 nýjar Playmobil-fígúrur eru búnar til á hverri sekúndu,
sem er ögn meira en mannfólki fjölgar en 2,6 manneskjur fæðast á sekúndu.
Gefnir hafa verið út tveir tónlistar-
diskar, „Kveðja mín er söngljóð“,
með úrvali laga sem Eiður Ágúst
Gunnarsson
bassasöngvari
syngur við undir-
leik Ólafs Vignis
Albertssonar.
„Ég veit að hann
hefði viljað gefa
þessi lög út og
með því að gera
það reisi ég honum smá minn-
isvarða,“ segir Lucinda Grímsdóttir,
ekkja Eiðs sem lést 15. júní 2013.
Keypti allar upptökur
Eiður Ágúst og Ólafur Vignir tóku
upp fjölda laga fyrir Ríkisútvarpið
og 2009 keypti Eiður Ágúst allt efnið
sem útvarpið hafði tekið upp með
söng hans. Í kjölfarið komu út tveir
diskar þar sem hann söng við undir-
leik Ólafs Vignis ljóðaflokkana
Svanasöng eftir Franz Schubert og
Ástir skálds eftir Robert Schumann
í þýðingu Daníels Daníelssonar. Á
diskunum núna er úrval sönglaga,
sem tekin voru upp hjá Rúv á ár-
unum 1969 til 1986.
Á diskunum er samtals 51 lag.
„Ég er með brauðkassa fullan af
upptökum útvarpsins, þannig að val-
ið var erfitt,“ segir Lucinda, sem
gefur út diskana á eigin kostnað.
Hún áréttar að Ólafur Vignir hafi
haft umsjón með lagavalinu. Bjarni
Rúnar Bjarnason var hljóðmeistari
og hönnun í höndum Ingvars Vík-
ingssonar en verslunin 12 Tónar sér
um söluna.
„Það er ekki gróðamarkmiðið sem
ræður för heldur hugsjónin,“ segir
hún og bætir við að hún sé innilega
þakklát þeim sem aðstoðuðu hana
við útgáfuna. steinthor@mbl.is
Úrval söngljóða komið
út á tveimur diskum
Bassinn Eiður Ágúst Gunnarsson.
Eiður Ágúst
bassi og Ólafur
Vignir á píanó
Samstöðufundur listamanna úr
ýmsum geirum til varnar RÚV sem
frestað var vegna veðurs síðastlið-
inn miðvikudag, verður á Aust-
urvelli í dag kl 17:00. Fjöldi
þekktra listamanna mun koma
fram á fundinum, m.a. Ragnheiður
Gröndal, Stuðmenn, Helgi Björns-
son, Stefán Hilmarsson, Björn Jör-
undur, Edda Björgvinsdòttir og
fleiri.
Fundurinn er haldinn undir heit-
inu Verjum RÚV og þar verður
skorað á stjórnvöld að draga til
baka áform um lækkun útvarps-
gjalds.
Samstöðufundur
vegna RÚV í dag
Playmobil leik-
fangakarl eða
-kona, gjarnan
nefndur
„Pleimó-kall“,
er 7,5 senti-
metra hár og
er gerður úr
aðeins sjö hlut-
um.
Síðan 1974
hefur Playmobil búið til 2,7
milljarða Playmo-kalla. Ef allar
þessar fígúrur héldust í hend-
ur myndi keðjan fara þrisvar
og hálfum sinnum kringum
hnöttinn. Í upphafi voru allir
Playmo-kallarnir með sömu
hárgreiðslu, í dag eru 374 ólík-
ar fígúrur, 839 mismunandi
andlit og 68 skegg.
Alltaf 7,5
sentimetrar
SKEMMTILEGAR
STAÐREYNDIR