Morgunblaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Eigendur metanólverksmiðju Car- bon Recycling International (CRI) í Svartsengi á Reykjanesi hafa ásamt samstarfsaðilum fengið styrk úr rannsóknaáætlun ESB til að reisa verksmiðju í Þýskalandi sem bygg- ist á tækni CRI til að framleiða vist- vænt eldsneyti. Er verksmiðjunni ætlað að framleiða metanól úr raf- magni og koltvísýringi úr útblæstri kolaorkuvers í Ruhr-héraði. Áætlað er að verkefnið kosti um 11 milljónir evra, jafnvirði um 1,7 milljarða króna. Frá þessu var fyrst greint í Við- skiptablaðinu í gær en í kjölfarið sendi CRI út tilkynningu á aðra fjöl- miðla. Meðal samstarfsaðila CRI í verkefninu eru Mitsubishi Hitachi Power Systems í Evrópu, evrópskir háskólar og rannsóknarstofnanir. Carbon Recycling hóf starfsemi hér á landi árið 2006 með rann- sóknum og þróun aðferða til fram- leiðslu á endurnýjanlegu eldsneyti. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu inn- lendra fjárfesta en einnig koma er- lendir fjárfestar að því, einkum frá Bandaríkjunum. Alls eru hluthafar um 60 talsins. Ómar Freyr Sveinbjörnsson, rannsóknastjóri CRI, segir í samtali við Morgunblaðið að það hafi verið hugmyndin frá upphafi að flytja út tækniþekkinguna og aðferðina við framleiðslu á metanóli. Verksmiðjan í Þýskalandi sé hugsuð sem tækniþróunarverkefni og geti verið gluggi fyrir CRI inn á evrópskan markað. Þjóðverjar og fleiri Evr- ópuþjóðir búi við sveiflukenndan raforkumarkað, þar sem eftirspurn er mikil eftir nýjum og vistvænum orkugjöfum. Þannig hafa Þjóðverjar sett sér það markmið að endurnýj- anlegir orkugjafar anni allt að helm- ingi orkuþarfar heimila og iðnaðar. Þá verða innleidd ströng viðmið í losun frá kolaorkuverum. „Þessi tækni okkar getur geng- ið í mismunandi iðnaði, hvort sem það eru fyrirtæki í orkugeiranum, efnaframleiðslu eða stáliðnaði. Við seljum tæknilausnir og þjónustu fyr- ir aðila sem þurfa að leysa vandamál varðandi útblástur eða eru með um- framorku sem þarf að koma í verð,“ segir Ómar Freyr. Starfsmenn CRI á Íslandi eru í dag í kringum 35. Um þriðjungur þeirra mun koma að undirbúningi verkefnisins í Þýskalandi og aðstoða við að koma upp tæknibúnaði, ásamt starfsmönnum þýskra samstarfs- aðila. Tvöfalda framleiðsluna hér Á sama tíma og þetta fer fram er CRI að stækka metanólverk- smiðjuna í Svartsengi, þar sem hægt verður að tvöfalda framleiðsluna. Í dag framleiðir verksmiðjan, að sögn Ómars, 4-5 tonn á dag en mun geta framleitt daglega um 12 tonn að lok- inni stækkun. Áætlað er að þeim framkvæmdum ljúki næsta vor en á meðan er framleiðsla CRI minni en ella. Ómar Freyr segir góða reynslu komna á framleiðslutæknina og af þeim sökum hafi verið ákveðið að fara í stækkun hér heima og útrás á erlendum mörkuðum. Verksmiðja í Þýska- landi fyrsta skref út Ljósmynd/Mannvík Metanól Verksmiðja Carbon Recycling International í Svartsengi á Reykjanesi, sem verið er að stækka.  CRI reisir metanólverksmiðju fyrir 1,7 milljarða króna Metanól í lífdísilolíu » CRI framleiðir metanól úr vetni og koltvísýringi, sem kemur frá jarðvarmavirkjun HS Orku í Svartsengi. » Metanólið er notað til líf- dísilframleiðslu hér á landi og erlendis og til íblöndunar í bensín. Mest er flutt út til Sví- þjóðar og Hollands. Sigurður Ingi Jó- hannsson, um- hverfis- og auð- lindaráðherra, hefur fyrir hönd umhverfis- ráðherra á Norðurlöndum, sent fram- kvæmdastjórum umhverfis-, heilsu- og neyt- endamála hjá ESB hvatningu um að móta aðgerðir til að stemma stigu við hormónaraskandi efnum í vinnu við áætlun um eiturefnalaust um- hverfi árið 2018. Þetta er gert til að fylgja eftir nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem áhrif efnanna eru greind og mat lagt á hvað það kostar samfélagið að hafast ekki að. Í skýrslunni kemur fram að árlegur kostnaður ríkja ESB af veikindaleyfum og auknu álagi á heilbrigðiskerfið vegna áhrifa horm- ónaraskandi efna nemi að minnsta kosti 4,5 milljörðum danskra króna. Eiturefnalaust umhverfi 2018 Sigurður Ingi Jóhannsson Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Erum byrjaðir að afhenda 2015 árgerðina! Við sérpöntumallar gerðirbíla frá USA og Evrópu Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 isband@isband.is - www.isband.is • Nýr og enn öflugri en áður • Dísel 440hö • Öflugur pallbíll Nýr Ford F350 Verð frá kr. 8.650.000 • Nýtt útlit að utan sem innan • Stórglæsilegur pallbíll Verð frá kr. 9.350.000 Komdu til okkar og kynntu þér málið, erum að taka niður pantanir. Verð frá kr. 9.350.000 Nýr Dodge Ram 3500 • Nýtt útlit og flottari innrétting • Dísel 390 hö • Öflugur pallbíll Opið alla virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15 Nýr GMC 3500 Jólagjafir fyrir dýrin Orbilo c ljós kr. 5.6 12.- Jólahú fur frá kr . 884. - Plastbúrfrá kr. 2.987.- Jólabúningarfrá kr. 3.876.- Katta klórur frá kr . 2.99 5.- Rúmfrá kr. 2.997.- Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín Smád ýrabú r frá kr . 3.59 5.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.