Morgunblaðið - 12.12.2014, Side 15

Morgunblaðið - 12.12.2014, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014 Karl Sigurðsson, sérfræðingur á Vinnumála- stofnun, segir fjölgun starfa á fyrstu níu mán- uðum ársins ekki benda til þess að það sé frost í ís- lensku efnahags- lífi. Þannig hafi störfum fjölgað um nærri 2% milli 2013 og 2014 ef mið- að er við fyrstu 10 mánuðina, eða um nálægt 3.500 störf. „Fjölgun starfa var einnig mikil árið 2014 og í samræmi við hag- vöxt, en var mun meira bundin ungu fólki heldur en í ár þegar fjölgun starfa hefur dreifst meira á eldri aldurshópa. Okkur hefur því virst sem jákvæðari teikn hafi verið að koma fram víðar á vinnumark- aði en bara í ferðaþjónustu nú allra síðustu mánuði og því koma þessar upplýsingar um lítinn hagvöxt á óvart,“ segir Karl. Eykst aftur með haustinu „Atvinnuleysistölur benda einnig til að efnahagslífið sé að taka við sér, en atvinnuleysi hefur farið jafnt og þétt minnkandi síðustu ár og er á heildina litið enn á niðurleið þó svo að það fari vaxandi nú á haustmánuðum í takt við árstíða- bundna sveiflu,“ segir Karl. Skráð atvinnuleysi í október 2014 var 3,2%, en að meðaltali voru 5.217 atvinnulausir í október. Til samanburðar var skráð atvinnu- leysi í október 2012 5,2%, en þá voru að meðaltali 8.187 án vinnu, eða um 3.000 fleiri en í október sl. 3.500 ný störf hafa orðið til í ár Karl Sigurðsson  Sérfræðingur sér ekki merki kólnunar BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sáralítill hagvöxtur á fyrstu níu mán- uðum ársins – 0,5% – veldur hag- fræðingum heilabrotum. Ljóst er að eftirspurn í efnahagslífinu er samt sem áður að aukast. Það kemur með- al annars fram í því að atvinnuvega- fjárfesting óx um 11,7% á sama tíma- bili en einkaneysla jókst um 2,8% og var það undir væntingum. Þá uxu þjóðarútgjöld, sem eru samtala einkaneyslu, fjárfestingar og sam- neyslu, um 3%. Ástæðan fyrir litlum hagvexti er einkum sú að útflutningur hefur vax- ið fremur hægt og aukin eftirspurn hefur einkum beinst að innfluttum vörum sem í þjóðhagsreikningum dragast frá landsframleiðslu. Jöfnuðurinn hefur áhrif Sigurlilja Albertsdóttir, sérfræð- ingur í þjóðhagsreikningum og opin- berum fjármálum, segir vöru- og þjónustujöfnuðinn hafa áhrif á hag- vöxtinn. „Þegar útflutningur er um- fram innflutning þá erum við með já- kvæðan vöru- og þjónustujöfnuð. Jöfnuðurinn kemur þannig inn í landsframleiðsluna sem plús eða mín- us stærð og eykur þannig eða dregur úr hagvexti. Tölur um vörur og þjón- ustu koma frá utanríkisdeild Hag- stofunnar sem birtir tölur um vörur og þjónustu á verðlagi ársins. Á fyrstu níu mánuðum ársins, sam- anborið við fyrstu níu mánuði ársins í fyrra, erum við að flytja meira inn en við flytjum út sem er óhagstætt ef skapa á góðan hagvöxt fyrir hagkerf- ið. Gengi krónunnar spilar hér einnig inn í en þar sem krónan hefur styrkst þá fáum við minna fyrir útflutninginn en við gerðum t.d. fyrir ári,“ segir Sigurlilja um þróunina á árinu. Skeið efnahagsbata væri á enda Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við HÍ, segir þjónustuafganginn að vaxa en vöruskiptaafgang við það að hverfa. Þetta sé áhyggjuefni og enn ein staðfestingin á því að ekki hafi tekist að auka vöruútflutning sem skyldi eftir efnahagshrunið. „Ef það væri ekki fyrir hraðan vöxt ferðaþjónustu væri greiðslujöfnuður- inn kominn í halla sem hlyti að leiða til bæði veikara gengis og samdráttar í innlendri eftirspurn. Skeið efna- hagsbata eftir hrunið væri á enda. Ís- land er að verða jafnháð ferðaþjón- ustunni og við vorum háð sjávarútvegi hér í gamla daga. Ferðaþjónustan er nú orðin leiðandi á öllum helstu mörkuðum; á gjaldeyrismarkaði, vinnumarkaði og fasteignamarkaði og ber nú uppi efnahagsbatann,“ segir Ásgeir. Slæmar fréttir fyrir krónuna „Einkaneysla er miklu veikari á þessu ári en almennt var búist við. Þjóðarútgjöldin eru hins vegar í vexti sem skýrist af mikilli atvinnuvega- fjárfestingu sem virðist einkum bein- ast að innflutningi á erlendum fjár- festingarvörum. Þessar tölur eru fremur slæmar fréttir fyrir krónuna þar sem ef skuldaleiðrétting og kjarasamningar koma einkaneyslu af stað má búast við því að innflutningur á varanlegum neysluvörum vaxi verulega í kjölfarið og skapi veru- legan vöruskiptahalla. Við gætum þá mögulega verið að sjá dæmigerðan íslenskan eftirspurnarfleyg vera að myndast þar sem þjóðarútgjöldin eru að vaxa langt umfram landsfram- leiðslu,“ segir Ásgeir. Með þetta í huga telur hann ekki rétt að ræða um kólnun í hagkerfinu. Gústaf Steingrímsson, hagfræð- ingur hjá Landsbankanum, segir koma á óvart hvernig innflutningur- inn sé að þróast í ljósi þess hvernig einkaneysla og atvinnuvegafjárfest- ing hefur þróast á þessu ári. Innflutningurinn kemur á óvart „Sögulega séð hefur verið mjög sterkt samband á milli breytinga í einkaneyslu og atvinnuvegafjárfest- ingu annars vegar og breytinga í inn- flutningi hins vegar á þann hátt að tveir fyrrnefndu liðirnir hafa drifið breytingar í innflutningi. Það sem vekur athygli er að innflutningurinn er nú að vaxa mun meira en sem nemur þessu sögulega sambandi og það skýrir það ósamræmi sem er á milli vaxtar þjóðarútgjalda og hag- vaxtar á fyrstu 9 mánuðum ársins. Það sem gæti skýrt þetta ósamræmi er að atvinnuvegafjárfesting sé hreinlega vanmetin en sögulega séð hafa fyrstu vísbendingar um atvinnu- vegafjárfestingu gefið til kynna minni vöxt en reyndin hefur orðið,“ segir Gústaf. Guðrún Jónsdóttir, deildarstjóri þjóðhagsreikninga og opinberra fjár- mála hjá Hagstofunni, telur ekki ástæðu til að ætla að þetta sé raunin. „Við erum aðeins búin að skoða fjárfestingu atvinnuveganna. Við höf- um ekki sérstaka ástæðu til að ætla að hún sé vanmetin. Frá þriðja árs- fjórðungi 2013 til þriðja 2014 jókst hún um rúm 34% og um tæp 12% fyrstu níu mánuðina miðað við sama tímabil fyrra árs. Hagstofan skoðar þetta að sjálfsögðu áfram þegar fyllri gögn liggja fyrir.“ Þjóðin flytur ekki nógu mikið út  Lítill vöxtur útflutnings á þátt í litlum hagvexti  Sérfræðingur hjá Hagstofunni segir óhagstætt að þjóðin flytji meira inn en hún flytur út  Dósent segir að án ferðaþjónustunnar væri kreppa í landinu Morgunblaðið/RAX Í Vesturbænum Innflutningur hefur aukist um tæp 11% á árinu. Neikvæður hagvöxtur » Hagvöxtur var neikvæður um 2,7% á fyrsta ársfjórðungi og aftur neikvæður um 1,6% á öðrum ársfjórðungi en hins vegar jákvæður um 3,9% á þriðja ársfjórðungi. » Útflutningur jókst um 5,1% að raungildi á fyrstu níu mán- uðum ársins og innflutningur jókst um 10,8%, þar af vöru- innflutningur um 11,1%. Seðlabanki Íslands Gjaldeyrisútboð Seðlabanki Íslands mun halda þrjú gjaldeyrisútboð 10. febrúar 2015. Útboðin þrjú eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 (http://sedlabanki.is/afnam) og skilmála Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011 með síðari breytingum (http://sedlabanki.is/fjarfesting). Útboð í fjárfestingarleið Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Lágmarksfjárhæð til þátttöku í útboðshluta fjárfestingarleiðarinnar eruEUR25.000. Fjármálafyrirtæki semgert hafa samstarfssamning við Seðlabanka Íslands um milligöngu munu annast framlagningu umsókna um fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út í dagslok 21. janúar n.k. Útboð í ríkisverðbréfaleið Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Heildarmagn evra (útboðs­ fjárhæð) sem Seðlabankinn býðst til að kaupa verður að hámarki samsvarandi ISK 400 milljónum. Lágmarksfjárhæð til þátttöku í ríkisverðbréfaleiðinni eru EUR 10.000. Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn greiðslu í ríkisverðbréfum. Útboð um kaup á krónum gegn greiðslu í erlendum gjaldeyri Seðlabanki Íslands kallar eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Viðskiptabönkum er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri. Seðlabankinn áskilur sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármála­ fyrirtækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfest­ um á sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í útboðunum þremur verður 3 dögum eftir að útboði lýkur. Tilboðum skal skilað eigi síðar en 10. febrúar 2015. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðanna þriggja er að finna í útboðsskilmálum. Útboðsskilmála og yfirlit um milligönguaðila, aðalmiðlara og viðskiptabanka má finna á heimasíðu Seðlabankans http://sedlabanki. is/utbod. Athygli er vakin á því að útboðið 10. febrúar 2015 verður síðasta útboðið þar sem boðið verður upp á fjárfestingarleið samkvæmt núverandi fyrirkomulagi. Nánari upplýsingar veita milligönguaðilar, aðalmiðlarar og viðskiptabankar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.