Morgunblaðið - 12.12.2014, Side 20

Morgunblaðið - 12.12.2014, Side 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014 Guðrún Hálfdánardóttir Davíð Már Stefánsson Fjölskylda íslensks kvikmyndatöku- manns, sem sagður var vinna fyrir Ríki íslams (ISIS), segir ekki mögu- leika á að hann myndi starfa með hryðjuverkasamtökunum. Hins veg- ar sé hann með myndefni undir höndum sem Ríki íslams vilji kom- ast yfir og samtökin séu með þessu að reyna að komast að nafni hans. Sarah Birke, fréttamaður Eco- nomist í Mið-Austurlöndum, skrifaði um helgina grein á vef The New York Review of Books og hafði þar eftir Sýrlendingi að nafni Abu Hamza, sem starfaði áður með Ríki íslams, að íslenskur kvikmynda- gerðarmaður væri meðal liðsmanna hryðjuverkasamtakanna og tæki meðal annars myndskeið fyrir sam- tökin. Ríki íslams hefur meðal annars birt myndskeið af aftökum vest- rænna gísla og hefur vakið athygli hversu fagmannlega þau eru gerð. Því var hins vegar ekki haldið fram í grein Birke, að Íslendingur hefði tekið myndskeið af aftökunum. Hættir lífi sínu Á mbl.is kom í gær fram að ís- lenski kvikmyndatökumaðurinn hefði verið í Sýrlandi í tíu daga fyrir einu og hálfu ári og meðal annars fylgst með lækni að störfum. Eins myndaði hann í flóttamannabúðum þar. Hann var einnig við tökur á víglínunni þar sem hann var í fylgd með andstæðingum skæruliðasam- takanna. Hætti hann þar lífi sínu í að birta heiminum upplýsingar um hvernig hryðjuverkasamtök eins og ISIS vinna. Að sögn ættingja hans var meðal annars skotið á hann og félaga hans en hann hefur hvorki komið til Sýrlands né Íraks síðan þá. Að sögn ættingja Íslendingsins myndi hann aldrei taka þátt í starf- semi Ríkis íslams enda óttist hann samtökin líkt og flestir aðrir. Nú sé hann að störfum á öðrum vígstöðv- um í heiminum, fjarri stríðinu í Sýr- landi, en að mynda átök milli stríð- andi fylkinga líkt og hann gerði í Sýrlandi. Utanríkisráðuneytið hefur ekki neinar upplýsingar um að Íslend- ingur sé meðal liðsmanna Ríkis ísl- ams. Myndbönd af aftökum Ríki íslams (ISIS) eru samtök herskárra íslamista, stofnuð árið 1999, sem hafa farið með ofbeldi um Sýrland og norðurhluta Íraks. Mikil óöld hefur fylgt samtökunum og hafa þau meðal annars birt mynd- bönd af því þegar vestrænir blaða- menn og starfsmenn hjálparsam- taka voru teknir af lífi. Liðsmenn samtakanna hafa auk þess drepið fjölda óbreyttra borg- ara í Mið-Austurlöndum. Íraksher hefur gengið brösulega að halda aft- ur af liðsmönnum samtakanna og hefur Bandaríkjaher meðal annars gripið til loftárása gegn þeim. Kúrd- ískar hersveitir hafa þar að auki reynt eftir fremsta megni að halda þeim utan síns áhrifasvæðis. Tölur um stærð samtakanna hafa verið á reiki. Kúrdar hafa fullyrt að meðlimir þeirra séu um tvö hundruð þúsund. Leyniþjónusta Bandaríkj- anna hefur þó dregið heldur úr töl- unni og segir félagana varla fleiri en 31 þúsund. Segir ISIS á eftir Íslendingi  Fjölskyldan segir hann óttast samtökin Yfirráðasvæði Ríkis íslam Source: Heimild: ISW, uppfært 5. des. ÍRAN TYRKLAND DAMASKUS BAGDAD SÝRLAND Aleppó Homs Svæði undir beinni stjórn ISIS Svæði undir árásum Stuðningssvæði ISIS Sjálfstjórnarsvæði Kúrda Raqa ÍRAK Kobane Deir Essor Kirkuk Fallujah Mósul LÍ BA NO N 100 km AFP Flóttamenn Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja átökin í Sýrlandi. Lögreglan í Hong Kong hefur nú hafið aðgerðir gegn mótmælendum þar í landi og í gær handtók hún fjölda aðgerðasinna og rýmdi helstu bækistöðvar þeirra. Sumir mótmælendanna yfirgáfu svæðið er lögreglan hótaði handtöku en margir stóðu þó fast á sínu og voru færðir í fangageymslu fyrir vikið. Mótmælt hefur verið í Hong Kong í um tvo mánuði en mótmæl- endurnir krefjast aukins lýðræðis og sjálfstæðis Hong Kong. Í sept- ember voru tugir þúsunda manna saman komnir til að krefjast lýð- ræðis en mótmælendum hefur far- ið fækkandi allar götur síðar. Þjóðþekktir einstaklingar voru í hópi þeirra handteknu og má þar nefna stofnanda lýðræðisflokksins þar í landi, Martin Lee, leiðtoga stúdenta, Nathan Law, fjölmiðla- jöfurinn Jimmy Lai og söngkonuna Denise Ho. Lögreglan gerði tjöld mótmælenda upptæk auk þess sem hún fjarlægði námsaðstöðu stúd- enta sem nýttu gjarnan staðinn til heimalærdóms. Meðal þess sem mótmælend- urnir krefjast er að íbúar Hong Kong fái að kjósa sér leiðtoga í kosningum árið 2017 án afskipta stjórnvalda í Peking. davidmar@mbl.is Mótmælendur hand- teknir í Hong Kong AFP Mótmæli Aðgerðasinnar vilja meðal annars aukið lýðræði og sjálfstæði. Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922 Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is Gripahúsagluggar á góðu verði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.