Morgunblaðið - 12.12.2014, Side 21

Morgunblaðið - 12.12.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014 BAKSVIÐ Davíð Már Stefánsson Guðm. Sv. Hermannsson John Brennan, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, hélt blaða- mannafund í höfuðstöðvum stofnun- arinnar í Washington í gær þar sem hann viðurkenndi, að nokkrar þeirra yfirheyrsluaðferða, sem starfsmenn CIA notuðu eftir hryðjuverkaárásina á Bandaríkin árið 2001, væru „við- bjóðslegar“. Hann gagnrýndi hins vegar niðurstöður skýrslu leyniþjón- ustunefndar öldungadeildar Banda- ríkjaþings um yfirheyrslur CIA og neitaði því að leyniþjónustan hefði reynt að blekkja bandarísk stjórn- völd. Brennan sagði að þegar á heildina væri litið hefðu yfirheyrslurnar aflað mikilvægra upplýsinga og stuðlað að því að bjarga mannslífum. Hann sagðist einnig telja, að miklar líkur væru á að þvingunaraðferðir við yfir- heyrslur skiluðu árangri. Hann sagði að nokkrir starfsmenn CIA hefðu farið út fyrir leyfileg mörk en þau tilvik væru fá. Hann viður- kenndi að nokkrir embættismenn leyniþjónustunnar hefðu veitt þing- mönnum „ónákvæmar“ upplýsingar og sagði að slíkt væri „óviðunandi“. Hann neitaði hins vegar því að leyni- þjónustan hefði reynt skipulega að blekkja þingið eða ríkisstjórnina. Óvenjulegur blaðamannafundur Afar óvenjulegt er að forstjóri CIA haldi opinberlega blaðamannafundi en fundurinn í gær var haldinn í kjöl- far þess að öldungadeild Bandaríkja- þings birti á þriðjudag skýrslu þar sem sagði m.a. að grimmilegar pynt- ingar sem stofnunin beitti við yfir- heyrslur yfir grunuðum hryðju- verkamönnum hefðu gengið mun lengra en áður hafði verið talið og að þær hefðu ekki komið að neinu gagni eða eflt öryggi Bandaríkjanna. Brennan sagði á fundinum í gær að nokkrir starfsmenn CIA, sem hefðu farið út fyrir leyfileg mörk, ættu að axla ábyrgð þeirra gerða sinna. En hann fullyrti jafnframt, að CIA hefði gert margt rétt á tímum þegar engar auðveldar leiðir voru í boði og óttast var, að hryðjuverkasamtökin al- Qaeda myndu gera fleiri árásir. Meðan á blaðamannafundi Brenn- ans stóð skrifaði Dianne Feinstein, formaður þingnefndarinnar sem gaf skýrsluna út, stöðugar færslur á samskiptavefinn Twitter þar sem hún hafnaði rökum forstjóra CIA, þar á meðal þeirri fullyrðingu hans að leyniþjónustan hefði ekki getað aflað upplýsinga með öðrum hætti en með þvingunum. Sameinuðu þjóð- irnar og ýmis mannréttindasamtök hafa hvatt til þess, að leyniþjón- ustumenn, sem tóku þátt í pynt- ingum á föngum á árunum 2001 til 2007, verði sóttir til saka. Þjóð- arleiðtogar víða um heim, þar á með- al David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hafa einnig gagnrýnt pyntingar CIA. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði að pynting- arnar samrýmdust ekki bandarísk- um gildum. Þá hefur Mark Udall, öldunga- deildarþingmaður Demókrataflokks- ins, sagt að Brennan ætti að segja af sér vegna þess að CIA hafi reynt að hafa áhrif á það hverjar niðurstöður þingnefndarinnar yrðu. Brennan var háttsettur embættis- maður innan CIA árið 2002 þegar byrjað var að beita pyntingum við yfirheyrslur. Stórgölluð skýrsla Nokkrir fyrrverandi bandarískir embættismenn gagnrýndu pynt- ingaskýrsluna í gær. Harðast gekk Dick Cheney, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, fram en hann sagði í viðtali við Fox sjónvarpsstöðina, að skýrslan væri „bölvuð vitleysa“. Hann segir jafnframt að George W. Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, hafi verið fullkunnugt um þá yfir- heyrslutækni sem CIA notaði í hans valdatíð. Hann sagði skýrsluna jafn- framt vera „stórgallaða og hrikalega illa unna“ en viðurkenndi þó að hann hefði ekki lesið hana alla. Viðbjóðslegar yfirheyrsluaðferðir  Forstjóri CIA gagnrýnir niðurstöður þingnefndar um yfirheyrslur yfir grunuðum hryðjuverkamönnum en segir að í sumum tilvikum hafi CIA-menn farið yfir leyfileg mörk  Hvatt til að starfsmenn CIA verði saksóttir AFP Varnarræða John Brennan svarar spurningum blaðamanna í höfuðstöðvum CIA í gærkvöldi. www.postur.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 4 – 2 4 9 8 SMS-FRÍMERKI Nú getur þú keypt frímerki á jólakortin með SMS skilaboðum úr símanum. Það er einfalt og þægilegt. Kynntu þér málið á postur.is. á jólakortið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.