Morgunblaðið - 12.12.2014, Síða 26

Morgunblaðið - 12.12.2014, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014 ✝ Egill ÞórólfurSæmundsson fæddist í Brekku- koti í Óslandshlíð, Skag., 19. október 1914. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Hlévangi í Keflavík 23. nóv- ember 2014 Foreldrar hans voru Sæmundur Rögnvaldsson sjó- maður, fæddur 17. mars 1885, látinn 6. júlí 1932, og Petrea Aðalheiður Jóhannsdóttir, ljós- móðir, fædd 24. nóvember 1882, látin 16. apríl 1966. Systkini hans eru Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, f. 1916, Ingibjörg Róslaug Sæmundsdóttir, f. 1918, d. 2012. Á heimilinu ólust líka upp: Björg og Jóhann sem eru látin og Reynir sem er bú- settur í Keflavík. Þann 21 des- ember 1940 kvæntist Þórólfur Guðrúnu Valgerði Sigurð- ardóttur, f. 2 maí 1921 en hún lést 18. maí 2001 Dætur þeirra: 1) stúlka, f. árið 1941, lést þriggja daga gömul 2) Sigríður Ágústa, f. 9. september 1944, maki. Friðrik Jensen, fæddur grét Sigrún, f. 20. janúar 1961. Börn hennar eru a) Þórólfur Júlían Dagsson, f. 9. október 1987, og á hann eina dóttur. b) Ágúst Einar Ágústsson, f. 6. maí 1997. Þórólfur ólst upp í Ólafsfirði, þar gekk hann í barnaskóla Ólafsfjarðar til 14 ára aldurs. Þegar hann var 18 ára fór hann í héraðsskólann að Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsýslu og var þar tvo vetur. Þórólfur og Guðrún gengu í hjónaband í Ólafsfirði árið 1940 en fluttu til Keflavíkur árið 1942 og bjuggu þar síðan. Þórólfur stofnaði út- gerð og gerði út mótorbátinn Ver KE 45 ásamt Erlendi Sig- urðssyni mági sínum og Svein- birni Eiríkssyni. Hann var einn af stofnendum Útvegsmanna- félags Suðurnesja árið 1963 og sat í varastjórn og í stjórn Sjó- mannadagsráðs. Hann kom al- komin í land árið 1968 og starf- aði fyrst hjá Olíusamlagi Keflavíkur en síðan sem bensín- afgreiðslumaður hjá Essó á Að- alstöðinni. Þórólfur var hress og ern fram eftir aldri og söng með Karlakór Keflavíkur til 93 ára aldurs og einnig með Eldey, kór eldriborgara. Hann var mikið fyrir útivist og fór í stangveiði meðan heilsan leyfði. Útför Þórólfs fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 12. des. 2014, og hefst athöfnin klukkan 13. 25. apríl 1936. Börn þeirra: a) Gunnar Þór Frið- riksson, f. 17. mars 1964, maki Sig- urbjörg Jónsdóttir, f. 18. október 1964 og eiga þau þrjú börn. b) Aðalheiður Friðriksdóttir Jen- sen, f. 9. júní 1965, d. 30. júní 2013, hún lætur eftir sig fjórar dætur og fjögur barna- börn. c) Sigrún Friðriksdóttir Jensen, f. 6.ágúst 1968, maki Rudy Cornelis van Doorn, f. 3. janúar 1960, og eiga þau tvö börn d) Laeila Jensen Friðriks- dóttir, f. 17. júní 1974, maki Vil- mundur Rúnar Halldórsson, f. 3. október 1976, eiga þau fjögur börn. 3) Petrea Sæunn, f. 1.maí 1954, börn hennar eru a) Rúnar Þór Guðmundsson, f. 16. apríl 1972, maki Kristín Þórunn Kristinsdóttir, f. 13. maí 1976, og eiga þau 5 börn b) María Hauksdóttir, f. 30. apríl 1982, maki Óskar Ingi Víglundsson, f. 13. nóvember 1982, og eiga þau 3 börn c) Bjarki Freyr Óm- arsson, f. 29. júní 1997, 4) Mar- Elskulegur afi minn er allur. Já, 100 ára afmælið þitt, fyrir rétt rúmum mánuði. Það eru ekki margir sem fá að lifa í 100 ár. Og við vissum að tíminn þinn var kominn. Andlátið kom ekki óvænt, við vorum undir það búin, en það þýð- ir ekki að það sé ekki sárt. Afi lifði góðu lífi, giftist konunni sem hann elskaði, eignaðist 3 heilbrigðar dætur sem hann var stoltur af, eignaðist 9 barnabörn og 22 aðra afkomendur. Afi var blessaður með góðri heilsu. Hann hugsaði vel um heilsuna og gerði sínar æf- ingar alla tíð. Hann elskaði sjóinn, stangveiði, sönginn og börn. Ég á heilan hafsjó af minningum um afa. Að sitja í fanginu á honum og syngja með honum, eða hlusta á hann syngja, segja ævintýri og fara með ýmsar vísur er vissulega stór hluti af þeim og held ég að við öll, afkomendurnir, höfum fengið að upplifa það. Ég var líka svo heppin að fá að fara með afa í vinnuna þegar hann var að rukka olíu. Það var gaman, og mikið var nú spjallað við kúnnana við hverj- ar dyr. Mikið eru nú breyttir tímar. Og já, hann fékk sko að upplifa margar breytingarnar á þessari öld sem hann lifði. Ég gleymi aldrei þegar við fjölskyld- an vorum flutt út til Noregs og ein fyrstu jólin hringdum til mömmu í tölvunni. Honum fannst þetta hálfskuggalegt. Að sjá hvort ann- að og heyra í einhverju smátæki eins og tölvu, enda ekki skrítið. Ég man að hann talaði um að þetta væri nú eins og úr 1001 nótt. Enda var ekki einu sinni til sími þegar hann var að vaxa úr grasi. Nú er hann komin til ömmu, Heiðu og Silvíu og allra sinna ætt- ingja sem á undan fóru. Ég er viss um að það hafa verið fagnaðar- fundir þegar hann mætti á svæðið og er ekki frá því að það hafi verið sungið eitt lag eða tvö. Ég er þakklát fyrir að hann var afi minn og fyrir þær minningar sem ég á. En ég kem til með að sakna hans og ömmu. Ég var svo heppin að fyrir al- gjöra tilviljun var ég heima á Ís- landi þegar hann dó. Og fékk mitt tækifæri til að kveðja hann og eiga við hann smá spjall í einrúmi áður en hann kvaddi. Fyrir það er ég líka þakklát. Nú húmi slær á hópinn þinn, nú hljóðnar allur dalurinn og það, sem greri á þinni leið um því nær heillar aldar skeið. Vor héraðsprýði horfin er: öll heiðríkjan, sem fylgdi þér. Og allt er grárra en áður var og opnar vakir hér og þar. Þér kær var þessi bændabyggð, þú battst við hana ævitryggð. Til árs og friðar – ekki í stríð – á undan gekkstu í háa tíð. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. En styrrinn aldrei stóð um þig, – hver stormur varð að lægja sig, er sólskin þinnar sálar skein á satt og rétt í hverri grein. Loks beygði þreytan þína dáð, hið þýða fjör og augnaráð; sú þraut var hörð – en hljóður nú í hinsta draumi brosir þú. Svo hvíl þig, vinur, hvíld er góð, – vor hjörtu blessa þína slóð. (Jóhannes úr Kötlum) Samúðarkveðjur sendum við dætrum hans, tengdasyni, barna- börnum, barnabarnabörnum og barnabarnabarnabörnum. Sigrún, Ruud, Friðrik Jensen og Sigríður Ósk, Noregi. Nú skil ég stráin, sem fönnin felur og fann þeirra vetrarkvíða. Þeir vita það best, sem vin sinn þrá, hve vorsins er langt að bíða. Að haustnóttum sá ég þig sigla burtu, og svo kom hinn langi vetur. Þótt vald hans sé mikið, veit ég þó, að vorið, það má sín betur. Minningin talar máli hins liðna, og margt hefur hrunið til grunna … Þeir vita það best, hvað vetur er, sem vorinu heitast unna. En svo fór loksins að líða að vori og leysa mjallir og klaka. Ég fann, að þú varst að hugsa heim og hlaust að koma til baka. Þú hlýtur að vera á heimleið og koma með heita og rjóða vanga, því sólin guðar á gluggann minn, og grasið er farið að anga. (Davíð Stefánsson) Elsku afi, takk fyrir allt. Hvíl í friði. Rúnar Þór, Kristín, Eyþór, Hafsteinn Egill, Logi Geir, Brimar Ingi og Guðrún Valdís. Elsku afi minn er látinn, hann varð hundrað ára. Afi var fimm- tugur þegar hann eignaðist fyrsta barnabarnið og það var ég. Hann leyfði mér og öllum börnum yf- irleitt að njóta skemmtilegra frá- sagnarhæfileika sinna og söng mikið af vísum sem komu, að manni fannst, endalaust upp úr honum. Afi var sjómaður en eftir að hann hætti á sjónum fór hann að rukka fyrir olíufélag sem seldi olíu á húsin, fyrir daga Hitaveitu Suðurnesja. Þá fengum við afa- börnin oft að rúnta með honum um bæinn. Það voru skemmtileg ævintýri í barnshuganum að fá að sitja aftast í farangursrými sta- tion-bílsins. Afi var mikill banda- maður minn þegar ég var barn. Ég átti það til að gera ýmsar gloríur sem enduðu með einhverj- um refsingum. Þá kom afi og bjargaði stráknum og tók hann með sér á rúntinn. Afi var mikill veiðimaður og kveikti á veiðieðl- inu í unglingnum svo um munaði með skemmtilegum veiðisögum bæði af sjó og með stöng í ám og vötnum. Þessi samvera mín með afa átti örugglega stóran þátt í því að ég gerðist sjómaður og síðar skipstjóri og með sæmilega veiði- dellu. Afi Þórólfur var mjög virk- ur í störfum Karlakórs Keflavíkur og kórs Eldri borgara en síðustu æviár sín var hann hættur að geta stundað þetta áhugamál sitt. Elsku afi minn, ég minnist þín með miklu þakklæti fyrir allt. Gunnar Þór Friðriksson. Elsku pabbi minn er látinn 100 ára að aldri. Það eru vissulega forréttindi að hafa foreldra sína hjá sér svona lengi, mömmu í 59 ár og pabba í 70 ár. Þau ættleiddu mig 10 daga gamla og svo sann- arlega hefði ég ekki getað átt betri foreldra og fjölskyldu. Pabbi var sjómaður þegar ég var að alast upp og stundum lengi í burtu, en þegar hann var í landi var hann óendanlega umhyggju- samur, ég man hvað mér fannst gott þegar hann kom og settist á rúmstokkin hjá mér og kenndi mér bænir eða sagði mér sögur. Hann hafði líka mjög gaman af því að lesa og ég á ótal minningar um okkur þrjú, mömmu að sauma út, mig að teikna og pabba að lesa uppúr þjóðsögum Jóns Árnason- ar, þá var ekki sjónvarp og í minn- ingunni var oftast bandbrjálað veður, rafmagnslaust og kveikt á kertum. Pabbi var frá Ólafsfirði og hélt mikilli tryggð við frændur sína þaðan og fóru þau mamma ófáa veiðitúra með þeim.Þau áttu mörg góð ár á Laugarvatni í hjól- hýsinu sínu, nutu þess að gera þetta annað heimili sitt hlýlegt að utan sem innan. Þegar pabbi kom í land þá fór hann í karlakórinn með Friðrik tengdasyni sínum. Eftir að hann hætti að vinna þá var kórinn honum allt, þau mamma fóru í nokkrar utanlands- ferðir með kórnum og þegar mamma féll frá hjálpaði það hon- um mikið að geta farið á æfingar og kóramót, og eins og það væri ekki nóg þá gekk hann líka í kór eldri borgara, Eldey, og söng í nokkur ár í tveimur kórum. Hann var gerður að heiðursfélaga í Karlakór Keflavíkur og var elsti kórfélagi landsins, 93 ára gamall. Á 100 ára afmælinu var hann orð- inn lasburða. Kórinn kom og söng honum til heiðurs en það sem mér er minnisstæðast er þegar hann lá fyrir í rúmi sínu og þrír félagar komu og sungu fyrir hann og hann söng með, það var ógleym- anleg stund og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka félögum í Karlakór Keflavíkur fyrir mikla tryggð og væntumþykju við pabba minn. Við fjölskyldan met- um það mikils og vil ég líka þakka starfsfólkinu á Hlévangi fyrir góða umönnun og hlýju, sérstak- lega þessa síðustu daga sem hann lifði. Elsku pabbi minn, nú ertu kominn til allra þeirra sem farnir voru á undan þér, ég veit það hef- ur verið stór hópur sem tók á móti þér, mamma, litla dóttir ykkar, Heiða mín og Sylvía Lind ásamt foreldrum þínum og systur. Ég vil þakka þér fyrir yndislegu æskuna mína og hvað þú varst börnum, barnabörnum mínum mikill afi, Friðrik biður fyrir hlýjar kveðjur og þakkar vináttu ykkar síðustu 50 árin. Guð blessi þig, elsku besti pabbi minn. Þín dóttir, Sigríður. Elsku afi minn, núna ertu far- inn yfir í betri heim og færð loks að hitta ömmu eftir 13 ára bið. Minningarnar sem ég á með þér, eru mér mikils virði og eru þær óendanlegar. Ég var aðeins 4 ára þegar amma dó en með þér fékk ég 17 ár ævi minnar þrátt fyrir að þú værir 83 þegar ég fæddist og varst þú svo hress eftir aldri að mér fannst þú ekki gamall. Þú sóttir mig á leikskólann þegar mamma komst ekki og geri aðrir betur. En nokkrar minningar man ég betur en aðrar, eins og Þórólfur Sæmundsson ✝ HöskuldurJónsson síma- verkstjóri fæddist í Sólgarði í Vopna- firði 9. nóvember 1926 og ólst þar upp. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sólvangi í Hafnarfirði 1. des- ember 2014. Foreldrar hans voru Lilja Sveins- dóttir, f. 10. júní 1895 á Gnýstöð- um í Vopnafirði, d. 1970, og Jón Höskuldsson, f. 2. september 1893 í Blöndugerði á Héraði, d. 1972. Systkini hans eru Ólafur, f. 1923, d. 1990, Sveinn, f. 1925, d. 1990, Anna, f. 1929, og Gunn- ar, f. 1932, d. 1997. Höskuldur kvæntist, 22. febr- úar 1953, Guðríði Jónsdóttur frá Skeggjastöðum á Jökuldal, f. 4. maí 1931, d. 28. desember 2013. Foreldrar hennar voru Anna Grímsdóttir, f. 21. ágúst 1904 á Galtastöðum í Hróarstungu, d. 1996, og Jón Björnsson, f. 19. júní 1903 í Hnefilsdal á Jök- uldal, d. 1986. Börn Guðríðar og Höskuldar eru: 1) Fjóla, f. 1953. Maki Jón Guðmundsson, f. 1951. Sonur hennar er a) Höskuldur A. Friðgeirsdóttir, f. 1987. Son- ur þeirra er Markús Axel, f. 2012. b) Friðrik Freyr, f. 1986. Maki María Óskarsdóttir, f. 1987. Synir þeirra eru Hallmar Gauti, f. 2010, og Kári, f. 2012. 4) Anna Höskuldsdóttir, f. 1964. Maki Árni Jón Þorgeirsson, f. 1961. Synir þeirra eru a) Logi, f. 1988. Maki Sigurbjörg Sandra Pétursdóttir, f. 1994. b) Hösk- uldur, f. 1990. Maki Margrét Eir Árnadóttir, f. 1994. c) Þorgeir, f. 1997. Höskuldur ólst upp á Vopna- firði. Hann var í sveit á sumrin, m.a. mörg sumur á Vakurs- stöðum. Hann var við nám í Hér- aðsskólanum á Laugum í Reykjadal, veturna 1944-1946. Upp úr miðri síðustu öld hóf hann störf í símavinnu hjá Pósti og síma. Símavinnan hófst snemma vors við Hornafjörð og unnið var langt fram eftir hausti. Vinnusvæðið náði frá Skeiðará í suðri og allt norður í Námaskarð. Vinnuflokkurinn bjó í tjöldum og síðar skúrum sem fluttir voru úr stað eftir því sem verkinu vatt fram. Hann þurfti því að dvelja langdvölum fjarri fjölskyldunni. Hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1996. Útför Höskulds fer fram frá Áskirkju í Reykjavík í dag, 12. desember 2014, kl. 13. Daði Magnússon, f. 1977. Maki Þórunn Rafnar Þorsteins- dóttir, f. 1979. Börn þeirra eru Dagur, f. 2009, og Hrefna, f. 2011. Börn þeirra Jóns eru b) Finn- bogi Rafn, f. 1982. Maki Hulda Sigurð- ardóttir, f. 1987. Dóttir þeirra er Þórhildur, f. 2012. c) Ingibjörg Lilja, f. 1987. Maki Hlynur Jens Smith, f. 1990. Dóttir þeirra er Viktoría, f. 2012. 2) Jón Höskuldsson, f. 1956. Maki Svanhildur Þeng- ilsdóttir, f. 1964. Þau slitu sam- vistir. Dætur þeirra eru a) Krist- ín, f. 1988. Maki Heiðar Ingi Ólafsson, f. 1984. Þeirra börn eru Mikael Bjarki, f. 2009, og Karen Antonía, f. 2013. b) Guð- ríður, f. 1991. Maki Egill Ein- arsson, f. 1980. Dóttir þeirra er Eva Malen, f. 2014. Maki Jóns var Magnea Hrönn Stef- ánsdóttir, f. 1958, d. 2012. Maki Jóns er Lára Sverrisdóttir, f. 1964. 3) Gauti Höskuldsson, f. 1961. Maki Hafrún Friðriks- dóttir, f. 1961. Synir þeirra eru a) Óðinn, f. 1982. Maki Guðrún Elsku besti pabbi minn. Það er komið að kveðjustund. Það kom ekkert á óvart að ekki væri liðið ár frá andláti mömmu, þið voruð samrýmd og er garðurinn ykkar dæmi um það. Þú náðir að verða 88 ára gamall en þá var komið nóg. Heilsu þinni hrakaði síðastliðin ár. Við feng- um að hafa þig nálægt okkur síðasta árið. Fyrir það þakka ég. Við pabbi vorum afar náin og allt frá því að ég flutti til Reykjavíkur, svo vestur, heyrð- umst við í síma daglega, alveg þangað til að þú misstir málið fyrir um fjórum árum. Það var sárt, þig langaði svo oft að segja mér eitthvað en gast það ekki og mikið saknaði ég þess að heyra ekki röddina þína. Síð- ustu heilu setninguna sem þú sagðir við mig, geymi ég fyrir mig. Ég veit ekki um betri mann en þig. Alltaf svo lund- góður, blíður, hjálpsamur og bara svo innilega hjartahlýr maður. Þú helgaðir starfsævina Pósti og síma. Samviskusamur og duglegur. Ég var svo lánsöm að fá alltaf að vera með þér. Ég vildi bara alltaf vera með þér. Eitt sinn varstu að stússa undir þeim „hvíta“ á planinu og ég um það bil fjögurra ára, settist inn í bílinn, gerði mér lítið fyrir og ýtti á startarann, þá varstu snöggur undan bílnum og kippt- ir mér út. Ef ég gerði eitthvað af mér var skammaryrðið „álf- urinn þinn“. Ekki verra en það. Síðan þurfti að draga silung- anetin í Lónunum með Olla, kartöfluræktin var árleg. Einn- ig fórum við í línutúra, en það þurfti að sinna loftlínum fyrir Póst og síma. Ég hékk í talíunni ásamt Gunnari og auðvitað reyndi ég að fara upp staurinn í símaskónum, en þeir voru of þungir fyrir svona stelpuskott. Gamla pósthúsið, Hjallurinn og Tengigrindin voru viðkomustað- ir. Alltaf á Land Rover sem mér þótti bæði ljótur og leið- inlegur en þú tókst alltaf upp hanskann fyrir greyið. Sumarið 1972 vorum við öll í símavinnu- skúrum og mamma var mat- ráðskona þetta sumar. Það var gaman. Söknuðurinn var nefni- lega svo mikill fyrir pabba- stelpu þegar þú fórst á vorin í símavinnuna. Ég á fallegu bréf- in frá þér sem oft voru rituð um borð í MS Heklu eða Esju. Sem betur fer var símaskúraútgerð- inni lokið á mínum unglings- árum. Þú varst einstaklega góður pabbi, þú fórst með okkur á skauta upp á Buslu og varst af- ar laginn að renna þér. Þú smíðaðir kofa handa mér í ein- um grænum hvelli, það varð nú að ganga, þú smíðaðir tré- dúkkuvagn sem málaður var ljósblár. Öllu var reddað. Heima ryksugaðir þú og skúraðir þeg- ar mamma var að vinna á laug- ardögum í frystihúsinu, þetta var ekki algengt á þessum tíma. Þú gerðir við allt og nýttir vel, það kenndir þú mér líka. Þú hafðir yndi af útiveru, stundaðir rjúpnaveiðar og laxveiði og að ógleymdum öllum gönguferðun- um. Þú varst einnig góður afi, strákarnir mínir héldu svo upp á ykkur mömmu, þeir minnast oft ferðanna út í bílskúr til að skera af hákarlabeitunni. Þeir voru aðeins tveggja ára þegar þessi athöfn hófst. Nafnið „afi síns“ kemur frá nafna þínum Höskuldi, því þú sagðir alltaf „elsku litli vinurinn hans afa síns“. Við gerðum oft grín, hlóg- um og sögðum sögur. Þú tókst þig aldrei hátíðlega, og tróðst engum um tær. Hæverskur, hæglátur og prúður að eðlisfari. Þannig vil ég vera vitandi það að nú ert þú kominn til mömmu og í góðu formi. Sætti ég mig við orðinn hlut þó ég hafi oft haldið að þú yrðir alltaf hér. Elsku pabbi minn, það breytir því ekki að ég sakna þín sárt og verð alltaf pabbastelpa. Þín Anna. Kæri Höskuldur, Nú er kominn tími til þess að kveðja, í bili allavega. Takk fyr- ir að vera það einstaka ljúf- menni sem þú varst. Höskuldur var ekki maður margra orða en markmið hans í lífinu virtist vera að allir aðrir hefðu það sem best. Hann var fjölskyldumaður og hans nán- ustu voru alltaf í fyrsta sæti, ekki hann. Ég kom fyrst í heim- sókn til hans og Guðríðar í Snæfell þegar ég var 18 ára. Eins og ég átti eftir að venjast var tekið vel á móti manni með mat og drykk. Enginn skyldi líða skort þegar kom að eldhús- inu í Snæfelli og virtist búrið ótæmandi. Ekki var óalgengt að útí bílskúr hengi hákarlsbiti og kannski reykt læri til þess að narta í. Höskuldur hafði gaman af útivist, hann var göngugarpur og naut þess að vera úti í nátt- Höskuldur Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.