Morgunblaðið - 12.12.2014, Page 30

Morgunblaðið - 12.12.2014, Page 30
✝ Kjartan Har-aldsson fæddist í Reykjavík hinn 14. október 1965. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu mið- vikudaginn 3. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Pálína Kjart- ansdóttir, f. 12.3. 1931, d. 18.5. 2010, og Haraldur Her- mannsson, f. 16.7. 1928, d. 5.10. 1999. Systkini Kjartans eru: Halldóra, f. 31.9. 1951, d. 12.5. 17.12. 1966. Foreldrar hennar eru Magnús Arnar Sigtryggs- son, f. 17.5. 1948, d. 15.10. 1990, og Louisa Biering, f. 16.7. 1948. Synir Kjartans og Sigríðar eru Magnús Arnar, f. 31.12. 1991, unnusta Elísabet Halldórsdóttir, f. 21.10. 1994, og Bergþór, f. 2.9. 1996, kærasta Hekla Sif Hregg- viðsdóttir, f. 15.5. 1997. Kjartan vann við ýmis tækni- og þjónustustörf og þar af lengst hjá Epli. Síðastliðið ár rak hann bílaleiguna Icerental 4x4 ásamt Hjörleifi Björnssyni. Hann var mikill fjölskyldumað- ur og hafði mikinn áhuga á sam- kvæmisdansi, tónlist, ljós- myndun og tölvum. Útför Kjartans fer fram frá Seljakirkju í dag, 12. desember, kl. 13. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. 2003, maki Ingólfur Arnarsson, f. 25.8. 1943, d. 25.10. 2007, Sigrún, f. 14.5. 1954, maki Jón Ást- valdsson, f. 24.1. 1951, Bergþóra, f. 1.10. 1958, maki Guðmundur Ómar Þráinsson, f. 8.9. 1957, Herdís, f. 25.3. 1963, maki Skafti Ingi Stef- ánsson, f. 9.6. 1957. Hinn 14. janúar 1989 giftist Kjartan Sigríði E.M. Biering, f. Ég boða þér fegurð sem opna mun gáttirnar allar er yndisleg birta svo mögnuð frá sál þinni skín, í draumi þú vakir, því þegar þú höfðinu hallar þá heilsa þér englar – já, þannig er veröldin þín. (Kristján Hreinsson) Sá sorglegi atburður átti sér stað að morgni miðvikudagsins 3. desember síðastliðins að tengdasonur systur okkar varð bráðkvaddur á heimili sínu að- eins fjörutíu og níu ára. Kjartans er sárt saknað og það er erfitt að hugsa til þess að hann skuli vera dáinn, hann var alltaf svo hlýr, ljúfur og hjálpsamur við alla. Við systkinin erum Kjartani svo þakklát fyrir það hversu góð- ur og trygglyndur hann var við systur okkar, tengdamóður sína, þegar hún missti skyndilega eig- inmann sinn aðeins fjörutíu og tveggja ára gömul. Hann var yngri systkinum Sigríðar einnig stoð og stytta og sú tryggð og góðvild hefur alltaf haldist. Kjartan og Sigríður eignuðust tvo yndislega drengi, þá Magnús Arnar og Bergþór, sem eru augasteinar foreldra sinna. Þau hafa búið sér fallegt og hlýlegt heimili í Fljótaseli 22. Kjartan átti mörg áhugamál og eitt af þeim eru smíðar, hann var búinn í gegnum árin að taka húsið sitt svo vel í gegn, en hann fann sér alltaf eitthvað til. Synirnir Magnús Arnar og Bergþór lærðu dans í Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar og voru mjög efnilegir dansarar, þeir tóku þátt í danskeppnum og unnu til margra verðlauna. Kjartan og Sigríður voru mjög dugleg að fylgja þeim eftir í dansinum, þau hjónin voru ein af stofnendum Dansíþróttafélags Kópavogs og Kjartan var fyrsti formaður félagsins, en síðan tók Sigríður við af honum. Þau voru alla tíð mjög samstillt og virk í þessu félagi og Kjartan alveg einstaklega duglegur við að taka myndir þegar þeir synirnir voru að keppa og einnig veitti hann fé- laginu mikla aðstoð. Það eru erfiðir tímar fram- undan hjá fjölskyldunni í Fljóta- selinu og einnig hjá systrum Kjartans, þeim Sigrúnu, Herdísi og Bergþóru, sem nú kveðja einkabróður sinn sem var yngst- ur systkinanna. Sorgin og sökn- uðurinn er mikill hjá mörgum því Kjartan var vinmargur og vinsæll maður. Elsku Sigríður, Magnús Arn- ar, Bergþór og Louise, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra og megi góður Guð styðja ykkur og vernda. Hvíl í friði, Kjartan okkar. Helga Biering, Moritz Wil- helm Biering, Guðrún Biering, Bertha Biering og fjölskyldur. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Eins og þruma úr heiðskíru lofti sló fregninni um andlát Kjartans bróður hér niður. Ung- ur fjölskyldufaðir í blóma lífsins hrifsaður til æðri máttar á fal- legum miðvikudagsmorgni. Að- ventan, tími ljóss og friðar, ný- gengin í garð og fjölskyldan í Fljótaselinu full tilhlökkunar vegna væntanlegrar fjölskyldu- ferðar erlendis. Það er svo óraunverulegt og jafnframt svo erfitt að sætta sig við það að ferðin hans varð önnur en ætlað var. Kjartan bróðir var lifandi eft- irmynd föður síns, trygglyndur eiginmaður og fyrirmynd sona sinna. Minningarnar streyma fram og skarðið í fjölskyldunni er skarð í hjartanu. Minningarn- ar geymum við í brjóstum okkar. Það er sárt að þurfa að kveðja þig svona snemma, elsku bróðir, og biðjum við algóðan Guð að styrkja Sigríði eiginkonu þína og elsku syni þína, Magnús Arnar og Bergþór, um ókomna tíð. Þín er sárt saknað, elsku bróðir. Þínar systur, Herdís, Bergþóra og Sigrún. Yndislegur tengdasonur minn er fallinn frá í blóma lífsins og hans er sárt saknað. Kjartan kom inn í líf fjölskyldu okkar Magnúsar fyrir tuttugu og átta árum og varð strax eins og eitt af okkar börnum alveg frá fyrstu kynnum. Kjartan var mikill vin- ur barnanna minna og barna- barna, þau elskuðu að fá að vera nálægt honum því fjörið var svo mikið í kringum hann hvar sem hann var, hann var alltaf hrókur alls fagnaðar og fékk alltaf alla til þess að hlæja. Sigríður og Kjartan bjuggu um tíma í Svíþjóð, en á meðan þau bjuggu þar reið mikið áfall yfir fjölskylduna mína því þá deyr Magnús Arnar, eiginmaður minn, skyndilega. Kjartan var eins og klettur við hliðina á mér og reyndist mér svo vel í þessari miklu sorg sem ég gekk í gegn- um ásamt börnunum mínum, ég get eiginlega fullyrt að það er Kjartani mínum að þakka að ég komst út í lífið aftur. Það er búið að vera yndislegt fyrir mig að fá að hafa Kjartan svona mikið í kringum mig, því ég hef búið með þeim í Fljótaselinu til margra ára. Fjölskylda Kjartans hefur einnig reynst mér vel, hann átti yndislega foreldra og systur sem dýrkuðu hann og dáðu, þennan ljúfa og glaðværa einkason sinn. Kjartan og Sigríður eiga tvo yndislega drengi, þá Magnús Arnar og Bergþór, þeir horfa nú á eftir föður sínum sem var þeim svo mikill vinur og studdi þá í einu og öllu sem þeir tóku sér fyrir hendur, sorgin er mikil hjá okkur öllum í dag. Elsku Sigríður mín, Magnús Arnar, Elísabet, Bergþór og Hekla, við munum aldrei gleyma Kjartani því minning hans lifir að eilífu. Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa, þótt hann deyi.“ (Jóh. 11.25) Kveðja. Þín tengdamamma, Louisa Biering. Látinn er í blóma lífsins kær vinur og mágur, Kjartan Har- aldsson, fyrir aldur fram. Mér var mjög brugðið þegar ég heyrði af láti hans og átti erfitt með að trúa því. Við Kjartan kynntumst fljót- lega eftir að ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir Sigrúnu systur hans. Þá var Kjartan að- eins sjö ára gamall. Urðum við strax góðir félagar og vinir. Fylgdi hann mér oft og iðulega þegar ég fór í keppnisferðir. Ekki var síður gaman þegar við skutum upp flugeldum á gaml- árskvöld í Fellsmúlanum. Þegar hann hafði aldur til fór hann að vinna hjá mér og varði það í nokkur ár eða þangað til hann fór að vinna í tölvugeiranum. Hann var traustur og áreiðan- legur í vinnu, hjálplegur og greiðvikinn. Alltaf tilbúinn að rétta mér hjálparhönd þegar þess þurfti. Við áttum gott spjall saman þegar ég fór með honum upp á Keflavíkurflugvöll þar sem hann sýndi mér aðalstöðvar bílaleig- unnar sem hann hafði sett á fót ásamt félaga sínum. Allt gekk vel og bjart framundan, þremur dögum síðar er hann allur. Kjartan mun ekki lengur banka upp á svalamegin með hundana sína í kaffi og spjall. Ég mun sakna hans mikið. Ég votta Siggu konu hans, sonunum Magnúsi og Bergþóri og öðrum aðstandendum samúð mína. Jón Ástvaldsson, mágur. Mikið ofboðslega finnst mér skrítið að sitja hér og skrifa minningargrein um þig Kjartan minn. Þegar pabbi minn dó gekkstu mér í föðurstað og hefur alltaf verið til staðar fyrir mig. Þú leist alltaf á mig sem einn af drengjum þínum og er ég mjög stoltur af því. Ég fyllist samt meira stolti að hafa fengið að hafa þig í lífi mínu þó svo ég hefði viljað hafa þig miklu lengur með okkur. Þú varst alltaf virki- lega góður við hana Ásdísi Örnu mína og varst henni meiri afi en frændi og hafðir gaman af því hlutverki. Núna verður frekar tómlegt að litast um í Fljótasel- inu án þín. Ég veit að pabbi hef- ur tekið vel á móti þér og að þú ert kominn á mjög góðan stað. Ég mun sakna þess mikið að geta ekki hringt í þig þegar mig vantar aðstoð eða bara til að spjalla, koma í Fljótaselið, setj- ast niður með þér og spjalla. Þegar ég hugsa aftur í tímann um allt það sem við höfum gert saman situr alltaf hjá mér sú minning sem er mér líka góð lífs- regla, að maður er fljótari að tapa virðingu en að vinna sér inn virðingu. Einnig sagðir þú mér hver munurinn væri á því að eiga vini, kunningja eða félaga. Ég er ótrúlega glaður með það hversu mikinn tíma við áttum saman í sumar og gerir það þann tíma ennþá dýrmætari. Ykkur Hjör- leifi leiddist ekki mikið öll þau uppátæki sem ég átti til með að gera eða jafnvel segja. Þú varst einn af þeim sem geta allt sem þeir vilja gera, þú smíðaðir fal- legan og stóran pall í bakgarð- inum hjá ykkur, allar viðgerð- inar sem þú gerðir á húsinu og baðherbergið sem þú tókst í gegn uppi á lofti. Ég hlæ enn þann dag í dag að því þegar þú varst að brjóta upp úr gólfinu inni á baðinu til að koma klósett- rörunum fyrir, en þá sat ég á hæðinni fyrir neðan þig að spjalla við fjölskylduna þegar ég finn steypuna í lofinu byrja að detta á mig. Viðbrögð mín voru þau að stökkva upp til þín og fá þig til að hætta því þú værir að fara í gegnum gólfið. Þegar þig langaði að læra á eitthvað eða afla þér frekari upplýsinga gerð- ir þú það annaðhvort með því að fara á youtube eða lesa bók, eins og að læra á myndavélina, eitt- hvað sem tengdist tölvum, net- inu, heimasíðum og get ég talið helling fleira. Þú varst gull af manni og góð fyrirmynd. Ég skal lofa þér því að gera mitt allra besta í að ann- ast systur mína, Magnús og Bergþór. Þú gerðir það fyrir mig og ég lofa að gera það fyrir þig. Elsku Sigríður, Magnús og Bergþór, við munum komast í gegnum þessa erfiðu tíma sam- an, með því að standa þétt saman og halda áfram að lifa lífinu lif- andi. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þinn mágur, skásonur og vin- ur, Styrmir Magnússon. Okkar ástkæri frændi og vin- ur, Kjartan Haraldsson, hefur kvatt þessa jarðvist langt um aldur fram, einungis 49 ára að aldri og alls ekki ferðbúinn. For- eldrar okkar voru systkini, þ.e. Unnur mamma okkar og Har- aldur pabbi hans. Við bjuggum meira að segja í sama húsi í Fellsmúlanum þegar við vorum börn og unglingar. Hann vinstra megin með sínu fólki og við hægra megin með okkar fólki ásamt ömmu Halldóru. Anna systir þeirra bjó í næstu götu með sínu fólki og var því að von- um mikill samgangur á milli fjöl- skyldnanna og oft kátt á hjalla þegar fólkið hittist. Kjartan var kátur og skemmtilegur, bæði raunsær og ljúfur og ávallt vin- sæll meðal vina sinna. Hann átti það til að taka nokkur dansspor og heillaði þá allar skvísur, ekki síst þær gömlu. Kjartan kom stundum yfir í spjall til ömmu og mömmu og átti hann það til að spyrja, áður en hann rölti til baka, hvað væri í matinn hjá okkur og fékk þá iðulega skraut- leg svör. Kjartan var alla tíð umvafinn kvenfólki því hann átti fjórar frá- bærlega fjölhæfar og skemmti- legar systur sem hugsuðu vel um hann. Þær sjá nú á bak ynd- islegum bróður. Fyrir allmörgum árum varð hann heillaður og ástfanginn af yndislegri konu, henni Sigríði, og eignuðust þau tvo flotta stráka, þá Magnús Arnar og Bergþór. Þau sjá nú á eftir eiginmanni, föður og besta vini. Kjartan skil- ur eftir sig mikið tómarúm og það í jólamánuðinum þegar hátíð ljóss og friðar gengur í garð. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðju til stórfjölskyld- unnar með von um að allir góðar vættir gæti þeirra. Kæri frændi, við minnumst þín með hlýhug og þakklæti. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Una Guðlaug Haraldsdóttir og fjölskylda, Heba Gunnrún Haraldsdóttir. Það er þungbært að skrifa minningargrein um einn besta vin okkar, sem nú er fallinn frá langt fyrir aldur fram, erfitt að sætta sig við að svo ungur maður með stór framtíðaráform sé hrif- inn burt í blóma lífsins. Það er margt sem flýgur í gegnum hug- ann á þessari sorgarstundu og margs að minnast um góðan dreng. Sérstaklega minnisstætt er þegar við vinahjónin ákváðum í sameiningu að gaman væri að prófa að búa erlendis. Á þeim tíma voru Kjartan og Sigga barnlaus en við með Írisi Ósk okkar eins árs. Eftir hverju var að bíða og af hverju ekki að drífa sig? Eftir rúma viku voru strákarnir flognir á vit ævintýr- anna í leit að vinnu og húsnæði. Tveimur mánuðum seinna vorum við öll sameinuð í Svíþjóð, þeir komnir í vinnu hjá Volvo og bún- ir að útvega húsnæði fyrir fjöl- skylduna. Árið sem við áttum saman í Svíþjóð var mjög skemmtilegt og þroskandi fyrir okkur öll. Þegar við giftum okkur árið 1995 ákváðum við öll í samein- ingu að Kjartan og Sigga kæmu með okkur í brúðkaupsferðina okkar (annað kom ekki til greina).Vegna óviðráðanlegra orsaka komumst við ekki á til- teknum tíma, þannig að þau flugu út á undan okkur. Við lent- um svo tveimur dögum seinna og þá var tekið á móti okkur með blómum og fíneríi líkt og við værum konungborin. Það var ekki að spyrja að því þegar Kjartan og Sigga voru annars vegar. Við áttum saman tvær dásamlegar vikur í Flórída þar sem margt var brallað og eru ófáar minningarnar og alltaf stutt í hláturinn þegar ferðin er rifjuð upp. Fátt fannst okkur skemmti- legra en að fara saman í útilegur og sumarbústaði með fjölskyld- um okkar. Margar sumarbústað- arferðir eru í minningunni með endalausu sprelli og hlátri sem varðveitir skemmtilegar minn- ingar sem við vitnum oft í. T.d. piparkökuferðin mikla þegar við bökuðum og skreyttum pipar- kökur fram eftir degi og end- uðum svo daginn á því að allir fengu maska í andlitið og gúrkur á augun. Eða þegar við mokuð- um okkur út um svaladyrnar á Laugarvatni og bjuggum til fal- lega koníaksstofu í snjónum. Auk sumarbústaðaferðanna fórum við saman víðsvegar um landið með tjaldvagninn eða felli- hýsið – og hjólhýsið. Ein skemmtileg minning – og sú síðasta – er frá því að við vor- um hjá Kjartani og Siggu í mat stuttu áður en kallið kom. Að venju var staðið í ströngu, mikið spáð og spekúlerað og nostrað við matinn eins og Kjartani var einum lagið. Þvílíkur hátíðarmat- ur sem borinn var fram það kvöld. Mikið var spjallað og hleg- ið fram eftir nóttu Við varðveitum minningu Kjartans í hjörtum okkar. Við þökkum af einlægni einstakar og óteljandi samverustundir í gegn- um tíðina. Elsku Sigga, Magnús Arnar, Bergþór og aðrir ástvinir. Megi Guð veita ykkur styrk til að tak- ast á við framtíðina. Hinsta vinakveðja. Lilja og Hilmar. Í lok sumars 1990 var ég sem oftar eitthvað tvístígandi með sjálfan mig. Það sá fyrir endann á sumarvinnunni og framtíðin var óráðin. Ég hafði engin áform og var tilbúinn til þess að bruna að næstu blindhæð á lífsins leið og takast á við nýjar áskoranir. Þar sem ég var á rölti niður Frakkastíginn fékk ég hug- myndina. Nokkrum dögum síðar bankaði ég fyrirvaralaust uppá hjá Siggu og Kjartani á Kan- elgötunni í Gautaborg. Kjartan kom til dyra, brosti og hristi hausinn. Hann brosti af því að hann þekkti mig og hann hristi hausinn af því að þetta kom hon- um ekkert á óvart. Og ég spurði „Hæ, get ég fengið gistingu- ?….og svo þarftu eiginlega að redda mér vinnu, já og húsnæði“. Ég semsagt gerði mig heima- kominn hjá þeim í nokkrar vikur á meðan ég var að koma mér fyr- ir. Kjartan leiðbeindi mér dyggi- lega í gegnum kerfið, útvegaði mér vinnu og kenndi mér nokkur orð í sænsku. Þegar kom að því að fara í viðtal hjá leigumiðlun sagði hann „Nú bjargar þú þér sjálfur drengur, þú notar sænsk- una sem ég er búinn að kenna þér og ef þú talar ensku þarna inni þá lem ég þig“. Mig minnir jafnvel að hann hafi aðeins potað í öxlina á mér á meðan. Þegar ég hugsa til baka get ég fullyrt að þetta er sú alhollasta og vinaleg- asta „hótun“ sem beint hefur verið að mér. Kjartan varð þarna valdur að einu stærsta þroska- skrefi sem ég hef tekið á ævinni. Og hann vissi það. Tónninn í röddinni og rólyndið í fasinu veitti mér um leið sjálfstraust sem ég byggði á. Í mínum huga var þetta Kjartan. Alltaf pollró- legur en jafnframt ákveðinn, vilj- ugur að miðla og leiðbeina og svo var húmorinn aldrei langt undan. Núna er Kjartan ekki lengur hér og það er bæði erfitt og sárt að horfast í augu við það. Með þess- um orðum er ég að reyna að finna frið og einhverskonar sátt með það að Kjartan, minn kæri vinur sé horfinn á braut. Dauð- inn er alltaf þeim sárastur sem eftir standa. Takmarkalausri sorginni og þungum harminum er misskipt og er mér í því samhengi hugsað til Siggu vinkonu minnar. Nú er það hennar að berjast í gegnum brimskafla harms og sorgar ásamt sonum þeirra Kjartans. Ég veit úr hverju sú kona er gerð og þau munu í sameiningu sigrast á þessari þrekraun og halda fram veginn með bjarta minningu Kjartans í hjörtum sínum. Ég sendi þeim, sem og öllum öðrum vinum og vanda- mönnum Kjartans mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Trausti Már Ingason. Ég kynntist Kjartani fyrst í kringum aldamótin þegar leiðir okkar lágu saman í gegnum Tæknival. Við hittumst svo ekki aftur fyrr en árið 2008 þegar ég réð hann til starfa sem þjónustu- stjóra hjá Epli. Þetta starf var ekki fyrir hvern sem er því vöxturinn var mikill í framhaldinu og þurfti því sterkan mann til þess gera öllum til geðs. Kjartan stóð sig afar vel í erfiðu umhverfi og lét ekki mót- Kjartan Haraldsson HINSTA KVEÐJA Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) Hilmar Ólafsson. 30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.