Morgunblaðið - 12.12.2014, Page 32

Morgunblaðið - 12.12.2014, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2014 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Ýmislegt Ódýr blekhylki og tónerar Verslun í Hagkaup, Smáralind og Fjarðargötu 11, Hafnarfirði Blekhylki.is, sími 517 0150                   Klapparstíg 44 • Sími 562 3614 Jólaóróar frá PLUTO Margar gerðir Verð kr. 1.795 Teg. 2975 Einstaklega vandaðir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41. Verð: 16.800 Teg. 2921 Einstaklega vandaðir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41. Verð: 15.670 Teg. 2921 Einstaklega vandaðir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41. Verð: 15.670 Teg. 2881 Einstaklega vandaðir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41. Verð: 15.800 Teg. 2942 Einstaklega vandaðir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41. Verð: 15.800 Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook.                            !   "  Smáauglýsingar UNDIR ÞESSU MERKI SIGRAR ÞÚ. Hálsmen úr silfri 5.900 kr., gulli 49.500. Silfur m. demanti 11.500, gull m. demanti 55.000, silfurhúð 3.500. Póstsendum. ERNA, Skipholti 3, s. 552 0775, i Verslun ✝ Ólafur ÓskarLárusson myndlistarmaður fæddist á Selfossi 10. september 1951. Hann lést á Land- spítalanum 4. des- ember 2014. Ólafur var sonur Ásdísar Lárusdóttur, f. 1925, d. 2006, og Lárusar Óskars Ólafssonar, f. 1911, d. 1987. Bróðir Ólafs er Hannes Óskar Lárusson, f. 1955, myndlistarmaður. Eiginkona Ólafs er Sigrún Bára Friðfinns- dóttir, f. 3. janúar 1950. Dóttir sonur þeirra er Baltasar Tinni, f. 2009. Börn Sigrúnar Báru af fyrra hjónabandi eru: Stefán Hrafn Hagalín, f. 1971, Frið- finnur Örn Hagalín, f. 1973, Guð- mundur Már Hagalín, f. 1977, Halldóra Anna Hagalín, f. 1981, og þrettán barnabörn. Ólafur ólst upp í Austur-Meðalholtum og í Hlíðun- um í Reykjavík. Hann lauk námi úr Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands og lá leiðin þaðan til Hol- lands þar sem hann lauk námi frá Atelier ’63, Haarlem. Ólafur kom víða við en ásamt myndlist fékkst hann meðal annars við kennslu, grafíska hönnun og var einn af stofnendum Nýlistasafnsins. Ólafur sýndi víða um heim, bæði með einkasýningum sem og tók hann þátt í ýmsum samsýningum. Útför Ólafs fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag, 12. desember 2014, og hefst athöfnin kl. 13. Ólafs með Steinunni Svavarsdóttur, f. 1950, er Ásdís Hrund Ólafsdóttir, f. 1973, dætur henn- ar eru Steinunn, f. 2002, og María, f. 2004. Dóttir Stein- unnar og stjúpdótt- ir Ólafs er Svava Ingimarsdóttir, f. 1970, synir hennar eru Steinar, f. 1994, og Guðjón Árni, f. 1999. Sonur Ólafs með Valdísi Björk Ósk- arsdóttur, f. 1959, er Davíð Ósk- ar Ólafsson, f. 1982, maki hans Marta Sigmarsdóttir, f. 1982, og Ólafur Lárusson myndlistar- maður lést hinn 4. desember á Landspítalanum eftir erfið veik- indi. Þegar við kynntumst var hann starfsmaður á Kleppsspítalanum og hóf jafnframt nám í Myndlista- og handíðaskólanum. Við bjugg- um síðan í kjallaranum á Kirkju- teignum og eignuðumst eina dótt- ur, Ásdísi Hrund, og fyrir átti ég Svövu. Kirkjuteigurinn var nokk- urs konar félagsmiðstöð ungra myndlistarnema og manna. Var oft margt um manninn, mikið skrafað, hlustað á tónlist og glatt á hjalla. Ólafur vildi afla sér frekari menntunar og lá leiðin til Hol- lands. Hann hlaut styrk þaðan eft- ir að hafa sótt um skóla, Atelier ’63 í Haarlem, og var þar við nám í tvö ár. Seinna árið dvöldum ég og dæturnar þar líka. Á efri hæðinni á Bichop Callier- straat bjó ungur myndlistarmaður að nafni Kees Visser og tókst með okkur góð vinátta. Má segja að hann hafi elt okkur heim til Ís- lands, en þangað hafði hann aldrei komið. Hann var kominn með ís- lenska kærustu og má segja að þau hafi búið í tjaldi í kartöflu- garðinum hjá okkur Óla um sum- arið. Við ferðuðumst mikið með þeim og fórum í veiðiferðir á Snæ- fellsnes, ferðir í Krýsu- og Herdís- arvík, alltaf með tjald, sex saman á Austin Mini og þótti ekkert til- tökumál, enda vorum við með góða toppgrind. Óli hlaut þann heiður fyrir Ís- lands hönd að taka þátt í Parísar- tvíæringnum fljótlega eftir nám. Ekki fannst honum lítill heiður heldur að því þegar við vorum við stödd í Chicago, heyrðum djass- tónlist og fórum inn á staðinn. Kom í ljós að uppáhaldsdjassleik- arinn hans Óla, Oscar Peterson, var að spila ásamt Nils Henning. Settist Oscar þar hjá nafna sínum og bauð okkur upp á einn. Leiðir okkar Óla lágu síðar hvors í sína áttina, þótt alltaf væri tenging, bæði vegna vina, við- burða og fjölskyldu. Ég kveð Ólaf Óskar Lárusson og votta Sigrúnu og börnum hennar mína dýpstu samúð. Steinunn Svavarsdóttir. Ólafur Lárusson var fram eftir aldri, og ef til vill alla tíð, feiminn og hlédrægur, en leitaði þó ákveð- inn eftir því sem hugur hans stóð til hverju sinni og vílaði ekki fyrir sér kröpp kjör ef efni stóðu lágt. Hann stefndi ákveðið að því marki að verða eftirtektarverður lista- maður og hreif félaga sína strax með sér í stundarhrifningu, snarsnúningi tímaskortsins, á villtu flugi vímunnar með arnsúg í vængjum og eld í augum. Hann var brautryðjandi í listfengri framsetningu með ljósmyndavél- ina í hlutverki skrásetjarans, þvert á kyrralíf, uppstillinguna, hann notaði líkama sinn til að ná óvæntum niðurstöðum, rannsak- aði samspil ljóss og skugga í svart- hvítum myndaseríum, stundum í herbergi þar sem ekkert truflaði andrýmið sem hann sóttist eftir. Að sumu leyti var þetta meinlæta- full sköpun, hreinsandi, en jafn- framt frjó. Þetta var á námsárun- um í Haarlem í Hollandi þar sem Ólafur nam við frægan listaskóla, Atelier ’63. Ég á stórt verk eftir hann frá þeim tíma, gert af 12 ljós- myndum, þar sem hann veltir sér á gólfi fram og til baka, frá einum vegg til annars, með salarhornið í baksýn, inn og út úr myndinni, en líkamsformið er ekki í fókus því linsan náði ekki sveiflunni svo út- koman varð mismunandi hallandi hringform eins og ærlsadraugur hefði stokkið fram til að ljá honum framandi blæ. Límið á bakhliðum sumra myndanna hefur sýrt í gegn og gefur framhliðunum gull- ið yfirbragð, leyndardómsfulla slikju, sem er ekki síðri ferskri hugmyndinni. Litróf listamanns- ins var einfalt, frumlitirnir, sá rauði þó ívíð frekari til fjörsins en hinir. Hann málaði fágaðar svart- hvítar ljósmyndaraðir, aðrar voru með áfestum rauðum rósum, sjálfsmyndir, hann stillti saman í syrpu filmum af andlitum vina og kunningja. Nefni líka til sögunnar hættulega gjörninga þar sem hann gekk á upphengda röð af glerjum og skallaði af afli svo þau hrukku sundur á gólfið, en stjarf- ur óhugur í andlitum nærstaddra, blandinn aðdáun. Eitt sinn erlend- is vafinn sárabindi svo hann sá ekkert frá sér, hvarf inn í tíma- leysið, sagði bara eitt orð á stangli og makaði málningu framan í sig. Ókunnugt fólkið í salnum var hissa, allt í einu viðstatt svo heim- ullega athöfn, næstum því trúar- lega, persónulega, en dró sig samt sífellt nær, heillað af frumleik listamannsins, og ákaft lófaklapp í lokin, sem var óþarft því það trufl- aði stemninguna og rauf galdur stundarinnar. Ég vil biðja nær- stadda og fjarstadda listunnend- ur, og alla þá sem tjá sig í einlægni og horfa til framtíðar, að lyfta staupi fyrir indælum vini og fé- laga, nú þegar hann hefur dregið sig í hlé og yfirgefið sviðið. Megi sú stund rísa sem fyrst að við fáum litið framúrstefnu Ólafs Lár- ussonar á einum stað, annaðhvort í Listasafni Íslands eða Listasafni Reykjavíkur, þó ekki væri nema til að minnast við þau og kynna fyrir ungum myndlistarmönnum. En þó einkum til þess að listasaga þjóðarinnar fái loksins hlutdeild í þeim brothætta draumi sem er ígildi snilldarinnar. Níels Hafstein. Ólafur Óskar Lárusson mynd- listarmaður, eða Óli Lár eins og hann var kallaður af félögum í list- inni, var strax sem nemandi í Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands áberandi. Á þeim árum var ekki komin til sögunnar kennsla í listfræði samtímans, en Óli Lár sankaði að sér bókum um nútíma- list og las þær spjaldanna á milli og var ólatur að miðla úr þeim brunni til samnemenda sinna. Hann fór ekki troðnar slóðir, en var bæði djarfur og kraftmikill í sköpun sinni. Hann hætti námi við Mynd- lista- og handíðaskólann árið 1974, um leið og við undirrituð, eftir að- eins þriggja ára nám því skólinn bauð ekki upp á það nám sem hann þráði. Hugur hans stóð hærra og hélt hann rakleitt til náms í akademíunni Atelier 63 sem var þá meðal eftirsóttustu listaskóla í Hollandi. Óli Lár var ötull við alls kyns tilraunir og var framarlega í flokki þeirra sem unnu með nýja miðla, gjörningalist og innsetningar. Hann notaði ljósmyndir mikið í verkum sínum og fór þar ótroðnar slóðir. Verkin vöktu eftirtekt og sýndi hann í kjölfarið víða. Árið 1977 var honum boðið að sýna á Biennale de Paris. Á þeim tíma var Parísar Bíennallinn, eins og við kölluðum hann, mikilvægasta sýning sem ungir listamenn gátu látið sig dreyma um að taka þátt í. Og í framhaldinu fékk hann mörg sýningartækifæri erlendis. Hann var félagslyndur og héld- um við nokkur samnemenda hans hópinn og stóðum fyrir sýningum saman um nokkurt skeið. Hann tók mikinn þátt í starfi myndlist- armanna og uppbyggingu mynd- listarvettvangs. Þegar hann kom heim frá námi kenndi hann einnig við Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands við nýlistadeildina sem þá var verið að setja á stofn, og hann átti þátt í stofnun Nýlistasafnsins og var þar formaður stjórnar um tíma og var einnig félagi í Mynd- höggvarafélaginu í Reykjavík. Óli hafði ríka sköpunargáfu og margt í list hans var nýlunda, hvort heldur var hér á landi eða erlendis. Minnisstæður er einn af gjörning- um hans sem hann flutti í stóra salnum í Nýlistasafninu í kringum 1980. Salurinn var myrkvaður, en lýstist upp með óreglulegu millibili með strópóskópísku ljósi og há- vært abstrakt hljóð fyllti hann. Fyrir miðjum endavegg var glært plast strengt yfir ferkantaða timb- urgrind líkt og búr. Sjálfur var hann inni í búrinu og hóf að mála á plastið, og skvetta litum á það allt um kring þannig að úr varð nokk- urs konar þrívítt expressionískt málverk sem þróaðist yfir í lifandi málverk og Óli varð eins og lifandi hluti þess. Sjónrænt áreitið var yf- irþyrmandi. Áberandi þáttur í list Óla á fyrri hluta ferils hans er ögrun, en líka hefting og sundrun. Sum ljós- myndaverk sín risti hann í gegn með beittum hníf, og í gjörningum lagði hann talsvert á líkama sinn, eins og þegar hann braut stórar glerplötur með höfðinu. Í nokkr- um verkum lét hann vefja sig inn í grisju eða pappírslengjur ásamt öðrum elementum eins og smáum trjágreinum eða plöntum þar til hann líktist helst púpu. Svo hófst hann handa að brjótast úr viðjun- um, oft eins og hæglát barátta ætti sér stað. Óli var í senn ljúflingur og upp- reisnarmaður. Lífsferill hans var að sumu leyti líkur verkum hans. Hann missti smám saman heilsu og háði það honum við myndlist- arstörf hin síðari ár. Hægfara bar- átta varð hans hlutskipti. Við kveðjum félaga okkar með virðingu og færum ættingjum hans okkar dýpstu samúðarkveðjur. Þór Vigfússon, Rúrí. Ólafur Óskar Lárusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.