Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Qupperneq 110

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Qupperneq 110
dagurinn setur óafmáanleg spor í sjúkt sálarlíf stelpunnar sem finnst hún verða fullorðin þann dag. Fullorðin merkir hörð og köld á máli ís- bjargar, en enginn gefur sig á vald hinu illa nema verða veikur á geði. Samskipti Isbjargar við foreldrana móta öll skipti hennar við aðra. Gagnvart karlmönnum kann hún ekki aðra hegðun en að niðurlægja sig — hún er læst í lífsmunstri mellunnar. Uppreisn hennar felst í hefnd sem aldrei gefur von um betra líf, enda hefur voninni fyrir löngu verið stolið frá henni. A föður sínum hefnir hún sín með því að drepa staðgengil hans, á móðurinni hefnir hún sín með því að leggjast með veijand- anum, sem er líka ástmaður móðurinnar. Það er raunar ennþá flóknara mál en svo, því veijand- inn er líka dómari ísbjargar, hann einn veit alla hennar sögu og á að vita að hún er manneskja þrátt fyrir allt. En einnig hann tekur líkama í stað trúnaðar á jafnréttisgrundvelli, verður enn ein föðurímyndin sem bregst. Þá á Isbjörg hvergi hæli lengur nema á meyj- areyjunni sinni, þar sem hún getur verið alein í mannauðum blekkingarheimi með minning- unni um drenginn sem hún eignaðist en gat ekki átt. Eg heiti ísbjörg. Ég er Ijón er öfgafull saga þar sem skilin eru óljós milli veruleika og óra. En einmitt með því að beita öllum ráðum í stíl og frásagnarhætti verður sagan raunverulega sönn. Hafði ísbjörg ástæðu til þess að myrða mann? Bæði saga Gróu á Leiti og félagsfræði- leg skýrsla gætu sannfært mannúðarfullt fólk um það, en innlifún höfundar í sál söguhetj- unnar gerir betur en að sannfæra. Hún gefur lesendum kost á að lifa sjálfir lífi Isbjargar um stund. Einhveijir munu hafna tækifærinu vegna þess hvað sagan er óhugnanleg og hetja hennar óbærileg, sundraður einstaklingur, margvilltur í völundarhúsi tilfinninganna. En þeir sem gleyma sér og láta trylltan og seiðandi stíl sög- unnar laða sig inn í hugarheim Isbjargar sleppa ekki samir þaðan aftur. Silja Aðalsteinsdóttir Sumar enn Stefán Hörður Grímsson. Yfir heiðan morgun. Mál og menning 1989. 64 bls. Það voru ánægjulegar fféttir sem bárust í fjar- lægar sýslur að Stefáni Herði Grímssyni hefðu verið veitt fyrstum skálda ný íslensk bók- menntaverðlaun fyrir ljóðabókina Yfir heiðan morgun. Ef slík verðlaun teljast eiga rétt á sér á annað borð fer ekki milli mála að val verð- launahafa hefði varla getað tekist betur til. Stef- án Hörður er eitt sérstæðasta ljóðskáld þessarar aldar og engan veginn sestur í helgan stein. Hann hefur nú á síðustu níu árum tvöfaldað ljóðabókatölu sína, og er fjarri því að hann sé farinn að slá af þeim ströngu kröfum sem hann hefur alltaf gert til skáldskapar síns. Þessi níu ár hafa líka verið sannkallað blómaskeið á skáld- skaparferli Stefáns, og afköstin með ólíkindum miðað við það sem áður var þegar tveir áratugir gátu liðið milli bóka. Næstsíðasta ljóðabók Stefáns Harðar, Tengsl, var ekki fyrr komin út en það fóru að birtast í tímaritum spánný og afar forvitnileg kvæði. Þau eru sem sagt nú komin út á bók sem hefúr undirtitilinn „Ljóð ’87-’89“. I ljóðabókum Stefáns allt frá Hliðinni á slétt- unni má greina tvo efnisþræði sem verða sífellt fyrirferðarmeiri og vefjast saman margvíslega; annar þeirra má segja að fjalli um óskilgrein- anleg undur tilverunnar, hinn um skammsýni og hroka mannsins á jörðinni. í tveimur síðustu bókunum er náttúrueyðing í kjölfar ofdrambs og gróðahyggju mannsins þannig með áleitnari yrkisefnum og birtist í ýmsum tilbrigðum. Náttúran hefur ævinlega verið Stefáni hug- stæð. I fyrstu bókunum virðast náttúrulýsingar reyndar fyrst og fremst notaðar til að endur- spegla „innra landslag", tilfmningar og hugar- ástand skáldsins, auk þess sem langflestar líkingar eru þangað sóttar. Meðal séreinkenna síðustu bókanna þriggja má teljast hve mikið er þar um hreinar náttúrulýsingar. Upphafsljóð þessarar bókar er eitt dæmi þessa: 108 TMM 1990:4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.