Morgunblaðið - 30.12.2014, Síða 1

Morgunblaðið - 30.12.2014, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 0. D E S E M B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  304. tölublað  102. árgangur  ELDSPÚANDI DREKAR OG SPOR- LÉTTIR ÁLFAR FORN FERRARI DÝRASTUR HEILLAÐIST AF ÍSLENSKU LÖGREGLUNNI BÍLAR KOM FRÁ SUÐUR-AFRÍKU 2DÓMUR UM HOBBITANN 41 FORTE blanda meltingargerla MÚLTIDOPHILUS þarmaflóran hitaþolin www.gulimidinn.is Flugeldar Urðu fyrst vinsælir eftir árið 1980 en hátindinum náði salan árið 2007.  Sú hefð að Íslendingar skjóti upp flugeldum um áramót er ekki mjög gömul, að sögn Lúðvíks Georgsson- ar, framkvæmdastjóra KR Flug- elda ehf. í hjáverkum. Hann segir að innflutningur og sala flugelda hafi verið í höndum einkaaðila fram undir 1970. Þá tóku björg- unarsveitir og önnur félagasamtök að hasla sér völl. Flugeldasalan magnaðist eftir 1980 en aldamóta- árið 2000 var slegið nýtt met. Áfram hélt vöxturinn og náði salan nýjum hátindi árið 2007. Við efna- hagshrunið 2008 tvöfaldaðist flug- eldaverðið vegna gengisfalls krón- unnar og nú kaupir fólk færri flugelda en stærri. »4 Ekki löng hefð fyrir miklum flugelda- skotum hér á landi Skattheimta á uppleið » Tryggingagjald hækkaði um 1,8 ma. milli ára, eða um 2,6%, og hefur hækkað að raunvirði um 14,7 ma. frá 2008. » Tekjuskattur var lagður á 16.332 félög í fyrra. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skattskyldur hagnaður fyrirtækja var tæpir 268 milljarðar króna í árs- lok 2013, eða 43,7 milljörðum meiri en árið áður. Fyrir vikið jókst skatt- ur á hagnað fyrirtækja um 8,9 millj- arða milli ára 2012 og 2013. Skattskyldur hagnaður hefur ekki verið jafn mikill frá 2008 þegar hann var 291,4 milljarðar króna. Fjallað er um þessa aukningu í nýjustu Tíund, riti Ríkisskattstjóra. Segir þar að skattskyldur hagn- aður hafi aukist um 19,5% á milli ára að raungildi. Opinber gjöld á lögaðila voru rúmur 181 milljarður í fyrra og er það 54,7 milljörðum eða 43,3% meira að raunvirði en árið 2012. Stór hluti er þar tilkominn vegna sérstakra skatta á fjármálafyrirtæki sem jukust um 43,7 ma. á milli ára. Í Tíund kemur einnig fram að yfir- færanlegt tap félaga náði hámarki 2011 er það fór í 6.836 milljarða og hafði það lækkað niður í tæpa 3.515 milljarða í árslok 2013. Leiddar eru líkur að því að af- skriftir eigi þátt í því að yfirfæran- legt tap hefur minnkað svo mikið. Mesti hagnaður frá 2008  Skattskyldur hagnaður fyrirtækja var tæpir 268 milljarðar króna á árinu 2013  Yfirfæranlegt tap félaga minnkaði um rúma 3.320 milljarða frá 2011 til 2013 MTapið fór í 6.836 milljarða »6 Morgunblaðið/Golli Kjör Íslenskir hjúkrunarfræðingar fá hærri laun í Noregi og Svíþjóð. Dæmi eru um að hjúkrunarfræðing- ar hér á landi fái atvinnutilboð frá norskum fyrirtækjum í sms-skila- boðum. Þá er líka hringt í hjúkrunar- fræðinga og þeim sendir tölvupóstar með atvinnutilboðum oft á dag. Ólafur G. Skúlason, formaður Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir að hann fái að lágmarki fimm tölvupósta á dag með atvinnutilboð- um. Þá segir hann hundruð hjúkr- unarfræðinga hafa leyfi til að starfa í Noregi og hafi þeim fjölgað verulega árið 2011. Þá fer þeim hjúkrunar- fræðingum sem starfa utan land- steinanna fjölgandi, en Ólafur full- yrðir að hjúkrunarfræðingar sem kjósa að vinna í Noregi séu allavega að tvöfalda tekjurnar sínar. Auk þess séu Svíar byrjaðir að leita að hjúkrunarfræðingum á íslenskri grundu og hafi hækkað laun og hag- rætt vinnuvikunni til að fá fleiri hjúkrunarfræðinga til Svíþjóðar. Þá eru Norðmenn einnig að lokka til sín hjúkrunarfræðinga í Færeyj- um með háum launum og er talið að haldi sú þróun áfram geti það haft al- varleg áhrif á heilbrigðiskerfið í Færeyjum. isb@mbl.is »19 Norðmenn bjóða betri kjör  Hjúkrunarfræðingar fá fjölmörg atvinnutilboð á dag Byrjað var að taka á móti efni í áramótabrennur landsmanna í gær en eins og venjan er er fyrst og fremst óskað eftir timbri. Jólatré þykja einn- ig ágætis eldsmatur en plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi í köstinn. Hætt verður að taka á móti efni þegar brennurnar eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi kl. 12.00 á gamlársdag. Eldur verður almennt borinn að köstunum kl. 20.30 á gamlárskvöld. Brennurnar bíða þess að loga glatt Morgunblaðið/RAX Byrjað var að taka á móti efni í áramótabrennur í votviðrinu í gær  Erlendur Gíslason, hæsta- réttarlögmaður og skiptastjóri þrotabús Baugs, segir umræður um útgönguskatt á greiðslur til kröfuhafa gömlu bankanna farnar að hafa áhrif á verðmæti krafna á hendur bönk- unum. Hann segir almennt gang- verð krafna á hendur bönkunum um 20-25% af nafnvirði en að fyr- irætlanir um útgönguskatt hafi áhrif á verðmæti krafna. »22 Skattur hefur áhrif á verðmæti krafna  Enn er öflugt hraungos í Holu- hrauni. Breyt- ingar á siginu í öskju Bárðar- bungu benda til að kvikuflæði undan eldstöð- inni sé meira en helmingur af því sem var í byrjun gossins, sem hófst fyrir 4 mánuðum. Hraunið er orðið 83 ferkílómetrar að stærð og segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur að ef fram fari sem horfi taki þónokkra mánuði upp í ár fyrir gosið að hætta. »4 Nýja hraunið orðið 83 ferkílómetrar Enn í ham Eldgosið í Holuhrauni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.