Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 ✝ BrynjólfurBergsteinsson fæddist 2. janúar 1928 á Ási í Fellum Hann lést á sjúkra- deildinni á Egils- stöðum 21. desem- ber 2014. Brynjólfur ólst upp á Ási hjá for- eldrum sínum, Bergsteini Brynj- ólfssyni og Mar- gréti Jónsdóttur, en þar bjó einnig föðurbróðir hans Gutt- ormur Brynjólfsson með sína fjölskyldu. Systkini Brynjólfs voru 7; Rósa, Þorbjörn, Einar Óskar (látinn), Þorbjörg, Ragnar (látinn), Jón og Ragn- heiður (látin). Brynjólfur kvæntist árið 1955 Sigrúnu Jónsdóttur, f. 3. nóvember 1934, d. 24. ágúst 2000. For- eldrar hennar vou Jón Ólafs- son og Anna Runólfsdóttir, bændur á Hafrafelli, systir bjuggu á Hafrafelli með hefðbundinn búskap, hann starfaði mikið fyrir sitt sveitarfélag var t.d. oddviti um árabil, var lengi í sókn- arnefnd og meðhjálpari við Áskirkju, þá starfaði hann einnig í ýmsum félagasam- tökum, var hagyrðingur góð- ur og á efri árum starfaði hann með Félagi eldri borg- ara á Fljótsdalshéraði og var formaður þess félags um hríð. Árið 2002 tókst sam- band með Brynjólfi og Ástu Magnúsdóttur, f. 8. október 1941. Eiginmaður hennar var Ásgrímur Ingi Jónsson, hann lést árið 1973. Þeirra synir eru Jón Bragi (látinn) Magnús Björn, Kári Borgar og Helgi Hlynur. Brynjólfur og Ásta keyptu saman íbúð við Miðvang á Egilsstöðum árið 2007 og þar bjuggu þau, þar til fyrir rúmu ári er Brynjólfur flutti á sjúkra- deildina á Egilsstöðum þar sem hann lést Útför Brynjólfs fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag, 30. desember 2014, kl. 11. Jarðsett verður í heimagraf- reit á Hafrafelli. Sigrúnar er Guðlaug Erla. Börn Brynjólfs og Sigrúnar eru: 1) Margrét, gift Gunnari Smára Björgvinssyni, þeirra börn eru; a) Brynjólfur Rúnar, giftur Helgu Björgu Garðarsdóttur þau eiga 3 börn, b) Bergvin Fannar, giftur Snjólaugu Svönu Þorsteins- dóttur, þau eiga 3 börn, c) Rut Berglind, í sambúð með Gunnari Þór Jónssyni, d) Jón- ína Björt. 2) Jón Rúnar, 3) Bergsteinn, kvæntur Önnu Heiðu Óskarsdóttur, þeirra börn eru; a) Emil Atli, b) Óð- inn Breki, í sambúð með Katrin Hrönn Guðnadóttur og c) Una Sólveig, í sambúð með Jóhannesi Bergi Gunnarssyni. Brynjólfur og Sigrún Kallið er komið … Nú er blessaður pabbi minn og tengdapabbi búinn að kveðja þetta jarðlíf. Svo þreyttur sem hann var orðinn, hefur hann örugglega verið hvíldinni feginn. Hér verður lífshlaup hans ekki rakið, held- ur notað eitt ljóðið sem hann samdi, okkur finnst það segja allt sem segja þarf. Fagur var fjallahringur, – fyrst þá augað leit Dæmdi svo drengur slyngur, – dáði strax þann reit. Æskuárin líða, – oft með góðan feng. Fljótsdalshérað fríða – faðmaði þennan dreng. Léttstígur lék um grundir, – við Lagarins þunga nið. Lét ekki líðandi stundir, – lokka sig út á mið. Sá í sveitinni víða, – söngfugl á birkigrein. Fljótsdalshérað fríða – faðmaði vaxinn svein. Nam hann þá list að lifa, – við land sem græða þarf. Menntun manns að skrifa, – var meitluð í hans starf. Oft var strit að stríða, – og stefnu- leysið fann. En Fljótsdalshérað fríða – faðmaði stæltan mann. Oft borgir í heimi hafa, – heillað marga stund. Fullorðinn var ekki í vafa, – valdi Héraðsgrund. Ól þar sinn aldur blíða, – alsæll við hlið hvers manns Um Fljótsdalshérað fríða – var ferðasaga hans. Í ellinni sat í sæti, með sigurbros á vör Léttur af lífsins kæti, – lagði í hinstu för Sjálfsagt mun sálin hlýða, – á söng frá englafans En Fljótsdalshérað fríða – faðmar nú beinin hans. (B.B.) Með þakklæti og hlýju kveðjum við. Elsku Ásta, þú ert ljósið sem kom inn í líf pabba og okkar allra þegar mamma hafði kvatt, við óskum þess að Guð og góðar vættir fylgi þér áfram í lífinu. Við sendum samúðar- kveðjur til allra sem sakna núna og viljum þakka öllum þeim sem létt hafa honum lífið síðustu árin, sérstaklega starfsfólki í heimahlynningu og á Sjúkradeildinni á Egilsstöð- um. Guð veri með okkur öllum. Margrét og Gunnar. Elsku pabbi. Rúnar á fyrsta ári. Óskir þínar, ungi vinur minn, eru fáar, það menn vilja halda. En þú vilt reyna að rétta hlutinn þinn á refilstigum lífsins harða og kalda. Þú hrópar bæði hátt og skýrt og snjallt og heimtar mömmu til þín, litli vinur. Já, mamma kemur. Mamma þér er allt, í mömmu faðmi létt þitt hjarta stynur. (B.B.) Kveðja, Jón Rúnar. Það er margs að minnast þegar maður sest niður og skrifar þessar línur til þín, afi minn. Við gerðum svo margt saman. Núna síðustu ár var það yfirleitt eitthvað í kringum rollurnar, þú elskaðir að sjá og finna lyktina af þeim. Þetta síðasta ár hefur þú aðeins get- að komið til þess að fylgjast með þeim og þá til dæmis síð- asta vor þegar Linda systir sótti þig og kom með þig upp í hlöðu til að kíkja í sauðburðinn og eins að síðasti rúnturinn sem ég fór með þig, var hingað heim að Hafrafelli, þá keyrði ég inn í hlöðu alveg að roll- unum, þá ljómaðir þú yfir því að geta aðeins opnað gluggann og kíkt á þær. Svo var það hrúturinn sem þið Helga völd- uð saman hann Gráni, þú mundir alltaf eftir honum og fékkst að sjá hann. Önnur minning kemur upp í hugann, það er þegar við bjuggum bara tveir saman, þá keyrðum við hvor annan á böll og þorrablót, það er ef við vorum ekki að fara saman á þær skemmtanir. Það eru svo margar minningar sem koma upp í hugann, t.d. þegar ég var að keyra suður til Reykjavíkur fyrir Samskip þá hringdir þú alltaf í mig á milli kl. 12 og 1 að nóttu til, bara til þess að fylgjast með mér hvernig mér gengi og hvernig veðrið væri. Þegar að ég var lítill gutti og var með þér í fjár- húsunum að kveðast á við þig með því litla sem ég kann af vísum, og síðan þegar ég var bara polli að fara með þér á Reyðarfjörð á Bensanum að ná í áburð og einnig í smala- mennskum. Þetta verður allt öðruvísi að geta ekki hitt þig nánast á hverjum degi þar sem að við vorum alltaf í svo góðu sambandi. Þegar ég sat hjá þér þegar þú varst sem veikastur helgina áður þú kvaddir var ég ekki almennilega viss hvort þú vissir af mér en ég sagði þér að ég væri búinn að setja einn hrút saman við rollurnar, þá varstu nú ekki verri en það að þú leist á mig og sagðir: „Hvaða hrút settir þú í?“ Það var eiginlega svona það síðasta sem við ræddum, en það var gott að fá að vera hjá þér þeg- ar þú kvaddir. Þín verður sárt saknað, elsku afi minn. Hvíldu í friði og Guð blessi þig. Þinn nafni, Brynjólfur Rúnar Gunnarsson. Hann Brynjólfur, tengdaafi minn, er látinn, hann kvaddi Brynjólfur Bergsteinsson✝ ÁstríðurHansdóttir fæddist 3. ágúst 1942 á Gríms- stöðum í Álftanes- hreppi. Hún and- aðist á Sjúkrahúsi Keflavíkur 16. desember 2014. Foreldrar hennar voru Hans I. Meyvantsson, fæddur 23. janúar 1913, d. 16. febrúar 1986, og Lára Júlía Sigurðardóttir, f. 11. júlí 1905, d. 30. desember 1995. Systkini Ástu voru S. Halla, fædd 16. nóvember 1935, d. 28. ág. 2010, og Halldór Ingi, fædd- ur 24.12. 1945. 1977 giftist Ásta Hreggviði Eyfjörð Guðgeirs- syni, f. 10.2. 1931, d. 23. nóv- ember 2004. Þau skildu 1986. Ásta átti fyrir 1) Ragnar Þor- láksson, f. 12.2. 1968, barnsfaðir Þorlákur Helgason. Eiginkona Ragnars er Katrín Guðleif Krist- björnsdóttir, f. 7.12. 1977, börn hennar Ástrós Baldursdóttir, f. 22.2. 2000, Kristín Júlíana Bald- ursdóttir, f. 30.9. 2002, Anna Ingibjörg Baldursdóttir, f. 20.4. 2005. Börn Ragnars: a) Guðni Sigþór, f. 17.8. 1993, b) Bjarney Lára, f. 4.9. 1997. Barnsmóðir Berglind Bjarnadótt- ir, f. 9.9. 1973. c) Ás- þór Breki, f. 28.4. 2000, barnsmóðir Solveig Margrét Þórsdóttir, f. 26.4. 1979. d) Viðar Ingi, f. 16.7. 2006, barns- móðir Ágústa Björk Svavarsdóttir, f. 23.2. 1980. Börn Ástu og Hreggviðs: 2) Hólmar Eyfjörð, f. 5.3. 1977. Sambýliskona Krist- jana Sigríður Júlíusdóttir, f. 3.3. 1982. dóttir hennar, Thelma Rut Bjarnadóttir, f. 15.9. 2003. Börn Hólmars og Kristjönu: a) Sara Ósk Eyfjörð, f. 16.10. 2007, b) Tinna Rós Eyfjörð, f.13.12. 2010. Fyrir á Hólmar c) Önnu Láru Fossdal, f. 6.8. 2004, d) Birna Völu Fossdal, f. 30.8. 2006, e) Ás- rúnu Svövu Fossdal, f. 30.8. 2006. Barnsmóðir hans Guðrún Hulda Fossdal, f. 6.9. 1975. 3) Veiga Eyfjörð, f. 21.3. 1981. Maki Baldvin Reyr Gunnarsson, f. 8.2. 1978. Barn hennar, a) Ásta Margrét Karlsdóttir, f. 23.5. 1999, barnsfaðir Karl Halldór Eysteinsson, f. 30.5. 1977. Útför Ástu fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 30. desember 2014, kl. 13. Mig langar að minnast systur minnar, Ástu, sem kvaddi nokkuð snögglega eftir stutta sjúkrahús- legu 16. desember síðastliðinn. Við vorum þrjú systkinin. Halla elst, fædd 1935, látin 2010, Ásta, fædd 1942, og ég, fæddur 1945, al- in upp í fallegri sveit á Grímsstöð- um í Mýrasýslu. Þar var oft mikið um að vera og alltaf voru nokkur aukabörn í dvöl á sumrin eins og tíðkaðist í þá daga en einnig mikil vinna við að hjálpa til við allskonar störf sem fylgdu stóru búi. Ásta var alltaf frekar jákvæð mann- eskja og miklaði ekki hlutina fyrir sér og alltaf var stutt í góða skap- ið. Enda var hún vinur vina sinna og hafði yndi af samskiptum við þá og ákaflega greiðvikin og hjálpsöm. Margt kemur upp þeg- ar litið er yfir farinn veg en fyrst og síðast góðar minningar um systur sem farin er allt of snemma. Eftirlifandi börnum, tengdabörnum og afkomendum þeirra sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Dragðu aldrei til morguns það sem þú getur gert í dag, var lexía mín nú fyrir viku. Tíminn flýgur sem aldrei fyrr á annasömum des- emberdögum. Föstudaginn 12. des. drifum við okkur hjónin til Keflavíkur ásamt einni frænku, að heimsækja Ástu mágkonu á sjúkrahúsið, eftir að hafa frestað því í marga daga vegna veðurs og ófærðar. Hún var svo kát og hress (eins og alltaf) að mér datt ekki í hug annað en hún færi fljótlega heim. Við áttum svo yndislega og skemmtilega stund með henni, spjölluðum um uppvöxtinn í sveit- inni og ég heyrði margar spaugi- legar sögur frá Grímsstöðum. Hún Ásta var uppátækjasöm en líka ótrúlega dugleg og fylgin sér bæði nú og áður og var aldrei neitt að tvínóna við hlutina, heldur ekki núna. Í lífinu skiptast á skin og skúrir og hún tók skúrunum sem áskorun sem hún tókst á við af dugnaði og kvartaði aldrei. Sumir myndu segja að Ásta hefði oft haft lítið handa á milli en það held ég að henni hafi ekki fundist, hún var rík af börnum sínum og barna- börnum og átti ótal vini, enda var yfirleitt alltaf einhver í eldhús- króknum að drekka kaffi og spjalla því hún var líka rík af tíma. Í augnablikinu skil ég alls ekki að hún Ásta sé farin og ég eigi aldrei eftir að hitta hana en erfitt hlýtur þetta að vera fyrir börnin hennar, sérstaklega fyrir Veigu dóttur hennar og Ástu Margréti, dóttur Veigu, sem bjuggu með henni. Það eiga margir eftir að sakna hennar og það hljóta að vera bestu eftirmæli sem hægt er að fá. Sigríður Gunnarsdóttir. Ástríður Hansdóttir ✝ Bryndís Gwen-hwyfar Bond fæddist í Salisbury, Wiltshire, Eng- landi, 12. mars 1984. Hún lést á heimili sínu 23. des- ember 2014. Foreldrar henn- ar eru Diana Von Ancken, f. 24. nóv- ember 1960, og Richard Bond, f. 19. júlí 1947, d. 20. apríl 2002. Fósturfaðir Bryndísar er Grétar Þorgeirsson, f. 23. apríl 1963. Systkini hennar samfeðra eru Mescalina Sunrise Bond, f. 29. júní 1972, Zekiel Bond, f. 28. janúar 1973, Keira Bond, f. 19. ágúst 1974, Alana Eyebright Bond, f. 10. júlí 1977, og Ula Luna Sula Bond, f. 22. mars 1990. Systkini hennar sammæðra eru John Friðrik Bond Grét- arsson, f. 10. febrúar 1987, Sig- urboði Grétarsson, f. 11. júní 1990, og Bjartur Lúkas Grétarsson, f. 3. janúar 1996. Einka- sonur Bryndísar er Grétar Anton Gunnarsson, f. 2 janúar 2009. Barns- faðir hennar er Gunnar Antonsson, f. 28. nóvember 1970. Bryndís bjó í Salisbury Eng- landi með foreldrum sínum fyrstu 4 ár ævinnar. Við skilnað foreldra hennar fluttist hún heim til Grindavíkur á Íslandi. Hún var í Grunnskóla Grinda- víkur og við nám í Fjölbrauta- skólanum í Ármúla þegar hún lést. Hún stundaði ýmis störf en síðast á Waldorf-leikskólanum, Grundarstíg 19, Reykjavík. Bryndís verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 30. desem- ber 2014, kl. 15. Elsku Gwenný okkar. Langt úr fjarlægð, elsku amma mín, ómar hinzta kveðja nú til þín. En allt hið góða, er ég hlaut hjá þér, ég allar stundir geymi í hjarta mér. Ég man frá bernsku mildi og kærleik þinn, man hve oft þú gladdir huga minn. Og glæddir allt hið góða í minni sál, að gleðja aðra var þitt hjartans mál. Og hvar um heim, sem liggur leiðin mín þá lýsa mér hin góðu áhrif þín. Mér örlát gafst af elskuríkri lund, og aldrei brást þín tryggð að hinztu stund. Af heitu hjarta allt ég þakka þér, þínar gjafir, sem þú veittir mér. Þín blessun minning býr mér ætíð hjá, ég björtum geislum strái veg minn á. (Höf. ók.) Þín mamma og pabbi. Mamma, elsku mamma, man ég augun þín, í þeim las ég alla elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég þína hönd, bar hún mig og benti björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt; gengu hlýir geislar gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, mér í huga skín, bjarmi þinna bæna, blessuð versin þín. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best, hjartað blíða, heita – hjarta, er sakna ég mest. (Sumarliði Halldórsson.) Guð geymi þig, elsku mamma mín. Þinn sonur, Grétar Anton. Bryndís Gwenhwyfar Bond ✝ Alúðarþakkir til allra sem sýndu okkur vinarhug og heiðruðu minningu föður okkar og tengdaföður, JÓNS S. EINARSSONAR húsasmíðameistara og kennara í Neskaupstað. Kristín Björg Jónsdóttir, Jón Hlífar Aðalsteinsson, Margrét Jónsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HÖSKULDAR JÓNSSONAR, Kolbeinsgötu 52, Vopnafirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilunum Sólvangi, 3. hæð, og Sundabúð á Vopnafirði. . Fjóla, Jón, Gauti, Anna og fjölskyldur. ✝ Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KJARTANS ÓLAFSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsmanna hjúkrunar- heimilisins Eirar sem sýndu honum hlýhug og önnuðust hann af alúð. Með ósk um gleðilega hátíð og farsæld á nýju ári. Jóhanna Bjarnadóttir, Margrét I. Kjartansdóttir, Sigmundur Einarsson, Ólafur Kjartansson, Nanna Bergþórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.