Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 16
son, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS). Vilja meira svigrúm til skilyrða SÍS hefur kallað eftir lagabreyt- ingu þess efnis að heimild sveitarfé- laga til að skilyrða fjárhagsaðstoð sé víkkuð. „Í sjálfu sér eru engin tíma- mörk á því hversu lengi fólk getur verið á fjárhagsaðstoð. Við höfum óskað eftir því að lögin séu skýrari. Sveitarfélögin hafa kallað eftir því í nokkur ár að það verði gerð laga- breyting þannig að það væri hægt að beita meiri skilyrðum gagnvart fjár- hagsaðstoð til að koma í veg fyrir að fólk festist í þessar fátæktargildru sem fjárhagsaðstoðin óneitanlega er,“ segir Halldór. „Yfirleitt hefur verið atvinnuátak samfara þessu, sem ég tel vera bestu leiðina, en þá er öllum boðin vinna. Þá dettur töluverður hluti út því þá hefur komið í ljós að viðkomandi hef- ur verið á atvinnuleysisbótum og verið að stunda svarta vinnu. Það hefur verið viss sía, að geta boðið upp á atvinnuátak samhliða þessu. Svo þarf fólk sem hefur lengi verið á atvinnuleysisbótum oft hjálp við að komast út á atvinnumarkaðinn.“ Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Um áramótin taka ný lög um at- vinnuleysistryggingar gildi en þá styttist greiðslutímabil atvinnuleys- isbóta úr þremur árum í tvö og hálft ár. Þá er gert ráð fyrir því að breytingin muni spara ríkinu einn milljarð en að kostnaður sveitarfélaga vegna fjárhags- aðstoðar aukist um 500 milljónir. Mismunurinn felst í því að erfiðara er að komast á fjárhagsaðstoð sveit- arfélaga. „Mismunurinn liggur í því að það er miklu erfiðara að komast inn á fjárhagsaðstoð. Í atvinnuleysisbót- unum eru t.d. engar tekjutengingar eða neitt svoleiðis. Þar er bara horft á einstaklinginn, en í fjárhagsaðstoð- inni er horft á heimilið, þannig að ef makinn er með tekjur þá getur verið að viðkomandi eigi ekki rétt á fjár- hagsaðstoð,“ segir Halldór Halldórs- Tímabil atvinnu- leysisbóta styttist  Færri komast á fjárhagsaðstoð Halldór Halldórsson 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hljómplötusala fyrir þessi jól var talsvert minni en í fyrra. Kemur þar til að markaður- inn er að breyt- ast. Æ fleiri kaupa tónlist á netinu eða eftir öðrum slíkum leiðum. Í annan stað sækir fólk tónleika meira en áður og nýtur listar þannig. „Margir af þeim listamönnum sem mest hafa selt síðustu ár, Ásgeir Trausti, Of Monsters and Men, Baggalútur og fleiri gáfu ekkert út að þessu sinni. Þetta dregur heildarsölu ársins nið- ur. Eigi að síður komu á þessu ári út nokkrar plötur sem seldust vel eða í um og yfir 5.000 eintökum sem telst mjög gott,“ sagði Eiður Arnarson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra hljómplötuútgefenda. Nákvæmar tölur um plötusölu ársins koma þegar líður á janúar. Eigi að síður liggur fyrir að met árs- ins eiga SG-hljómplötur; þriggja diska pakki með 75 dægurlögum sem Svavar Gests gaf út á löngum útgáfuferli sínum. Næst á eftir komu plöturnar Með vættum með Skálmöld, Aría með óp- erusöngvaranum Gissuri Páli Giss- urarsyni, Í desember með Stefáni Hilmarssyni og 80 ár með Ragnari Bjarnasyni. Þá fékk Páll Rósinkranz ágætar viðtökur, en ferilsplata hans 25 ár seldist vel og einnig dúetts- plata þeirra Margrétar Eirar; If I needed you. Eldra fólkið vill áfram plötur Góð sala á SG-plötunum og geisla- diski Ragnars Bjarnasonar vekur athygli, enda er á þeim tónlist sem ætla má að höfði einkum til fólks sem komið er yfir miðjan aldur. Í þessu sambandi getur Eiður Arn- arson þess að þrátt fyrir nýja tækni, svo sem netkaup á tónlist sem ungt fólk hefur tileinkað sér, haldi eldra fólk sig við geisladiskana og kaupi þá. Um Stefán Hilmarsson gildi að hann eigi aðdáendur á öllum aldri. Hann hafi líka verið nánast einn um hituna nú hvað jólaplötur varðar. Tónleikar með lögum á plötunni hafi verið fjölsóttir og því hafi góð sala á jólaplötu Stefáns ekki verið tilviljun. Netkaup meiri og fleiri á tónleika  SG-hljómplötur eru á toppnum Plötur » Í Plötutíðindum voru auglýstir um 150 titlar. » Yfir árið komu út alls um 200 hljómplötur. » Metsala á plötum í dag er 5.000 til 6.000 plötur. Fyrir áratug var talan um helmingi hærri. Eiður Arnarson Morgunblaðið/Árni Sæberg Ragnar Platan seldist vel og margir mættu á tónleika söngvarans vinsæla. Starfsmenn Mílu unnu í gærkvöldi að því að koma á bráðabirgðateng- ingu á ljósleiðaranum milli Borgar- ness og Ólafsvíkur, eftir að hann tók í sundur í miðri Kaldá, á móts við Haukatungur og Fíflholt. Að sögn Sigurrósar Jónsdóttur, upplýsingafulltrúa Mílu, er talið að ljósleiðarinn hafi slitnað vegna vatnavaxta í ánni. Taldi hún líklegt að bráðabirgðatenging yrði jafnvel komin fyrir miðnætti í gær. Hún segir að fyrir vikið hafi net- samband og gsm-samband tíma- bundið fallið niður á Snæfellsnesi en samband um talsíma haldist óbreytt. Slitið varð kl. 13.20 í gær og tók nokkurn tíma að koma vinnuvélum á staðinn. Sigurrós seg- ir það munu taka lengri tíma að ljúka fullnaðarviðgerð. Af vettvangi Netsamband fór úr skorðum á Snæfellsnesi eftir hádegi í gær. Snæfellsnesið missti netsamband

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.