Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Guðríður Helgadóttir er landsmönnum að góðu kunn en húnhefur verið með sjónvarpsþætti um garðrækt frá árinu 2003,fyrst með Kristni H. Þorsteinssyni á RÚV. Hún var með
garðyrkjuþætti í fjögur ár á ÍNN og gerði þar í kringum 100 þætti
og síðustu tvö sumur gerði hún tvær þáttaraðir á RÚV. „Líklega
verður ekki framhald á þessum þáttum á RÚV í bili en kannski býð-
ur Ingvi Hrafn á ÍNN mér opinn faðminn.“ Guðríður er staðarhald-
ari á Reykjum í Ölfusi og er yfir starfs- og endurmenntunardeild
Landbúnaðarháskóla Íslands. Hún kennir enn fremur á garðyrkju-
brautum Landbúnaðarháskólans sem eru starfræktar á Reykjum
þar sem gamli Garðyrkjuskóli ríkisins var.
Fyrir utan garðyrkju eru áhugamál Guðríðar að sjálfsögðu fjöl-
skyldan en hún hefur líka gaman af bakstri, handavinnu og ljós-
myndun. „Svo er ég mikill lestrarhestur og las nú um jólin Öræfi eft-
ir Ófeig Sigurðsson. Hún var alveg frábær, það er svo gaman að lesa
og skellihlæja um leið. Höfundurinn kemst svo skemmtilega að orði
og svo ég á ættir að rekja úr Skaftafellssýslunni langt aftur í aldir
og kannast við sum karaktereinkenni sem lýst er í bókinni.“ Eigin-
maður Guðríðar er Finnbjörn Aðalvíkingur Hermannsson, formað-
ur Byggiðnar. Börn þeirra eru Ingibjörg Brynja 11 ára og Brynhild-
ur Erla 9 ára. „Svo býr hjá okkur barnabarn Finnbjarnar, Aldís
María Bjarnadóttir 10 ára.“
Guðríður Helgadóttir er 45 ára í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Á vettvangi Guðríður við hliðina á grenitré á Reykjum en grenið er
dautt eftir að jarðvegur hitnaði í kjölfar jarðskjálftans 2009.
Staðarhaldari á
Reykjum í Ölfusi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Keflavík Ágúst Jarfi Einarsson fædd-
ist 30. janúar 2014 kl. 23.31. Hann vó
3.780 g og var 51 cm langur. Foreldrar
hans eru Aðalheiður Halldórsdóttir
og Einar Óskar Friðfinnsson.
Mosfellsbæ Kolfinna Rósa fæddist
19. október 2014 kl. 13.27. Hún vó
3.752 g og var 54 cm löng. Foreldrar
hennar eru Elín Guðný Hlöðversdóttir
og Sæmundur Maríel Gunnarsson.
Nýir borgarar
B
jörn fæddist í Reykjavík
30.12. 1954: „Fyrsta
æviárið mitt vorum við
að hluta á Raufarhöfn
þar sem pabbi þjónaði
sem prestur. Haustið 1955 fluttum
við á Sauðanes á Langanesi þar sem
við áttum heima næstu tíu árin, en
1965 fluttum við í Vík í Mýrdal þar
sem pabbi þjónaði sem prestur og
var sveitarstjóri hluta tímans fram til
1980.
Ég var ekki alveg sáttur við að
flytja á Suðurland því strax vorið
1966 sneri ég aftur norður og var í
sveit á Gunnarsstöðum í Þistilfirði
það sumar og sumarið 1967. Auk
þess sótti ég sjóinn frá Þórshöfn á
Langanesi sumrin 1970 og 1972, sem
háseti á handfærum, snurvoð og
þorskanót.“
Björn var í Grunnskólanum á Þórs-
höfn en einn vetur var hann haldinn á
Sauðanesi. Björn lauk grunnskóla-
náminu frá Víkurskóla, tók landspróf
frá Héraðsskólanum að Skógum, var
í fyrsta bekk í Menntaskólanum að
Laugarvatni en lauk stúdentsprófum
af máladeild MA vorið 1976.
„Eftir eitt sabbatsár sem eytt var í
vinnu við Kröfluvirkjun, nánar til-
tekið við borkjallarasmíði hjá Sniðli,
og sem afgreiðslumaður hjá ÁTVR
við Snorrabrautina í Reykjavík, var
haldið í háskólanám til Gautaborgar í
Svíþjóð en þaðan útskrifaðist ég með
meistaragráðu í þjóðhagfræði haustið
1984.“
Björn réðst til starfa hjá kaup-
félagadeild Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga þá um haustið, tók við
starfi fjármálastjóra Sambandsins í
ársbyrjun 1987 og síðan við starfi
framkvæmdastjóra fjárhagsdeildar
Sambandsins í ársbyrjun 1990. Hann
varð framkvæmdastjóri Miklagarðs
haustið 1991 en lét af því starfi í mars
1993.
Björn starfaði sjálfstætt hérlendis
og erlendis við ýmis verkefni fram á
haust 2001. Hann varð þá sveitar-
stjóri Þórshafnarhrepps sem síðar
varð hluti af Langanesbyggð, og
starfaði þar fram í febrúar 2009.
Í framhaldi af virkri þátttöku
Björns í stjórnmálum í aðdraganda
alþingiskosninga vorið 2009 flutti
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs – 60 ára
Vorið fram undan Björn og Sigrún Jóna stilla sér upp með börnunum, Bjarna, nýfermdum og Karen Ósk.
Frá SÍS í sveitarstjórn
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Byltingarkenndar rannsóknir sýna að lífvirka efnið í brokkolí, sulforaphane, hindrar
hrörnun fruma og stuðlar að endurnýjun þeirra - bæði í heilanum og öllum líkamanum
Getur haft frábær áhrif á heilsu og útlit
• Hjálpar líkamanum að halda heilbrigði
Stuðlar bæði að fyrirbyggjandi heilsuvernd og uppbyggjandi áhrifum til bættrar heilsu
• Spornar gegn ótímabærri öldrun – á líkama og sál
Getur hægt á öldrunarferlinu og dregið úr sýnIlegum áhrifum öldrunar á útlitið
Einföld leið til að njóta þess áhrifaríkasta úr brokkolí
- sulforaphane ... náttúrulega yngri !
Verndaðu frumurnar þínar !
Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily
Tvær á
dag!
Sölustaðir:
Heilsuverslanir og apótek um land allt
Fjarðarkaup, Hagkaup og Melabúðin
brokkoli.is
Cognicore byggir á sulforaphane úr
lífrænt ræktuðum brokkolí-spírum að
viðbættu túrmeric og selenium