Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 Nýlegur leki hjá Sony Pict- ures Entertainment hefur blásið nýju lífi í umræðuna um hver taki við hlutverki njósnarans James Bond þegar Daniel Craig hættir. Í frétt BBC kemur fram að Amy Pascal, yfirmaður hjá fyrirtækinu, hafi sent Eliza- beth Cantillon, fyrrverandi yfirmanni hjá Columbia Pictures sem sér um dreif- ingu Bond-kvikmynda, svo- hljóðandi skilaboð: „Idris ætti að verða næsti Bond.“ Idris Elba hefur látið hafa eftir sér að hann hefði ekkert á móti því að leika njósnarann heimsfræga og myndi tvímælalaust taka að sér hlutverkið stæði honum það til boða. Fyrir tveimur árum, þegar Skyfall var frumsýnd, skrifaði Daniel Craig undir samning þess efnis að hann myndi leika Bond í tveimur kvikmynd- um til viðbótar og nú um stundir standa yfir tökur á næstu Bond-mynd sem nefnist Spectre sem Sam Mendes leikstýrir og ráð- gert er að frumsýna 2015. Svalur Idris Elba hefur slegið í gegn fyrir túlkun sína á rannsóknarlögreglumanninum John Luther. Verður Idris Elba næsti James Bond? Með dramatískum loka-hluta þríleiks PetersJacksons um Hobbitannlýkur jafnframt tímabili tveggja gríðarmikilla epískra kvik- myndabálka sem hafa lýst upp ófáa kvikmynda- og sjónvarpsskjái á liðn- um árum, munu halda áfram að gera það um ókomna tíð – og mala að- standendum gull. Þetta eru mynd- irnar um Harry Potter, átta talsins (2001-2011), og sex um hobbitana Bilbó og Fróða (2001-2013). Líklega er einungis hægt að líkja Stjörnu- stríðsseríunni við þessar tvær æv- intýraraðir fyrir hvíta tjaldið, hvað umfang varðar. Áhorfendur kynntust fyrst Hringadróttinssögu Tolkiens í þrem- ur kvikmyndum Jacksons en síðan hefur hann einnig teygt Hobbitann, ævintýrið litla sem gerist fyrr í tíma, upp í þrjár langar kvikmyndir og þótti mörgum lesendum bókanna nóg um og spurðu hvort það væri mögu- legt. Nú liggur svarið fyrir; það var svo sannarlega hægt. Og þessi lokahluti Hobbitans er fyrirtaks skemmtun. Ævintýrið nær hér hápunkti með langri og örlaga- ríkri stórorrustu, sem jafnast á við alla fyrri bardaga sagnabálksins þar sem ljótir hausar fjúka í hundraðavís og smávaxnir dvergar, álfar og menn ná á einhvern furðulegan hátt að berja og stinga og hrinda tröll- vöxnum og foráttuljótum orkum – lúskra á hinu illa, og lýkur sögunni með stæl, eins og vera ber, og rétt- lætið sigrar að lokum. Fyrsti hluti Hobbitans, Föruneyti hringsins, var talsvert langdreginn enda var verið að kynna allar helstu persónur til leiks og koma þeim af stað í átt að Fjallinu eina þar sem ormurinn lá á gulli dverganna. Í öðr- um hlutanum jókst hraði frásagn- arinnar hressilega og komust dverg- ar og hobbiti að lokum, eftir bardaga við kóngulær og skærur við álfa og orka, þar inn í fjallið með stuðningi vitkans Gandálfs (Ian McKellen) en vöktu við það drekann Smeygin. Lokahluti verksins hefst síðan með miklum og spennandi hamagangi, þar sem Smeyginn hefur yfirgefið fjallið, steypir sér yfir varnarlausa íbúa Vatnabæjar og lætur eldi rigna yfir þá. Leikstjóri gerir vel í því að brjóta dramatíkina upp með skopleg- um uppákomum og karakterum, til að mynda gráðugum bæjarstjóranum (Stephen Fry) sem hleður ásamt flá- ráðum aðstoðarmanni (Ryan Gage) bát sinn gulli og ryður íbúum frá á flóttanum, á meðan hetjan og nýr leiðtogi manna (Luke Evans) mundar boga og tekst á við eldspúandi drek- ann. Þegar Vatnabær er brunninn og ekki stafar lengur ógn af Smeygin, þá leita menn að skjóli við Fjallið eina og að þeiri umbun sem dvergar hétu fyr- ir liðveisluna, enda fjallið fullt af gulli og gersemum. En það eru ekki bara menn sem vilja í fjallið, álfaherinn mætir einnig og síðan herir óvætta; orkar og ýmiskonar tröll og leð- urblökur sem styðja þá. Við þær að- stæður verða þeir réttlátu að taka höndum saman gegn ranglætinu og vonskunni. Þórinn Eikarskjaldi (Richard Armitage), afkomandi fyrrverandi konunga fjallsins, hefur lokið lang- þráðri ferð og er kominn í fjallið en tekur þar sannkallaða drekaveiki sem rænir hann vitglórunni. Þar er komið að mikilvægum þætti hobbit- ans Bilbó (Freeman) sem enn og aft- ur kemur sögupersónum, og vonandi áhorfendum, á óvart fyrir kænsku sína og hugprýði. Og bardaginn brestur á … Þegar fyrsti hluti þríleiksins var sýndur var mikið gert úr því að hann væri kvikmyndaður með nýrri tækni, 48 römmum á sekúndu, sem átti að gera áhorfendum kleift að njóta verksins í mikilli upplausn og helst í þrívídd. Útkoman var hreinlega þreytandi, réttilega líkt við útlit flatra sjónvarpskvikmynda, enda hafa framleiðendur alveg hætt að leggja áherslu á þessa tækni, þótt hægt sé að njóta hennar í einhverjum sölum, og þá sá þessi áhorfandi hana heldur ekki í þrívídd enda finnst honum það illþolandi húmbúkk sem hefur ekkert með áhrifaríka kvikmyndafrásögn að gera. Hins vegar koma hundruð manna að vinnslu verksins og hefur mátt sjá hvernig þeir hafa náð sífellt betri tökum á tölvutækninni með hverri nýrri mynd í bálkinum; hér er margt listavel leyst, hvort sem horft er á eldspúandi drekann, sporléttan álf glíma við sannkallaða þursa eða hina gríðarmiklu heri takast á. Þrátt fyrir glæstar tæknibrellur koma þó augnablik þegar blekking- arhulunni er brugðið frá augunum og þá má sjá gervilega gúmmífætur hob- bitans og það hvernig ekki tekst alltaf að láta hæðarmun manna, dverga og hobbita líta sennilega út. Þá má vel gagnrýna senur sem settar eru inn í söguna til að tengja hana við eldri þríleikinn, Hringadróttinssögu, enda augljóst að aðstandendur gera sér grein fyrir því að í framtíðinni verður horft á Hobbitamyndirnar þrjár fyrst, enda er þessi saga inngangur að hinni. Það má sjá í yfirkeyrðri og kjánalegri senu þar sem Sauron hin illi er kallaður fram en er sendur á brott, í bili, af öflugri álfamey (Cate Blanchett). En áhorfandi sem nýtur þess að láta segja sér góða sögu, líflegt og vel leikið ævintýri sem fer vel, þótt mikil- vægar persónur láti lífið við að bjarga þeim heimi sem við viljum lifa í, hann skellir blekkingarhulunni aftur upp að augum, lifir sig inn í vel gert verk- ið og harmar í lokin að nú sé öll hin mikla saga sögð. Þeir góðu lúskra á því ljóta og illa Konungurinn Þórinn konungur í Fjallinu eina fær drekasótt en nær sönsum. Hann er fyrir miðju atburðanna. Sambíóin Álfabakka, Egilshöll og Keflavík, Smárabíó, Háskóla- bíó, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri. Hobbitinn – Bardagi herjanna fimm bbbbn Lokahluti þríleiks leikstjórans Peters Jacksons um Hobbitann sem byggður er á samnefndri skáldsögu J.R.R.Tolki- ens. Helstu hlutverk: Ian McKellen, Martin Freeman, Richard Armitage, Or- lando Bloom, Evangeline Lilly, Cate Blanchett, Luke Evans, Ryan Gage. Framleiðslulönd: Bandaríkin og Nýja- Sjáland 2014, 144 mínútur. EINAR FALUR INGÓLFSSON KVIKMYNDIR 48 RAMMA 12 16 L THE HOBBIT 3 3D (48R) Sýnd kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 - 11 NIGHT AT THE MUSEUM 3 Sýnd kl. 1:50 - 5 - 8 BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 2 NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10:10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 7 VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar GLEÐILEG JÓL Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.