Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Morgunblaðið/G. Rúnar
Ofbeldi Upplifa reiði og skömm.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Karlmenn standa fremur aftarlega
þegar kemur að kynferðisbrotum
samanborið við konur. Þeir ræða síð-
ur um ofbeldið og afleiðingar þess
við nákomna en konur geta rætt op-
inskátt um aðstæður sínar við fjöl-
skyldu og vini. Þetta kemur fram í
helstu niðurstöðum meistararitgerð-
ar Önnu Lilju Karelsdóttir í fé-
lagsfræði.
Í ritgerðinni skoðar Anna Lilja
sérstaklega stöðu karlmanna sem
hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi en
hún ræddi við ellefu einstaklinga
sem hafa orðið fyrir slíku ofbeldi,
bæði karla og konur. Gerendurnir
voru karlar í flestum tilfellunum en
þó ekki öllum; Anna segir karlkyns
þolendur kynferðisbrota upplifa
meiri skömm ef gerandinn er kona
en ef hann er karlkyns. Í flestum til-
fellum viðmælenda hennar sem urðu
fyrir ofbeldinu á barnsaldri var þeim
ekki trúað eða málið þaggað niður.
Úrræði og aðstoð til karla eru af
skornum skammti og samfélagsleg-
ur skilningur er takmarkaður. Þá
leita karlmenn síður til hjálparsam-
taka og annarra meðferðaraðila til
að vinna úr afleiðingum ofbeldisins
og enn síður til lögreglunnar.
Anna segir upplifun karla og
kvenna af kynferðisofbeldinu vera
svipaða en að karlarnir eigi mun erf-
iðara með að segja frá.
„Það er meiri þöggun í þeirra til-
fellum, sérstaklega hjá þeim sem
voru beittir ofbeldi þegar þeir voru
börn og þeim ekki trúað. Á fullorð-
insárum þegar þeir stíga fram og
segja frá eru þeir oft búnir að lenda í
miklum áföllum,“ segir Anna og
nefnir til dæmis mikla áfengisneyslu
í því sambandi.
Afleiðingarnar bæði líkam-
legar og andlegar
„Afleiðingarnar af þessu eru til
dæmis þunglyndi, kvíði og einnig lík-
amlegar,“ segir Anna. Með líkamleg-
um afleiðingum á hún við t.d. gigt og
meltingarvandamál sem kvíðinn og
annað hafa valdið.
Hún segir karlana upplifa mikla
reiði og skömm. „Sumir hafa notað
hana [reiðina] til að knýja sig áfram
en aðrir verða meira til baka og eru
ekki eins félagslyndir. Brotin sjálfs-
mynd og sjálfsvirðingin er lítil,“ seg-
ir Anna og bætir við að margir hafi
gefist upp á sjálfum sér og láti bjóða
sér upp á nánast hvað sem er. Hún
segir flesta þeirra sem hafa náð að
vinna úr sínum málum hafa komið
sér í stuðningshópa.
Í þeim tilfellum þar sem þol-
endur voru beittir kynferðisof-
beldi frá barnsaldri var ein-
hvers konar óregla á heimilinu
að sögn Önnu, t.d. mikil áfeng-
isneysla foreldra. Þá var
einnig mikið um líkamlegt
og andlegt ofbeldi á
heimilum viðmælend-
anna.
Þöggunin er meiri í tilfellum karla
Oft mikil óregla á heimilum þeirra sem verða fyrir kynferðisofbeldi
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Yfirfæranlegt tap fyrirtækja á Ís-
landi minnkaði um 3.321 milljarð
króna frá árslokum 2011 til 2013.
Tapið var 6.836,1 milljarður króna í
lok árs 2011 en var komið niður í
3.514,7 milljarða í lok árs 2013.
Þetta kemur fram í nýjasta hefti
Tíundar, rits Ríkisskattstjóra.
Þessar stærðir eru tröllauknar.
Nægir þar að nefna að Hagstofan
áætlar nú að verg landsframleiðsla í
fyrra hafi verið 1.873 milljarðar. Þá
má nefna að félög á Íslandi áttu 246,6
milljarða í uppsafnað yfirfæranlegt
tap um síðustu aldamót, eða 515
milljarða á núvirði, miðað við breyt-
ingu á vísitölu neysluverðs frá des-
ember árið 2000 til þessa mánaðar.
Uppsafnað yfirfæranlegt tap fé-
laga var því ríflega 13 sinnum meira í
lok árs 2011 en um síðustu aldamót.
Eins og rakið er í Tíund getur yfir-
færanlegt tap verið verðmætt, enda
getur það komið til lækkunar skatt-
greiðslna. Þetta er útskýrt nánar í
grein hér til hliðar. Stór hluti þessa
yfirfæranlega taps er hjá félögum
sem fóru á hliðina við hrunið og voru
mörg hver í fjármálastarfsemi.
Úr tölum um yfirfæranlegt tap má
því lesa margt um endurskipulagn-
ingu atvinnulífsins eftir hrunið.
Höfundur greinarinnar, Páll Kol-
beins rekstrarhagfræðingur, skrifar
að á milli ára 2011 og 2013 hafi
„fyrirtæki farið í þrot, þeim verið
slitið eða skuldir verið afskrifaðar“.
Tapið jafnað með afskriftum
Umfang afskrifta er ekki tilgreint
í greininni. Þar segir hins vegar orð-
rétt um þróunina síðustu ár:
„Nú áttu 17.029 félög yfirfæran-
legt tap, 156 fleiri en fyrir ári. Um
43,9% þeirra félaga sem voru búin að
skila framtali voru með yfirfæran-
legt tap. Þetta er heldur lægra hlut-
fall en í álagningu í fyrra þegar
44,2% félaga voru með yfirfæranlegt
tap. Árið 2007 voru 35,6% félaga með
yfirfæranlegt tap. Það er ekki ólík-
legt að skuldir hafi verið gefnar eftir
og taldar til tekna í mörgum félögum
og tapið hafi á þann hátt verið jafnað.
Árið 2013 voru 16.346 félög rekin
með hagnaði og greiddu tekjuskatt
en það eru 42,2% félaga. Þó að ým-
islegt horfi nú til betri vegar er at-
vinnulífið enn að vinna úr því áfalli
sem hér varð,“ skrifar Páll.
Fram kemur í greininni að 37 fé-
lög áttu 2.842,4 milljarða í tap. Voru
þau hvert og eitt með meira en 10
milljarða í tap. „Þannig má rekja
80,9% yfirfæranlegs taps til 0,1% fé-
laga sem hvert um sig átti meira en
10 milljarða í yfirfæranlegt tap,“
segir í umræddri grein í Tíund.
Tapið er misjafnt milli atvinnu-
greina. Eignarhaldsfélög áttu
2.620,2 milljarða í yfirfæranlegt tap,
félög í annarri lánastarfsemi um 154
milljarða, leigufélög 33,4 milljarða, í
félögum sem leigja íbúðarhúsnæði
og leigufélög sem leigja atvinnuhús-
næði 128,4 milljarða. Loks áttu félög
sem starfa við heildverslun með lyf
og lækningavörur og rannsóknir á
þróun í líftækni samtals 113,8 millj-
arða í yfirfæranlegt tap.
Tryggingagjald hefur hækkað að
raunvirði um 14,7 milljarða frá 2008.
„Það eru 394 atvinnugreinar sem
greiða samanlagt 21,2 milljörðum
meira en árið 2008. Á sama tíma er
nú minna greitt í laun í 149 atvinnu-
greinum sem greiða nú um 6,5 millj-
örðum minna að raunvirði í trygg-
ingagjald en þær gerðu árið 2008. Á
þessum tíma hefur tryggingagjaldið
sjálft hækkað að jafnaði um 44,3%,“
segir í greiningu Páls Kolbeins.
Tapið fór í 6.836 milljarða
Yfirfæranlegt tap fyrirtækja minnkaði um 3.321 milljarð króna frá 2011 til 2013
Sérfræðingur hjá Ríkisskattstjóra segir atvinnulífið enn að vinna sig úr hruninu
Meirihluti félaga átti
ekki yfirfæranlegt tap
» Rúmur helmingur félaga
sem rekinn er í hagnaðarskyni,
eða 56,1%, átti ekki yfirfæran-
legt tap árið 2013.
» Yfirfæranlegt tap félaga
sem starfa við þráðlaus fjar-
skipti jókst um 6,7 milljarða frá
árinu 2008 til 2013.
» Árið 2007 var yfirfæranlegt
tap félaga orðið 935,8 millj-
arðar en jókst svo í 6.836 millj-
arða árið 2011.
Morgunblaðið/Golli
Efnhagslega hamfarir Við efnahagshrunið haustið 2008 brast rekstrargrundvöllur fjölmargra félaga, sem mörg hver voru mjög skuldsett.
Morgunblaðið/Golli
Vinna Fyrirtæki greiða nú 14,7 milljörðum meira í tryggingagjald en 2008.
Ríkisskattstjóri telur afskriftir eiga þátt í mikilli lækkun yfirfæranlegs taps á síðustu árum
Vikið er að yfir-
færanlegu tapi
útgerðarfyrir-
tækja sem er alls
24 milljarðar
króna í árslok
2013. Tölur
Ríkisskattstjóra
vitna um um-
skipti í rekstri
útgerðarinnar síðustu ár.
„Yfirfæranlegt tap hefur lækkað
mest í sjávarútvegi frá árinu 2008.
Tap fyrirtækja sem starfa við að
frysta fiskafurðir, lindýr og
krabbadýr minnkaði um tæpa 80,3
milljarða. Yfirfæranlegt tap út-
gerðar fiskiskipa minnkaði um 79,2
milljarða,“ segir orðrétt í Tíund.
Til samanburðar lækkaði yfir-
færanlegt tap hitaveitu um 52,6
milljarða á tímabilinu, yfirfæran-
legt tap fyrirtækja sem starfa við
fjármögnunarleigu minnkaði um
36,9 milljarða. Tapið minnkaði um
31,7 milljarða hjá fyrirtækjum sem
starfa við leigu á atvinnuhúsnæði
og um 29,2 milljarða hjá öðrum
fjármálafyrirtækjum.
Á öðrum stað í Tíund segir að út-
gerð fiskiskipa hafi greitt tæpum
1,1 milljarði meira í tryggingagjald
af launum ársins 2013 en ársins
2008, sem sé aukning um 75,9%.
Yfirfæranlegt tap
hefur lækkað mest
í sjávarútvegi
Í nýjasta hefti
Tíundar er rakið
hvernig tekju-
skattsskyld fyrir-
tæki „geta flutt
tap ársins yfir til
næsta árs og nýtt
það á móti hagn-
aði komandi ára,
ólíkt hagnað-
inum“.
„Það þarf að
greiða skatt af honum þegar hann
myndast í rekstrinum. Fyrirtæki
sem rekin eru með tapi geta því
ekki fengið tekjuskatt fyrri ára
endurgreiddan. Þetta á reyndar
ekki við um söluhagnað. Fresta má
að greiða skatt af honum. Fyrirtæki
sem rekið er með hagnaði eitt árið
og tapi hitt greiðir því hærri skatt
en fyrirtæki sem rekið er með tapi
eitt árið og hagnaði hitt. Yfirfæran-
legt tap getur því verið verðmætt,“
segir í greininni sem rituð er af Páli
Kolbeins rekstrarhagfræðingi.
„Yfirfæranlegt
tap getur því
verið verðmætt“
Páll Kolbeins
Einn viðmælandi Önnu Lilju,
sem varð fyrir kynferðisofbeldi
sem barn, sagði móður sinni
og systur frá misnotkuninni
eftir að þær höfðu séð heim-
ildarmynd um Breiðavíkur-
drengina og talað um hvað
myndin væri skelfileg.
,,Þannig að ég hugsaði
með mér þarna: ég segi
bara frá þessu, og ég
gerði það … þá var allt í
einu eins og ég mætti
aldrei passa eða vera í
kringum börnin aft-
ur.“
Sagði fjöl-
skyldunni frá
BRUGÐUST ILLA VIÐ
Anna Lilja
Karelsdóttir