Morgunblaðið - 30.12.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Skjárinn hefur tryggt sér sýninga-
rétt á Evrópumótinu í knattspyrnu
árið 2016 og verður því mótið sent út
á Skjásport. Gera
má ráð fyrir mik-
illi tilhlökkun
meðal þjóðar-
innar vegna
mótsins, en ís-
lenska landsliðið
hefur unnið mik-
ilvæga sigra í
undankeppni
mótsins og á góða
möguleika á að
tryggja sér þátttökurétt á mótinu.
Yrði það þá í fyrsta skipti sem Ís-
land tæki þátt á stórmóti í knatt-
spyrnu.
Skjárinn ætlar að sýna alla leiki
mótsins, en leikir Íslands verða í op-
inni dagskrá komist liðið á mótið,
segir Friðrik Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Skjásins. „Stöðvar
Skjásins eru áskriftarstöðvar en það
er áskilnaður um tiltekinn fjölda
leikja í opinni dagskrá. Við förum
raunverulega bara eftir þessum leik-
reglum, hluti af leikjunum verður
því í opinni dagskrá og síðan höfum
við sagt það að ef Ísland kæmist alla
leið á mótið þá yrðu þeir leikir í op-
inni dagskrá líka,“ segir Friðrik, en
fram kom í tilboði Skjásins að ís-
lensku leikirnir yrðu sýndir í opinni
dagskrá fengju þeir sýningaréttinn.
Friðrik segir að það hafi styrkt
samningsstöðu þeirra.
Mótið stærra en áður
Þá segir Friðrik einnig að úrslita-
leikurinn verði í opinni dagskrá,
ásamt ákveðnum lykilleikjum.
„Þetta verður mikil veisla. Það er
verið að stækka mótið, yfirleitt hafa
16 lið verið á mótinu en árið 2016
verða 24 lið á mótinu. Þá verða fleiri
leikir sem eru beinir útsláttaleikir
þannig þetta er mikil knatt-
spyrnuhátíð. Fyrir okkur er þetta
náttúrlega mjög stórt verkefni.
UEFA, Knattspyrnusamband Evr-
ópu, heldur mótið og þeir eru með
mikið utanumhald um hvernig staðið
er að verkefninu þannig þetta er
undirbúningur sem hefst snemma á
næsta ári hjá okkur.
„Þetta eru viss þáttaskil“
Aðspurður hvort sýningarrétt-
urinn feli ekki í sér mikið sóknar-
tækifæri fyrir Skjásport svarar
Friðrik játandi. „Þetta eru viss
þáttaskil. Þetta gefur okkur færi á
að stimpla okkur vel inn á þessum
markaði. Við höfum lagt áherslu á
þýska boltann og margir vilja meina
að það sé besti boltinn í Evrópu, þó
að hann hafi ekki sömu verðmæti og
enski boltinn, en sögulega vitum við
öll að enski boltinn hefur sérstakan
sess,“ segir Friðrik og bætir við að í
byrjun næsta árs verði Eurosport-
stöðvarnar ekki lengur á fjölvarpinu
þar sem Skjárinn hefur náð samn-
ingi um sýningarréttinn á þeim.
Talsverð óánægja var árið 2011
þegar heimsmeistaramótið í hand-
bolta var sýnt í lokaðri dagskrá hjá
Stöð 2 Sport. Þá voru einstakir
leikir á mótinu í opinni dagskrá en
leikir Íslands voru lokaðir þeim
sem ekki höfðu áskrift.
Miklar deilur voru í fjölmiðlum
áður en mótið hófst. Þá sagði Páll
Magnússon, þáverandi útvarps-
stjóri Ríkisútvarpsins, m.a. að með
þessu fyrirkomulagi væri verið að
„læsa íslenska handboltalands-
liðið inni í kústaskáp“. Aðrir voru
ósammála, en Ari Edwald, þáver-
andi forstjóri 365 miðla, sagði
eðlilegt að þeir sem vildu njóta
handboltans eða annars sértæks
sjónvarpsefnis borguðu fyrir það
frekar en að allir væru skattlagðir
vegna beinna sjónvarpsútsendinga
frá viðkomandi viðburði.
Í 48. gr. fjölmiðlalaga er heimild
til að setja reglugerð um opið að-
gengi að öllum íslenskum stór-
viðburðum sem hafa verulega þýð-
ingu í þjóðfélaginu, þar á meðal
landsleikjum í helstu íþróttagrein-
um sem stundaðar eru hérlendis,
en hingað til hefur ekki verið grip-
ið til þess að neyða sjónvarps-
stöðvar til að sýna íþróttaefni í op-
inni dagskrá. Ljóst er að hér
vegast á hagsmunir einkaaðila,
sem kaupa útsendingarréttindi, og
þess almennings, sem vill horfa á
mikilvæga íþróttaviðburði endur-
gjaldslaust.
Skiptar skoðanir meðal manna
HM Í HANDBOLTA 2011 VAR Í LOKAÐRI DAGSKRÁ
Skjárinn mun sýna EM í
knattspyrnu á næsta ári
Komist Ísland á EM verða leikirnir í opinni dagskrá
Morgunblaðið/Ómar
Dagskrá Skjársport mun sýna leiki Íslands í opinni dagskrá komist liðið á
EM. Að lykilleikjum mótsins undanskildum verður mótið í lokaðri dagskrá.
Friðrik
Friðriksson
„Það er fátt sérstakara en að kveðja
gamla árið og fagna því nýja í fögrum
fjallasal umkringdum stórbrotinni
náttúru, jöklum og eldfjöllum,“ segir
Skúli H. Skúlason, framkvæmda-
stjóri Útivistar, um árlega áramóta-
ferð félagsins í Bása í Þórsmörk en
stór hópur hélt þangað í gærmorgun
og hyggst heilsa þar nýju ári.
Að sögn Skúla er um að ræða Ís-
lendinga, sem hafa flestir oft áður
farið í þessa ferð. Fararstjóri er með
í för og leiðir fólk í gönguferðir um
svæðið eftir því sem færð og veður
leyfir en að sögn Skúla taka margir
einnig með sér gönguskíðin.
Á sjálft gamlárskvöld er farin
blysför inn að Strákagili þar sem
klettarnir eru lýstir upp með blysum
sem vekur yfirleitt mikla lukku á
meðal viðstaddra. „Þetta er heilmik-
ið sjónarspil,“ segir Skúli.
Við tekur svo áramótabrenna þar
sem flugeldunum er skotið upp.
Njóta þeir sín einkar vel á stjörnu-
björtum himni án allrar truflunar.
„Maður getur fylgst með sínum flug-
eldi alla leið og hann er alltaf stærst-
ur“ sagði Skúli H. Skúlason.
laufey@mbl.is
Heilsa nýju ári
í óbyggðunum
Brenna og blysför í Básum
Ljósmynd/Grétar William Guðbergsson
Básar Skálinn í Þórsmörk skartar
sínu fegursta í fannferginu.
-Viðhaldsfríir
gluggar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Hæðarstillanlegir
leikskólastólar
Smiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Fax 535 4301
Netfang axis@axis.is • Heimasíða www.axis.is
Hönnuður: Sturla Már Jónsson
Húsgagna og innanhúsarkitekt
m
ag
gi
os
ka
rs
.c
om
LAUF
LAUF
Glæsilegur fjölnota
stóll frá AXIS
• 5 fallegir staðlaðir litir af skeljum
• Fjaðrandi bak
• 3 hæðarstillingar
• Hægt að sitja á honum á ýmsa vegu
fjölnota stóllinn - nú líka
hæðarstillanlegur fyrir leikskóla