Morgunblaðið - 30.12.2014, Page 13
Lausn Tækið sjálft, Vefvarpið, er álíka einfalt í notkun og venjulegt út-
varpstæki, þer er hægt að hlusta á fréttamiðla og bækur.
BAKSVIÐ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Tímamót urðu á Íslandi fyrir 20 ár-
um þegar kynntur var til sögunnar
talgervill sem las upphátt texta af
tölvuskjá. Var í kjölfarið hafin útgáfa
á Morgunblaðinu fyrir sjónskerta.
Ef fólk sér illa en getur samt lesið
stórt og skýrt letur er hægt að fara
inn á sérstaka útgáfu af vefmiðlinum
mbl.is sem heitir mbl.is/mm/greini-
legur/. En blindir þurfa sérstakan
búnað, talgervil.
Blindrafélagið – Samtök blindra
og sjónskertra á Íslandi, hafði á sín-
um tíma frumkvæði að því að tryggja
fólki með skerta sjón bættan aðgang
að stafrænum miðlum. Í fyrstu voru
raddirnar nokkuð vélrænar en hafa
batnað. Þær hafa ávallt haft sín eigin
nöfn, Snorri og síðan Ragga. Fyrir
fjórum árum tóku svo Dóra og Karl
við hlutverkinu. Blindrafélagið
samdi árið 2010 við pólskt fyrirtæki,
Ivona, sem sér um að uppfæra reglu-
lega búnaðinn og þjónusta hann.
„Það má í grófum dráttum skipta
þessum notendum í þrjá hópa,“ segir
Kristinn Halldór Einarsson, fram-
kvæmdastjóri félagins. „Í fyrsta lagi
erum við með einstaklinga sem eru
með talgervilinn uppsettan á tölvun-
um sínum. Þeir nota hann til þess að
lesa texta á rafrænu formi. Þetta eru
einstaklingar sem ekki geta lesið
vegna blindu, sjónskerðingar eða
lesblindu, síðasti hópurinn er lang-
stærstur.“ Fengin er staðfesting frá
Hljóðbókasafni Íslands um að við-
komandi hafi þar verið samþykktur
sem notandi og þá er tryggt að búið
sé að greina hann faglega.
Rafbækur og höfundarréttur
Leyfið er gjaldfrítt. Notandinn
fær aðgangslykil og hlekk til að
hlaða niður á tölvuna sína og er þá
kominn með talgervil sem getur lesið
rafræna texta, hvort sem er á word-
formi eða pdf. Einnig má nota bún-
aðinn til að lesa heimasíður, tölvu-
pósta og annað slíkt.
„En það gengur varla að nota
þetta á rafbækur, þá þarf að fá bæk-
urnar á pfd-formi. Þar snýst þetta
líka mikið um höfundarréttindamál
og mikil flækjustig þar,“ segir Krist-
inn. Hljóðbókasafnið sér um að lesa
inn námsbækur, nemandinn getur
þannig fengið þær sem hljóðbækur.
Hann segir að vandi sjónskertra
nemenda sé að oft fái þeir námsbæk-
ur og önnur gögn of seint á formi
sem hentar þeim, langt sé liðið á vet-
urinn. En komi bókin strax á pdf-
formi geta þeir búið til svonefnda
hljóðskrá, hún getur verið kaflaskipt
og hægt að setja hana inn á snjall-
símann. Þá geta þeir byrjað strax að
læra, hlustað jafnvel á bókina í rækt-
inni, eins og Kristinn segir.
„Þetta er alger bylting en hefur
farið afar hljótt. En nú eru auk þess
oft settir svokallaðir veflesarar á
netsíður, þá er bara ýtt á hnappinn
„hlusta“. Önnur bylting sem hefur
enn minna verið sagt frá er Vefvarp-
ið okkar. Það er sérstaklega hannað
fyrir eldra fólk sem er blint eða sjón-
skert og er ekki læst á tölvur. Við er-
um búin að semja við Morgunblaðið
um að við fáum aðgang að textaskrá
blaðsins á hverjum degi um leið og
það er tilbúið til prentunar, fáum
hana á pdf-formi. Við tökum skrána,
lesum hana inn og búum til hljóð-
skrár af öllu efni blaðsins. Það er þá
aðgengilegt öllu eldra fólki sem á
vefvarpstæki heima hjá sér, fólki
sem aldrei hefur unnið á tölvu. Það
er nógu erfitt að vera að missa sjón-
ina á gamals aldri, hvað það að þurfa
líka að læra á tölvu.
En sá sem á slíkt tæki getur farið
inn á Morgunblaðið áður en það er
komið í póstkassann hans og hlustað
á allt efni blaðsins þann daginn.
Þetta er kaflaskipt hjá okkur. Not-
andinn stillir takkana á tækinu, sem
er ekki ósvipað venjulegu útvarps-
tæki, til að velja hvort hann vil heyra
innlendar fréttir, íþróttafréttir,
minningargreinar eða eitthvað ann-
að. Eldra fólk þarf því ekki lengur að
láta lesa upphátt fyrir sig úr blaðinu
og þarf ekki að láta velja fyrir sig.
Það velur sjálft.“
Vefvarpið umbyltir lífi margra
Aldraðir með skerta sjón geta nú hlustað á allt Morgunblaðið áður en það dettur í póstkassann
Talgervillinn stórbætir einnig lífið fyrir sjónskerta nemendur sem geta hlustað á námsbækurnar
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
TOLLSTJÓRI, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík, sími: 560 0300, vefur: www.tollur.is
BREYTING Á FYRIRKOMULAGI VIÐ
INNHEIMTU OPINBERRA GJALDA
Við verndum samfélagið og tryggjum ríkinu tekjur
Traust - Samvinna - Framsækni
Orðsending til íbúameð lögheimili í Kópavogi, GarðabæogHafnarfirði vegnabreytingaá fyrirkomulagi
við innheimtu skatta oggjalda til ríkisins
Vakin er athygli á að frá og með 1. janúar 2015 mun Tollstjóri annast innheimtu skatta og gjalda á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt
reglugerð nr. 1060/2014, um innheimtumenn ríkissjóðs. Frá og með þeim degi geta þeir sem eiga lögheimili í Kópavogi, Garðabæ
og Hafnarfirði ekki lengur greitt skatta og gjöld hjá sýslumönnum í Kópavogi og Hafnarfirði heldur flyst öll afgreiðsla og þjónusta
vegna innheimtunnar til Tollstjóra að Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík. Fyrrgreint á einnig við um innheimtu álagninga fyrri ára.
Opnunartími hjá Tollstjóra frá og með áramótum verður alla virka daga frá kl. 8:00 – 15:30 nema fimmtudaga frá kl. 8:00 – 18:00.
Lengri opnunartími á fimmtudögum er til reynslu í janúar og febrúar.
Í samræmi við stefnu Tollstjóra mun embættið leitast við að veita íbúum á höfuðborgarsvæðinu faglega og góða þjónustu.
Bent er á að allar nánari upplýsingar, m.a. um bankareikninga, má finna á vef Tollstjóra tollur.is og í síma 560-0300.
tollur.is
Sé um texta á
íslensku að
ræða er notast
við raddirnar
Dóru og Karl í
nýja talgervlin-
um frá Blindra-
félaginu sem
var tekinn í
notkun hér 2012. Lesarinn er
endurgjaldslaus fyrir notendur
sem kljást við lesblindu, skerta
sjón eða blindu og félagið veitir
aðstoð við að setja talgervilinn
upp, hvort sem er í PC- eða
Apple-tölvu. Aðrir þurfa hins
vegar að borga fyrir leyfið til að
nota búnaðinn, verðskrá má sjá
á heimasíðu félagsins.
Hægt er að kaupa hjá Ivona
aðrar raddir, t.d. ensku, spænsku
eða þýsku. Því er hægt að vera
með margar raddir í talgervlin-
um, einnig er hægt að fá síma-
rödd fyrir android. Meðal ráð-
gjafa Blindrafélagsins við kaupin
á nýja talgervlinum eru Eiríkur
Rögnvaldsson, prófessor í ís-
lensku við HÍ, og Jón Guðnason,
doktor í rafmagnsverkfræði.
Dóra og Karl
eru þolinmóð
JAFNT PC SEM APPLE
Kristinn Halldór
Einarsson