Morgunblaðið - 30.12.2014, Side 14

Morgunblaðið - 30.12.2014, Side 14
BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FISK Seafood stendur í stórræðum um þessar mundir og nema fjárfest- ingar fyrirtækisins á þessu og síð- asta kvótaári um 2,2 milljörðum króna. Afkastageta landvinnslu hef- ur verið aukin og verið er að byggja þurrkstöð á Sauðárkóki, breyta frystitogaranum Málmey SK 1 í ferskfisktogara þar sem fiskurinn verður ofurkældur án þess að ís komi þar nærri og síðast en ekki síst er verið að smíða nýjan togara í Tyrklandi. Rekstrarár FISK Seafood miðast við kvótaárið og segir Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri, að á síðasta ári hafi verið fjárfest fyrir um 700 milljónir króna í landi og á sjó. Á þessu kvótaári er síðan áætlað að fjárfestingar nemi um 1.500 millj- ónum. Í þeirri tölu er innborgun vegna smíði nýs togara í Tyrklandi upp á rúmlega 700 milljónir, eða sem nemur um þriðjungi af kaupverði skipsins. Skipið er væntanlegt til landsins um miðjan október 2016. Samofin verkefni „Þessar fjárfestingar hanga í raun allar saman,“ segir Jón Eðvald. „Ákveðið var að auka vægi land- vinnslunnar og frystitogarinn Örvar var seldur til Rússlands. Í landi hef- ur verið unnið að því að geta aukið magnið sem fer í gegnum vinnsluna bæði með nýjum tækjum og fleira starfsfólki.“ Jón Eðvald segir að fyrirtækið hafi unnið mest af léttsöltuðum flök- um fyrir kaupendur á Spáni og hafi það verið stærsti markaður fyrir af- urðir landvinnslu FISK. Til þessa hafi vinnslan verið tiltölulega ein- föld, en horft hafi verið til þess að með auknu magni í landi þyrfti fyrir- tækið að fara inn á fleiri markaði með breiðari vörulínu. Í ljós hafi hins vegar komið að Spánarmark- aður hafi verið tilbúinn að taka við auknu magni og því hafi þróunin orðið sú að unnið sé fyrir sömu markaði og áður. Jafnframt hafi Spánn aðeins tekið við sér síðustu mánuði og verð hækkað. Hluti af stefnubreytingu fyrirtæk- isins var að byggja upp þurrkverk- smiðju til að þurrka fisk í stað þess að hengja upp hausa og hryggi í hjöllum. Eitt af dótturfyrirtækjum FISK er síðan þróunarfyrirtækið Iceprotein þar sem eru í gangi rann- sóknir og þróun til eflingar á há- marksnýtingu hráefnis, m.a. með aukinni verðmætasköpun úr hliðar- hráefni. Síðasta sumar voru gerðar til- raunir hjá Iceprotein með ofurkæl- ingu á fiski í samvinnu við Matís og fleiri. Árangur þeirrar vinnu var mjög lofandi og í kjölfarið var ákveð- ið að semja við Skagann á Akranesi, 3X á Ísafirði og Frost um smíði á búnaði til að kæla fiskinn á þennan nýstárlega hátt, en aldrei áður mun slíkur búnaður hafa verið settur upp í togara. Langaði að taka einhver framfaraskref samhliða „Tilraunirnar sem gerðar voru hjá Iceprotein í sumar gengu mjög vel og urðu til þess að við ákváðum að stíga þetta skref og skrifuðum undir samninga,“ segir Jón Eðvald. „Þetta er allt samofið, áherslubreytingin að auka landvinnsluna, smíði nýja skipsins og breytingarnar á Málm- ey. Það er langt síðan við höfum látið smíða nýtt skip og okkur langaði hreinlega til að taka einhver fram- faraskref samhliða. Fyrst þessar hugmyndir um ofur- kælingu voru komnar svona langt var ákveðið að slá til og reyna þessa aðferð um borð í Málmeynni. Ef þetta gengur allt upp þar fer þessi búnaður einnig í nýja skipið þegar þar að kemur. Þegar við ákváðum að stíga þessi skref héldum við líka að viðhorf til sjávarútvegsins gagnvart skattlagn- ingu og slíku væru að breytast. Að menn skynjuðu að fyrirtækin þurfa að hafa einhverja afkomu til að geta fjárfest og tekið þátt í breytingum. Þetta lagðist allt á eitt síðasta sumar og menn fylltust bjartsýni, en það hefur staðið á því að menn kláruðu málin í samræmi við væntingar.“ Margir sérfræðingar Stefnt er að því að breytingum á Málmey ljúki upp úr miðjum janúar og skipið haldi þá til veiða. Jón Eð- vald segir að búast megi við að ein- hvern tíma taki að ná tökum á nýjum aðferðum við meðferð afla og kæl- ingu um borð í skipinu og þar komi margir sérfræðingar að málum. „Þetta er mjög spennandi verk- efni og verði árangurinn góður gæti þessi tækni verið komin um borð í flest stærri skipin hérlendis á næstu árum. Ég held að það fylgist margir í greininni með því hvernig til tekst,“ segir Jón Eðvald. Víða fylgst með hvernig til tekst  FISK Seafood fjárfestir fyrir 2,2 milljarða á tveimur árum  Aukin landvinnsla og nýtt skip í smíðum  Ofurkæling með nýrri tækni um borð í ferskfisktogaranum Málmey  „Mjög spennandi verkefni “ Í heimahöfn Málmey SK 1 við bryggju á Sauðárkróki. Reiknað er með að skipið fari á veiðar upp úr miðjum janúar. Öflugt fyrirtæki » FISK Seafood gerir út Málm- ey, sem er verið að breyta úr frystiskipi í ferskfisktogara, frystitogarann Arnar, ísfisktog- arann Klakk og togbátana Far- sæl og Hannes Andrésson. » FISK er með landvinnslu á Sauðárkróki og rækjuvinnslu í Grundarfirði. » FISK Seafood er í 100% eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Samningur Ingólfur Árnason og Jón Eðvald Friðriksson (t.h.), fram- kvæmdastjórar Skagans og FISK, handsala samning um búnaðinn. Ljósmynd/Guðmundur Ólafur Breyting Unnið er við uppsetningu búnaðar í Málmey á Akranesi og við skipshlið er kælisnigill (Rotex), sem verður settur saman á millidekki. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 Árin segja sitt1979-2014 Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás. Laugarásvegi 1 104 Reykjavík • laugaas.is Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sýnum uppá úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið hafðar að leiðarljósi. )553 1620 Verið velkominn Grásleppuveiðar við Ísland hafa nú verið vott- aðar samkvæmt stöðlum MSC, sem byggðir eru á viðmiðunarreglum FAO um sjálfbærar veið- ar. Þetta kemur fram á heimasíðu Landssam- bands smábátaeigenda. Þar segir að í lokaferli umsóknarinnar hafi verið gefnir 15 dagar til að gera efnislegar athugasemdir, en engar at- hugasemdir hafi borist. Margra mánaða um- sóknarferli sé þar með lokið og viðurkenning fengin. Í eldri frétt segir að MSC-merking ætti að gefa Íslandi forskot í sölu hrogna, en Græn- lendingar eigi töluvert í land með að ná vottun. Bent er á að þegar vottunin sé komin í höfn muni fátt geta réttlætt að grásleppa og grá- sleppuhrogn héðan verði lengur á válista Al- þjóðanáttúruverndarsjóðsins. Vera hennar þar hafi gert vörunni erfitt fyrir í Svíþjóð og Þýskalandi, segir á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. Grásleppa frá Íslandi fær vottun Vinnsla Unnið við grásleppu hjá Sæfrosti í Búðardal. STUTT Auglýst hefur verið breyting á aðal- skipulagi Stykkishólmsbæjar og tekur hún til lóðarinnar Austurgötu 7. Byggingar kaþólsku kirkjunnar eru á lóðinni og er nú áformað að breyta gamla leikskólanum og hluta systraheimilis í fræðslusetur með gistiheimili og veitingaaðstöðu. Fram kemur í greinargerð með tillögu að breytingunni að byggingar Kaþólsku kirkjunnar á lóðinni eru byggðar á árunum 1935-1976, en þá reistu Fransiskusystur sér klaustur, prentsmiðju og kirkju á lóðinni. Þær byggðu síðar spítala og leikskóla og ráku árum saman og settu mikinn svip á bæinn. Á síðustu árum hefur starfsemi í byggingum kirkjunnar á lóðinni breyst. Til að koma á móts við breytta starfsemi verður bílastæðum fjölgað á lóðinni. Tillagan verður aðgengileg á vef og skrifstofu Stykkishólmsbæjar til 21. janúar. Hluta systraheimilis breytt í fræðslusetur Stykkishólmur Fallegur bær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.