Morgunblaðið - 30.12.2014, Side 19

Morgunblaðið - 30.12.2014, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 Núvitund Karlapúl Orkulausnir Hreyfilausnir E in st a kl in g sþ já lf u n Slökun Hugarlausnir Stoðkerfislausnir H ei ls ul au sn ir Sj úk ra þj ál fu n Heilsumat S á lf ræ ð in g a r Eldum betur B o rð u m b e tu r A ð h a ld h jú kr u n a rf ræ ð in g s Sofum betur k þ u m b e t E in st Sj ú Sj ú B o rð u - Þín brú til betri heilsu www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010 Kynningarfundur á námskeiðum Heilsuborgarskólans fimmtudaginn 8. janúar kl 18:00 Hvað hentar þér? Hafðu samband og fáðu fría ráðgjöf – Ertu ekki að hreyfa þig reglulega? – Eru kílóin að hlaðast á? – Er svefninn í ólagi? – Ertu með verki? – Líður þér illa andlega? – ....eða er hreinlega allt í rugli? Taktu í taumana og finndu þitt jafnvægi S ve fn m æ lin g a r O ffi tu rá ð g jö f „Það er mjög mikilvægt að fólk hjálpi okkur við hreinsunina með því að hreinsa vel frá tunnunum þannig að hægt sé að tæma þær hratt og vel. Það flýtir fyrir í svona ástandi,“ segir Eygerður Margrétardóttir hjá sorphirðunni en Sorphirða Reykja- víkurborgar hefur keppst við að hreinsa sorp í þeim hverfum sem ekki náðist að klára fyrir jól. Færð er víða þung vegna hálku og klakaruðninga og vinnuaðstæður langt frá því að vera eins og best verður á kosið. Gert var ráð fyrir að sorphreinsun kláraðist fyrir hádegi í dag í Árbæjarhverfi, Úlfarsárdal og á Kjalarnesi en einnig verður hreinsað frá heimilum í Grafarvogi í dag og á gamlársdag en einhverjar tafir gætu orðið. Ef sorphirða gengur greiðlega fyrir sig í úthverfunum verður reynt að fara í Vesturbæ og Miðborg fyrir áramót en samkvæmt upplýsingum frá sorphirðunni verður það bónus ef sorphreinsunarfólk nær þangað. Keppst við að hreinsa sorp  Íbúar beðnir að hjálpa til  Erfiðar aðstæður fyrir Sorphirðu Reykjavíkur Morgunblaðið/Ómar Rusl Enn er verið að vinna upp tap- aðan tíma frá því fyrir jól í ruslinu. Fleiri veitingastaðir í borginni verða opnir núna yfir áramótin heldur en áður samkvæmt yfirliti yfir af- greiðslutíma sem Upplýsinga- miðstöð ferðamanna í Aðalstræti tekur saman árlega. Á gamlárskvöld verða 33 veitingastaðir opnir og á nýárskvöld verður 51 veitingastaður opinn. Árið 2003 birtist frétt í Morgun- blaðinu um að ferðaskrifstofur hafi verið hikandi við að skipuleggja ferðir til Íslands um jólin vegna þess hvað erfitt væri að fá þjónustu þessa daga. Þó hefðu verið 200 til 300 manns hér á landi jólin 2003. Samtök ferðaþjónustunnar áætla að allt að 60 þúsund ferðamenn komi til landsins í desember í ár og stór hluti komi um jól og áramót. Aukið framboð á þjónustu fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík yfir jól og áramót er fagnaðarefni að sögn Einars Bárðarsonar, forstöðu- manns Höfuðborgarstofu. „Veit- ingastaðir og ferðaþjónustuaðilar í Reykjavík standa sig frábærlega í að mæta þörfum þessa aukna fjölda ferðamanna sem kýs að verja jól- unum í Reykjavík,“ segir hann í til- kynningu. benedikt@mbl.is Ferðamenn geta valið veitingastaði  33 veitingastaðir opnir um áramót Morgunblaðið/Eggert Ferðalangar Ferðamönnum hefur fjölgað sem koma hingað til lands. Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Tugir norskra fyrirtækja herja á ís- lenska hjúkrunarfræðinga á hverj- um degi með atvinnutilboðum. Hjúkrunarfræðingar fá SMS- skilaboð og jafnvel persónuleg sím- töl frá fyrirtækjunum auk fjöl- margra tölvupósta. „Ég fæ ennþá að lágmarki fimm tölvupósta á dag með atvinnu- tilboðum frá Noregi og núna fyrr í vetur fengu nær allir hjúkrunar- fræðingar á landinu SMS-skilaboð, jafnvel tvisvar á dag, frá einu fyr- irtækinu sem var að reyna að fá hjúkrunarfræðinga til að vinna í Noregi,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga. Hann kveðst ekki vita hvernig fyrirtækið fékk símanúmer allra hjúkrunarfræðinga hérlendis. „Ef þú vilt vinna í Noregi og ert hjúkrunarfræðingur, þá geturðu verið farinn á morgun. Það rignir inn tilboðum um atvinnu í Noregi.“ Fleiri og fleiri fara til Noregs Ekki liggur fyrir nákvæmur fjöldi hjúkrunarfræðinga sem hafa farið héðan til starfa í Noregi. „Árið 2011 varð sprengja í þeim fjölda sem sótti um starfsleyfi í Noregi. Við er- um að tala um mörg hundruð hjúkr- unarfræðinga sem hafa leyfi til að starfa í Noregi og það er stærri hóp- ur sem vinnur í skorpum í Noregi og kemur svo til baka. Það virðist ekki vera neitt lát á því. Það eru alltaf fleiri og fleiri að fara út,“ segir Ólaf- ur. Þá eru launin talsvert hærri en á Íslandi. „Áður en ég varð formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fór ég til Noregs að vinna og fyrir þriggja vikna vinnu þar fékk ég virði u.þ.b. tveggja og hálfs mánaðar launa á Íslandi. Fólk er að minnsta kosti að tvöfalda tekjurnar sínar,“ segir Ólafur um laun íslenskra hjúkrunarfræðinga í Noregi. Hann áréttar að launin breytast auðvitað samhliða gengisbreytingum. Fá einnig tilboð frá Svíþjóð Þá segir Ólafur að Svíar séu byrjaðir að bjóða hjúkrunarfræð- ingum hér á landi vinnu í auknum mæli. „Það vantar hjúkrunarfræð- inga þar þannig að þeir hafa hækkað laun hjúkrunarfræðinga og hagrætt vinnuvikunni til þess að fá fleiri hjúkrunarfræðinga til landsins.“ Fá mörg at- vinnutilboð á hverjum degi  Launin tvöfalt hærri í Noregi Morgunblaðið/Golli Atvinna Ekki er erfitt fyrir hjúkr- unarfræðinga að fá vinnu í Noregi. Norðmenn sækja ekki einungis hjúkrunarfræðinga til Ís- lands. Fram kemur á vef færeyska útvarpsins, kvf.fo, að Norðmenn lokki færeyska hjúkrunarfræðinga til Noregs með betri launum. Óluva í Gong, formaður Félags fær- eyskra hjúkrunarfræðinga, segir að aldrei áður hafi svo margir færeyskir hjúkrunarfræðingar fengið norskt starfsleyfi eins og á þessu ári. Hún segist ánægð með að félagar sínir fái hærri laun en þessi þróun geti haft alvarleg áhrif á færeyska heilbrigðiskerfið. FÆREYSKIR HJÚKRUNARFRÆÐINGAR LÍTA TIL NOREGS Norðmenn bjóða betur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.