Morgunblaðið - 30.12.2014, Page 20

Morgunblaðið - 30.12.2014, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 SMÁRALIND • 2 HÆÐ SÍMI 571 3210 ÚTSALAN ER HAFIN Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • www.fonix.is Heimilistækjadagar20% afslá ttur Flugvirkjar hjá Landhelgisgæslu Íslands hafa ákveðið að fresta ótímabundnu verkfalli sem hefjast átti kl. 23.59 hinn 5. janúar á nýju ári samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissáttasemjara en fund- ur í kjaradeilu þeirra fór fram í húsakynnum þess í gærmorgun. Kjaradeilu flugvirkja hjá Gæsl- unni var vísað til Ríkissáttasemjara í lok október. Maríus Sigurjónsson, formaður samninganefndar flugvirkja, sagði í samtali við mbl.is fyrir nokkru að samningafundir hefðu framan af gengið vel þar til fulltrúar ríkisins hefðu sett fram þá kröfu að horfið yrði frá því fyrirkomulagi að miða kjör flugvirkja Gæslunnar við kjör flugvirkja sem störfuðu fyrir Ice- landair. Fresta verkfallinu Morgunblaðið/Ómar Börn á aldrinum 8-9 ára munu frá og með 1. janúar 2015 falla undir samn- ing Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Tannlæknafélags Íslands um tann- lækningar barna sem tók gildi 15. maí 2013. Tannlækningar þeirra eru þannig greiddar að fullu af SÍ fyrir utan árlegt komugjald sem nemur 2.500 kr. Forsenda greiðsluþátttöku SÍ er skráning barnanna hjá heim- ilislækni en nú þegar hafa um fimm- tíu þúsund börn verið skráð. Veitt í skrefum Gjaldfrjálsu tannlækningarnar hafa komið inn í skrefum frá gildis- töku samningsins og taka til ákveð- inna aldurshópa barna. „Það er vel- ferðarráðuneytið sem veitir fjármagnið í skrefum,“ segir Mar- grét Kristjánsdóttir, deildarstjóri sjúkraþjónustudeildar trygg- ingasviðs, um ástæður þess að þjón- ustan hafi ekki tekið strax til allra barna undir 18 ára aldri. Fyrst náði samningurinn til barna á aldrinum 15-17 ára en síðan hafa bæst við 3ja ára börn, 10-14 ára börn og nú síðast 8-9 ára börn. Hinn 1. janúar 2018 falla svo öll börn yngri en 18 ára undir samninginn. Margrét segir að byrjað hafi verið á elstu börnunum til þess að tryggja þeim tann- læknaþjónustu áður en þau féllu ut- an samningsins vegna aldurs. Því næst hafi yngstu börnin verið felld undir samninginn til að koma þeim í skoðun sem fyrst. Margrét bendir þó á að þau börn sem samningurinn tekur ekki til eiga áfram rétt á greiðsluþátttöku vegna tann- læknakostnaðar í samræmi við end- urgreiðsluskrá SÍ en það fyrir- komulag var í gildi áður en áðurnefndur samningur tók gildi. Einnig eiga börn í bráðavanda sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður rétt á aðstoð samkvæmt samningum þrátt fyrir að uppfylla ekki aldurs- markmiðin á hverjum tíma. Aðstoðin vel nýtt Margir hafa nýtt sér aðstoð SÍ vegna tannlækninga barna sinna en árið 2012 fengu 45.042 börn á aldr- inum 0-17 ára, endurgreiðslu vegna tannlækninga frá SÍ. Árið 2013 fékk 47.221 barn tannlækningar endurgreiddar frá SÍ, þar af fengu 12.632 börn fulla endurgreiðslu samkvæmt samningnum frá 15. maí 2013. Þá hafa 53.490 börn fengið endurgreiðslu það sem af er ári 2014, þar af 32.843 samkvæmt samningnum. Fjöldi bráðatilfella sem upp hafa komið frá því samn- ingurinn tók gildi er um 110. Að sögn Margrétar hefur framkvæmd aðstoðarinnar gengið vel og engin vandkvæði komið upp við gildistöku samningsins. „Við viljum bara að flest börn geti nýtt sér þessa þjón- ustu,“ segir Margrét að lokum. laufey@mbl.is Gjaldfrjálst fyrir 8-9 ára börn Morgunblaðið/Ernir Tannlæknir Um 53.490 börn hafa leitað til tannlæknis það sem af er ári.  Tannlækningar greiddar að fullu Mikið álag verður á starfsmönnum margra verslana um áramótin við að breyta verðmerkingum í hillum vegna breytinga á lögum um virðis- aukaskatt og vörugjöld, sem taka gildi um áramót. Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, segir að starfsfólkið fái frí 1. janúar en 2. jan- úar verði byrjað að breyta verðmerk- ingum á hillum. „Við þurfum að manna okkur í samræmi við þetta,“ segir hann og bætir við að þar sem nemendur, sem vinni hjá Bónus, séu enn í fríi í skólanum sé auðveldara að eiga við aukið álag. Reynt verði að ljúka við breytingarnar áður en búð- irnar verði opnaðar. Miklar breytingar Helstu breytingarnar eru þær að almenna þrep virðisaukaskatts lækk- ar úr 25,5% í 24% sem lækkar verð um 1,2%. Neðra þrepið hækkar úr 7% í 11% sem hækkar verð um 3,7%. Al- menn vörugjöld verða afnumin. Raf- tæki lækka um 18-21% og bygginga- vörur og bílavarahlutir sem báru 15% vörugjöld lækka um 14%. Prenta þarf út nýtt verð fyrir hverja vörutegund og skipta um verð- miða á hillunum. Í 11 verslunum Bón- uss eru rafrænar verðmerkingar að hluta en annars þarf að gera hverja breytingu með fyrrnefndum hætti. Guðmundur segir að þetta taki allt sinn tíma en vinnan hafi verið vel und- irbúin. Tölvuvinnan sé einföld og nýtt verð verði á afgreiðslukössunum við opnun, en merkingarnar á hillunum komi síðan jafnt og þétt. „Þetta verð- ur ákveðinn sprettur um morguninn 2. janúar en við gerum okkar besta.“ steinthor@mbl.is Verðbreyting- ar tímafrekar  Álag í verslunum vegna breytinga á virðisaukaskatti og vörugjöldum Morgunblaðið/Kristinn Bónus Breyta þarf öllum verðmerk- ingum á hillum um áramót.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.