Morgunblaðið - 30.12.2014, Side 22
BAKSVIÐ
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Umræður um útgönguskatt á
greiðslur til kröfuhafa gömlu bank-
anna eru farnar að hafa áhrif á verð-
mæti krafna á hendur bönkunum, að
sögn Erlendar Gíslasonar hæsta-
réttarlögmanns og skiptastjóra
þrotabús Baugs.
Hæstiréttur við-
urkenndi þann 4.
desember síðast-
liðinn 13,7 millj-
arða króna kröfu
þrotabúsins á
hendur Kaup-
þingi.
Næsti skipta-
fundur í þrota-
búinu verður
haldinn þann 6. janúar næstkomandi
en þar stendur til að taka ákvörðun
um hugsanlega ráðstöfun kröfunnar.
Erlendur segir að óskað verði eftir
heimild kröfuhafa þrotabúsins til
þess að selja kröfuna á hendur
Kaupþingi í samræmi við gangverð
slíkra krafna. Óvíst sé hvenær skipt-
um á Kaupþingi ljúki og að hlutverk
skiptastjóra sé að ljúka skiptum á
þrotabúum eins fljótt og greiðlega
og kostur sé.
,,Það er engin launung á því að
kröfur á hendur bönkunum ganga
kaupum og sölum. Hugsanleg sala á
kröfunni verður borin undir kröfu-
hafa því þeir kunna að vilja fá fjár-
muni strax í stað þess að bíða eftir að
skiptum ljúki á Kaupþingi.“
Aðspurður kveðst Erlendur ekki
vera með neinn sérstakan kaupanda
í huga en að nokkrir hafi þegar sýnt
eigninni áhuga. Hann geti ekki tjáð
sig um hvað muni gerast á skipta-
fundinum þar sem hann viti ekki
hverjir mæti á fundinn. Þó verði
krafan seld fáist fyrir því heimild
kröfuhafa.
Hann segir dómkröfuna mjög
stóra eign búsins en heildarkröfur á
hendur þrotabúi Baugs voru um 320
milljarðar króna. Erlendur gerir ráð
fyrir að söluverð kröfunnar verði um
3 milljarðar króna, þar sem venju-
legt gangverð kröfu á hendur bank-
anum sé um 20-25% af nafnvirði.
Megnið fór inn í Kaupþing
Forsaga málsins er sú að Baugur
seldi félaginu 1998 ehf., hluti sína í
Högum árið 2008 en kaupin voru
fjármögnuð með láni frá Kaupþingi.
Baugur nýtti hluta söluandvirðisins
til að leysa hlutina úr veðböndum.
Eftirstöðvarnar fóru í kaup á hlutum
í Baugi sjálfum og þeim fjármunum
var ráðstafað frá hluthöfunum inn á
skuldir þeirra við Kaupþing.
Héraðsdómur féllst á riftunar- og
skaðabótakröfur þrotabús Baugs
vegna kaupanna í mars 2013. Voru
hluthafar Baugs því dæmdir til að
greiða þrotabúinu 15 milljarða til
baka. Stærstur hluti fjárins sem
hluthafarnir fengu frá Baugi rann
aftur inn í Kaupþing til að greiða nið-
ur skuldir hluthafanna. Því taldi
þrotabú Baugs sig eiga kröfu í
þrotabú Kaupþings. Hæstiréttur
féllst á það með héraðsdómi að kraf-
an nyti stöðu almennrar kröfu við
slit á Kaupþingi.
Útgönguskattur hefur áhrif
á verðmæti krafna á bankana
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kröfuhafar Nokkrir ráðgjafar kröfuhafa slitabús Kaupþings fara yfir málin á göngum Hörpu á kröfuhafafundi .
Sala kröfu Baugs
» Þrotabú Baugs fékk dæmda
13,7 milljarða kröfu á hendur
Kaupþingi í Hæstarétti.
» Skiptastjóri búsins segir al-
mennt gangverð krafna á
hendur bönkunum um 20-25%
af nafnvirði en að fyrirætlanir
um útgönguskatt hafi áhrif á
verðmæti krafna.
» Hann mun óska eftir heimild
kröfuhafa til að selja kröfuna á
hendur Kaupþingi, en næsti
skiptafundur er 6. janúar nk.
Skiptastjóri Baugs áætlar að 13,7 milljarða krafa seljist á um 3 milljarða króna
Erlendur
Gíslason
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Þegar þú kaupir bökunardropa frá
Kötlu, styður þú fjölfötluð börn til náms.
Sunnusjóður hefur í meira en 30 ár
aukið námsmöguleika fjölfatlaðra
barna. Katla er helsti bakhjarl sjóðsins.
DROPAR SEM
LOFA GÓÐU
www.sunnusjodur.is www.katla.is/dropar
! "
!#
$
%! $
%
!
$%
#"
$$$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%#
!%
"$
% $
%
%
#!
"
$#!
%
!"$
!
!%
%!"$
%"#
%
$!
"
$#
%#!!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Danskir bankar íhuga nú þann mögu-
leika að leggja neikvæða vexti á inn-
stæður, þannig að innstæðueigendur
greiði fyrir að hafa peninga á bankabók.
Vísa þeir til þess að þeir greiði sjálfir nei-
kvæða vexti þegar þeir leggi peninga inn
hjá danska seðlabankanum.
Í viðtali við Berlingske Tidende spyr-
Niels Storm Stenbæk yfirhagfræðingur
dönsku bankasamtakanna, Finansrådet,
hvort ekki sé komið að því að bankar
neyðist til að bjóða viðskiptavinum sín-
um neikvæða vexti. Sviss og Japan eru
meðal landa sem hafa brugðið á þetta
ráð, vegna afar lágra vaxta.
Danir íhuga neikvæða
vexti á innstæður
● Aðeins voru 49 íslensk skip á sjó við
landið í gær. Lítið er um sjósókn milli
jóla og nýárs, þar sem fiskiskipum er
óheimilt að stunda veiðar á hátíðisdög-
unum. Þau mega hefja veiðar á mið-
nætti annars dags jóla og vera að fram
að hádegi gamlársdags. Eftir þann
tíma skulu þau vera í landi fram yfir ný-
ársdag. Á þetta við um fiskiskip en
engin farskip eru nú skráð á Íslandi.
Skipin sem voru að veiðum í gær eru
togarar eða stærri skip, sem flest fiska
fyrir vinnslur í landi. Um þetta er fjallað
á kvotinn.is
Aðeins 49 skip á sjó við
Íslandsstrendur í gær
STUTTAR FRÉTTIR ...
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Íslensk eignastýring ehf., sem er í
meirihlutaeigu Straums fjárfest-
ingabanka, gekk í gær frá kaupum á
27,51% hlut í Íslenskum verðbréfum
(ÍV). Með kaupunum hefur Íslensk
eignastýring því eignast 58,14%
eignarhlut í Íslenskum verðbréfum.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá Straumi að félagið hafi nýtt sér
skömmu fyrir jól forkaupsrétt að
hlutum Íslandsbanka í ÍV. Ekkert
verður því að fyrirhuguðum kaupum
MP banka og Lífeyrissjóðs verslun-
armanna á ríflega fjórðungshlut í Ís-
lenskum verðbréfum. Straumur
nýtti sér einnig forkaupsrétt að 8,8%
hlut Eignasafns Seðlabanka Íslands
(ESÍ) fyrr í þessum mánuði. Greint
var frá því í Morgunblaðinu í gær að
Straumur hefði lokið við hlutafjár-
aukningu upp á 500 milljónir króna.
Í aðdraganda kaupanna sótti
Straumur fjárfestingabanki, ásamt
Íslenskri eignastýringu, um heimild
Fjármálaeftirlitsins til þess að fara
með yfir 50% virkan eignarhlut í Ís-
lenskum verðbréfum. Hefur Fjár-
málaeftirlitið samþykkt þá umsókn.
Í fréttatilkynningu er haft eftir
Jakobi Ásmundssyni, forstjóra
Straums: „Íslensk verðbréf eru
spennandi félag og tel ég mikil tæki-
færi fólgin í þessum ánægjulega
áfanga í starfsemi Straums. Starfs-
fólk Íslenskra verðbréfa hefur unnið
gott starf á undanförnum árum þrátt
fyrir ákveðna óvissu um framtíðar-
eignarhald á félaginu. Þeirri óvissu
hefur nú verið eytt og mun Straumur
einbeita sér að því að taka þátt í upp-
byggingu Íslenskra verðbréfa ásamt
starfsfólki fyrirtækisins og öðrum
hluthöfum.“
Morgunblaðið/Þórður
Forstjóri Jakob Ásmundsson.
Straumur eignast
meirihluta í ÍV
Nýtti sér for-
kaupsrétt að 27,5%
hlut Íslandsbanka