Morgunblaðið - 30.12.2014, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Tugir flugvéla og skipa leituðu í gær
að farþegaþotu flugfélagsins AirAsia
undan ströndum Indónesíu í gær.
Talið er líklegt að þotan hafi hrapað í
hafið, að sögn indónesískra yfir-
valda.
Farþegaþotan var af gerðinni Air-
bus A320-200 og í henni voru 162
menn, 155 frá Indónesíu, þrír frá
Suður-Kóreu og einn frá fjórum
löndum, Bretlandi, Frakklandi, Mal-
asíu og Singapúr.
Flugvélar og skip frá Ástralíu,
Indónesíu, Malasíu og Singapúr tóku
þátt í leitinni í gær. Talsmaður indó-
nesíska flughersins sagði að leitin
beindist að svæði við eyjuna Belit-
ung þar sem olíubrák fannst í gær.
„Við erum að rannsaka hvort olían er
flugvélaeldsneyti úr þotu AirAsia
eða úr skipi vegna þess hún fannst á
siglingaleið,“ sagði talsmaður flug-
hersins.
„Líklega á hafsbotni“
„Þotan er líklega á hafsbotni,“
sagði Bambang Soelistyo, yfirmaður
Leitar- og björgunarstofnunar
Indónesíu. Hann bætti við að þot-
unnar væri leitað á svæði þar sem
sjórinn væri um 40 til 50 metra djúp-
ur.
Flugmenn þotunnar höfðu beðið
um leyfi til að breyta flugáætluninni
vegna slæms veðurs en vélin sendi
ekki frá sér neyðarkall áður en hún
hvarf af ratsjá. Tony Abbot, for-
sætisráðherra Ástralíu, sagði ekkert
benda til þess að þotan hefði horfið
með dularfullum hætti líkt og þota
Malaysia Airlines sem hvarf á leið-
inni frá Kúala Lumpur til Peking í
mars og hefur ekki fundist. Talið er
að þotan finnist fljótlega ef hún
hrapaði í grennd við Belitung-eyju.
Farþegaþotan var í eigu indónes-
ísks systurfélags AirAsia sem er
með höfuðstöðvar í Malasíu. Þotan
var tekin í notkun í október 2008 og
hún hafði farið í 13.600 ferðir á alls
23.000 klukkustundum.
Surabaya
Heimildir: AirAsia, Flightradar24/
samgönguráðuneyti Indónesíu/
varnarmálaráðuneyti Malasíu
Flug QZ8501frá Indónesíu
250 km
SINGAPÚR
MALASÍA
INDLANDSHAF
JAKARTA
KALIMANTAN
BORNEÓ
BRÚNEI
Belitung
INDÓNESÍA
Þotan átti að lenda klukkan
08.30 f.h. að staðartíma í Singapúr
(00.30 að ísl. tíma á sunnudag)
Bangka
Airbus A320-200
Áætluð
flugleið
Singkep
Karimata
Þotan fór á loft kl. 05.35 f.h. að
indónesískum tíma
á sunnudag,
(22.35 að ísl. tíma á laugardag)
Síðasta viðhald: 16. nóvember
Farþegaþota flugfélagsins AirAsia hvarf undan strönd Indónesíu. 162 voru í þotunni
JAVA-
HAF
AirAsia fékk þotuna í október 2008
Þjóðerni farþega og
áhafnar
Flugstjóri
Flugmaður
Áhöfn
149
3
1 hvert
Indónesía
Frakkland
Indónesía
Indónesía
Suður-Kórea
Bretland
Malasía
Singapúr
5
Farþegar
06.12 f.h.
Bað um leyfi flugumferðarstjóra til
að hækka flugið í 38.000 fet (úr
32.000 fetum) til að sneiða
hjá skýjum
1
2
06.18 f.h.
Hvarf af ratsjá
3
07.55 f.h.Missti samband
við flugumferðarstjóra
4
Leitarsvæði
í gær
Talið er að þotan
hafi hrapað í hafið
Vélin lenti í óveðri áður en hún hvarf af ratsjá
Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikklands, til-
kynnti í gær að efnt yrði til þingkosninga í landinu í
næsta mánuði eftir að þinginu tókst ekki að kjósa
nýjan forseta í þriðju tilraun. Líklegt er að kosning-
arnar fari fram 25. janúar. Skoðanakannanir benda
til þess að vinstriflokkurinn Syriza komist til valda í
kosningunum, en hann hefur hafnað sparnaðar-
aðgerðum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur
sett sem skilyrði fyrir aðstoð við Grikkland vegna
efnahagskreppu í landinu. Eftir að tilkynnt var um
kosningarnar tilkynnti AGS að sjóðurinn myndi
fresta frekari aðstoð við Grikkland þar til ný stjórn
hefði verið mynduð. Evrópusambandið hvatti Grikki
til að standa við samkomulagið við AGS.
GRIKKLAND
AGS frestar aðstoð vegna þingkosninga
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Bjúgur eða
liðverkir?
www.annarosa.is
Tinktúran Fíflablöð og birki þykir draga úr bjúg
og liðverkjum vegna mikillar vökvasöfnunar.
Ég er 47 ára og hef verið með gigtarverki og stirðleika í liðum,
stundum það mikið að ég á erfitt með að klæða mig í sokka á
morgnana. Ég er að bíða eftir tíma hjá gigtarlækni en í millitíðinni
ákvað ég að prófa Fíflablöð og birki. Nú er ég búin með tvær flöskur
og finn mikinn mun á mér og það er mikill léttir að vera ekki stirð
og kvalin. Tinktúran hefur líka haft vatnslosandi áhrif sem dregur úr
liðverkjum. Ég mun halda áfram að taka þessa tinktúru því ég hef
fulla trú á henni og því sem kemur úr náttúrunni.
– Hrönn Traustadóttir
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
K 2.21
110 bör max
360 ltr/klst
K 4.200
130 bör max
450 ltr/klst
K 7.700/K 7.710
160 bör max
600 ltr/klst
K 5.700
140 bör max
460 ltr/klst
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
T 400
Snúningsdiskur
Fyrir pallinn,
stéttina o.fl.
A.m.k. tíu manns létu lífið þegar eldur kviknaði í bíla-
ferju á Jónahafi, að sögn grískra og ítalskra yfir-
valda. Fólk sem komst lífs af lýsti hræðilegri þrek-
raun og sagði að litlu hefði mátt muna að miklu fleiri
hefðu farist. Vonskuveður var á svæðinu og mikill
öldugangur. 427 manns var bjargað úr ferjunni en
óljóst var hversu margir voru í henni þegar eldurinn
kviknaði. Einn farþeganna kvaðst hafa talið sig eiga
skammt eftir þegar þykkan svartan reyk lagði yfir
ferjuna sem var á leiðinni til Ítalíu frá Grikklandi.
„Við vissum ekki hvað við áttum að gera. Áhöfnin
hafði ekki hugmynd um hvernig ætti að koma fólki úr
ferjunni,“ sagði hann. „Björgunarbátarnir virkuðu
ekki, það var aðeins einn bátur í sjónum og enginn úr
áhöfninni var á staðnum til að aðstoða fólk.“
Minnst tíu fórust í eldsvoða í ferju
AFP
Ferja í neyð Eldur í bílaferjunni Norman Atlantic.