Morgunblaðið - 30.12.2014, Side 28

Morgunblaðið - 30.12.2014, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 ✝ Guðlaug Magn-úsdóttir var fædd í Vík í Mýr- dal 29. janúar 1948. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 18. des- ember 2014. Foreldrar henn- ar voru Valgerður Guðlaugsdóttir, f. 7.10. 1918, d. 6.6. 2002, og Magnús Þórðarson, f. 16.7. 1917, d. 2.12. 2003. Systkini Guðlaugar eru 1) Solveig María, f. 26.1. 1949, maki Kristján Guðmunds- son, 2) Þórður sérkennari, f. 24.4. 1950, maki Steinlaug Sig- ríður Bjarnadóttir. 3) Unnur hjúkrunarfræðingur, f. 28.6. 1951, maki Valgeir Kristinsson, 4) Guðlaugur Pálmi, f. 24.2. 1957, maki Þorgerður Einars- dóttir og 6) Gerður, f. 21.7. 1959. Systkini Þorsteins eru Þorkell, Þorlákur Helgi, Þor- valdur Karl, Þorgeir Sigur- björn og Þóra Elín. 14. sept- ember 1968 giftist Guðlaug eftirlifandi eiginmanni sínum, Þorsteini Helgasyni, f. 16.4. 1946. Börn þeirra eru 1) Magn- ús, f. 10.12. 1968, maki Jóna Ann Pétursdóttir, f. 20.9. 1971, með ritgerðinni „Skilnaðir og fjölskyldubreytingar frá sjón- arhóli barna“ frá Háskóla Ís- lands árið 2008. Guðlaug starf- aði á mörgum sviðum félags- ráðgjafar á ferli sínum, fyrst á Sálfræðideild skóla í Breiðholti 1978-81, síðan á Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar næsta áratuginn. Árin 1990- 1992 og 1994-95 vann hún á dagdeild geðdeildar Borgar- spítala, einkum við hópmeð- ferð. 1992-1994 sneri hún aftur til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar og var þar forstöðumaður vistheimilasviðs. Hún lagði einnig lið við kennslu og starfsþjálfun í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Í nokkur ár starfaði hún sjálfstætt við hjóna- og fjölskylduvinnu, oft- ast meðfram föstu starfi. 1997- 2001 var hún forstöðufélags- ráðgjafi á geðdeild Landspítal- ans. Allt síðan 2001 vann hún á Fjölskylduþjónustu kirkjunnar við hjóna- og fjölskyldumeðferð og handleiðslu starfsstétta, einkum presta. Guðlaug var virk í Kvennaframboðinu í Reykjavík og var fulltrúi þess í stjórn Verkamannabústaða á níunda áratugnum. Hún beitti sér í pólitísku starfi innan Sam- fylkingarinnar og var m.a. fulltrúi hennar í barnaverndar- nefnd Reykjavíkur frá 2010 til dauðadags. Útför Guðlaugar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 30. desember 2014, kl. 11. börn þeirra eru Þorsteinn Gauti, f. 16.10. 2005, og Nanna Helga, f. 1.9. 2009, með Auðuni Má Guð- mundssyni á Jóna börnin Pétur, f. 1.12. 1997, og Öldu Lín, f. 25.12. 1999, 2) Helgi, f. 15.10. 1970, maki Pernille Folkmann, f. 15.3. 1973, börn þeirra eru Guðlaug Fríða, f. 21.5. 2001 og Agnes Matthildur, f. 7.12. 2007, c) Sig- rún, f. 2.2. 1986, maki Þorkell Guðjónsson, f. 23.3. 1983, börn þeirra eru tvíburarnir Guðjón Pétur og Helga Matthildur, f. 29.12. 2012. Guðlaug lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1968 og kenndi, ásamt manni sínum, við grunnskólann á Kirkju- bæjarklaustri 1969-71. Þá flutti fjölskyldan til Svíþjóðar og lauk Guðlaug félagsráðgjafa- prófi frá Háskólanum í Gauta- borg 1978. Meðfram starfi á Ís- landi lauk Guðlaug framhalds- námi í fjölskyldumeðferð og handleiðslu. Meistaranám stundaði Guðlaug við Háskól- ann í Lundi 1996-97 og lauk því Tengdamóðir mín, Guðlaug Magnúsdóttir, lést á líknardeild Landspítalans þann 18. desember síðastliðinn eftir rúmlega árs- langa baráttu við illvígan sjúk- dóm. Hún tókst á við sjúkdóm sinn af einstöku æðruleysi og skirrðist ekki við að horfast í augu við það sem beið hennar. Það er lýsandi fyrir hana að eitt af því fyrsta sem hún réðst í eftir að hún vissi í hvað stefndi var að taka til í geymslunni svo að Þor- steinn og börnin þyrftu ekki að standa í því eftir hennar dag. Guðlaug hafði einstaklega mikinn áhuga á fólki og þrátt fyrir veik- indi sín lét hún engan bilbug á sér finna og lagði rækt við vini og vandamenn sem aldrei fyrr. Hún notaði hvert tækifæri sem gafst til þess að vera með barnabörn- unum og undir það síðasta skynj- aði maður að það var oft meira af vilja en mætti. En hún kvartaði aldrei og það var augljóst að hún vildi nýta tímann vel sem eftir var. Ég kynntist Magnúsi, elsta syni Guðlaugar, fyrir um það bil tíu árum. Eftir stutt kynni var mér boðið í mat á Freyjugötuna til Guðlaugar og Þorsteins þar sem ég varð strax vör við einlæg- an áhuga hennar á fólki og upp frá því var mér og eldri börnum mínum tveimur tekið eins og hverjum öðrum í fjölskyldunni. Hún lagði sig alla fram við að byggja upp tengsl við þau og lagði hún mikla rækt við þau eins og önnur barnabörn sín. Eiga þau öll margar góðar minningar af Freyjugötunni þar sem þeim var m.a. boðið upp á barnakaffi, sí- trónusafa og afabollur. Guðlaug hafði mikinn áhuga á bókmennt- um og ber heimili þeirra Þor- steins því glöggt vitni. Hún hélt upp á J.R.R. Tolkien meðal ann- arra og tók hún að sér að upp- fræða börnin um ævintýraheima hans eftir því sem þau höfðu ald- ur til á sérstökum Lord of the Rings bíókvöldum sem þeim þótti einstaklega skemmtilegt. Guðlaug hafði mikla nærværu og lá ekki á skoðunum sínum. Hún hafði sterka réttlætiskennd og það þurfti enginn að efast um hvar hún stóð, hvorki í pólitík né á öðrum sviðum. Hún var einstak- lega hjálpsöm og lagði sig alla fram um að hjálpa þeim sem til hennar leituðu. Hún var sannar- lega á réttri hillu í lífinu og í gegn- um starf sitt sem félagsráðgjafi náði hún að nýta hæfileika sína og áhuga á fólki til góðs og skila góðu ævistarfi. En Guðlaug var ekki aðeins tengdamóðir mín heldur var hún einnig samherji í baráttunni við þennan illvíga sjúkdóm, krabba- mein, sem við greindumst báðar með, með viku millibili fyrir rúmu ári síðan. Því þótt hún væri sjálf veik vildi hún gera allt sem hún gat til að hjálpa og gerði það eins lengi og hún hafði krafta til. Ég og fjölskylda mín erum þakklát fyrir þann tíma sem við höfum átt með henni og eftir lifa margar góðar minningar um góða tengdamömmu og ömmu sem gaf ríkulega af öllu sem hún átti og sem unni góðum félagskap fram- ar öllu öðru. Jóna Ann Pétursdóttir. Guðlaug tengdamóðir mín og vinkona, er fallin frá, allt of snemma. Missirinn er mikill, og söknuðurinn sár, en eftir situr minning um einstaka konu sem með sínum aðdáunarverða lífs- krafti og elju gaf svo ótrúlega mikið til allra í kringum sig. Það eru rúm 10 ár síðan ég kynntist henni Sigrúnu minni og fór að venja komur mínar til Guð- laugar og Þorsteins á Freyjugöt- una. Frá fyrsta degi var mér tekið af mikilli gestrisni og alúð, og hef- ur æ síðan liðið einstaklega vel í félagsskap þeirra hjóna. Okkur Guðlaugu kom fljótt vel saman. Hún var skemmtileg og ákveðin kona sem lá ekki á skoðunum sín- um um menn og málefni, og var á köflum stórorð, ekki síst þegar pólitíska andstæðinga bar á góma. Guðlaug var félagsráðgjafi af lífi og sál, umhyggjusöm og með eindæmum ráðagóð. Hún hafði ríka réttlætiskennd og einlægan áhuga á fólki. Ef á móti blés hugs- aði hún í lausnum (en ekki vanda- málum) og lét verkin tala. Orðið uppgjöf var einfaldlega ekki til í hennar orðaforða. Hún reyndist mörgum vinum og ættingjum ómetanlegur stuðningur á erfið- um tímum, þar á meðal mér sjálf- um. Hún setti ávallt fólkið sitt í fyrsta sæti og verður skarð henn- ar vandfyllt. Eitt af því sem ég dáðist að við Guðlaugu var eiginleiki hennar til að lifa í núinu. Sitja yfir góðum kaffibolla og njóta. „Lífið er of stutt til að drekka vont hvítvín, Keli minn,“ sagði hún við mig fyr- ir nokkrum árum á veitingahúsi í Kaupmannahöfn. Þetta lífsvið- horf endurspeglar vel síðasta tím- ann sem hún lifði, eftir að hún fékk að vita í hvað stefndi. Þann tíma notaði hún fyrst og fremst til að vera með fólkinu sínu, vinum, fjölskyldu og barnabörnunum, og dvöldu hún og Þorsteinn meðal annars í rúman mánuð síðastliðið sumar hjá okkur Sigrúnu í Kaup- mannahöfn og pössuðu tvíburana okkar. Fyrir þann dýrmæta tíma erum við mjög þakklát. Þakklæti er mér einmitt efst í huga þegar ég hugsa til Guðlaug- ar. Þakklæti fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman og þá óendanlega hlýju og ást sem hún sýndi mér, Sigrúnu og börn- um okkar. Jafnvel undir það síð- asta þegar orkan var á þrotum, fann hún kraft til að rífa sig upp og lesa sögur fyrir ömmubörnin og hvísla fallegum orðum að okk- ur hinum. Hvíl í friði, elsku Guðlaug, og innilegar þakkir fyrir allt. Þorkell Guðjónsson. „Vont er þeirra ranglæti, verra er þeirra réttlæti,“ sagði Jón Hreggviðsson forðum, að sögn nóbelsskáldsins. Barátta gegn ranglæti en fyrir réttlæti á okkar tímum var Guðlaugu Magnús- dóttur, mágkonu minni, ríkulega í brjóst borin. Hennar réttlæti var réttur lítilmagnans, réttur hans til mannsæmandi lífs og stuðn- ings samfélagsins, stuðnings okk- ar allra. Þetta endurspeglaðist í því ævistarfi sem hún valdi sér, félagsráðgjöf. Flestum okkar finnst við eiga nóg með okkar eig- ið sálartetur. Þeim mun aðdáun- arverðara er að til sé fólk, eins og Guðlaug, sem hefur köllun til að hjálpa öðrum til að kljást við sín innri og ytri vandamál. Þetta er eitt af því sem gerir þjóðfélagið mennskara. Þökk sé Guðlaugu fyrir hennar skerf til þess. Barátta Guðlaugar gegn rang- lætinu birtist m.a. í virkri þátt- töku í pólitísku starfi. Hennar hugsjón var ekki „að græða á daginn og grilla á kvöldin“ svo að vitnað sé í lífsviðhorf sem hefur nýverið komið þjóðfélaginu á kaldan klaka. Guðlaug vildi vissu- lega „grilla á kvöldin“ í þeim skilningi að njóta lífsins með fjöl- skyldu og vinum. Heimili þeirra Guðlaugar og Þorsteins í alfara- leið við Skólavörðuholtið hefur verið síopinn samastaður fyrir gleði og góðan viðurgerning. Uppspretta þeirra fjármuna sem þurfti til að geta veitt og gefið var þó ekki fólgin í því „að græða á daginn“ heldur að strita í svita síns andlits og þiggja fyrir það þau lágu laun sem skömmtuð eru þeim sem sinna umönnum sjúkra og þurfandi. Guðlaug sá fyrir sér samfélag samhjálpar og samvinnu, ekki það þjóðfélag þar sem hver reynir að skara eld að sinni köku. Fyrir þann málstað lagði hún sig óspart fram m.a. með því að styðja við bakið á fólki sem henni fannst eiga að komast í framvarðarsveit. Það gerði hún fremur á bak við tjöldin en á torgum úti. Þannig vann hún af dugnaði á kosninga- skrifstofum þeirra sem hún taldi deila með sér skoðunum um mannúð og meðlíðan. Þau hjón Guðlaug og Þorsteinn hafa verið gæfufólk, átt þrjú börn og myndarlegan hóp barnabarna. Fyrir rúmu ári var mikil hátíð í fjölskyldunni þegar afinn Þor- steinn varði vandaða doktorsrit- gerð um Tyrkjaránið, bakgrunn þess og afleiðingar. Sjaldan hef ég séð Guðlaugu glaðari og stoltið yfir dugnaði manns síns skein af henni. Þá vissum við ekki, að rétt áður höfðu þau hjón fengið þann dóm að Guðlaug væri haldin sjúk- dómi sem gefur engin grið. Guð- laug tók örlögum sínum af æðru- leysi og einbeitti sér að því að styrkja böndin innan fjölskyld- unnar og rækta vináttuna. Þor- steinn, börn þeirra og barnabörn lögðu sig fram um að gleðja Guð- laugu á kveðjuárinu jafnframt því sem þau sóttu styrk til hennar sjálfrar. Þau Guðlaug og Þorsteinn voru mér skjól og huggun þegar ég stóð í sömu sporum og bróðir minn nú, við fráfall lífsförunauts. Fyrir það þakka ég Guðlaugu á þessari kveðjustund. Þorkell Helgason. „Lífið manns hratt fram hleyp- ur, hafandi enga bið“ kvað skáld- ið. Þegar stór manneskja yfirgef- ur heiminn er þó eins og tíminn standi í stað eitt augnablik. Lífs- hlaupi Guðlaugar mágkonu minn- ar er lokið og þar var sláttumað- urinn allt of fljótt á ferð. Guðlaug var samnefnarinn sem hélt saman stórum ættboga Víkurfjölskyld- unnar og tengslaneti þar sem enginn var svo fjarskyldur eða ótengdur að verðskulda ekki um- hyggju og virðingu. Hún var elsta barnið í þéttum tröppugangi sex systkina. Dugnaðarleg og atorku- söm frá fyrstu byrjun og hóf snemma að stjórna að sögn móð- ur sinnar, standandi í stigaskör- inni í afahúsi segjandi fullorðnum fyrir verkum. Í fjölskyldsögu sem var henni sérlegt áhugamál runnu saman fagkonan, femínist- inn og sósíalistinn. Með dálæti á Jung eins og sæmir þerapista af hæsta kalíber taldi hún að hið „kollektívt ómeðvitaða“ lifði sem arfur kynslóðanna og gerði örlög einstaklinganna samofin og merkingarbær. Þau hjónin, hún og Þorsteinn, svo samrýmd að erfitt var að vita hvar öðru sleppti og hitt tók við. Sælkerar og fag- urkerar sem gerðu alla hluti skemmtilega, fágaða, smekklega og menningarlega, hvort sem var mat, rökræður, stjórnmál eða tónlist. Í ögrandi og skapandi samræðum um hinn flókna sál- arbúskap mannfólksins voru nýj- ustu fræðin krufin, til dæmis sú frelsandi lífsspeki að aldrei sé of seint að verða sér úti um góða barnæsku. Þar lögðust saman sérþekking Þorsteins í minning- arfræðum, sem hann góðu heilli er orðinn doktor í, og sá hæfileiki Guðlaugar að mæta fólki þar sem það er. Það þarf reyndan og skarpan þerapista til að ögra því lamandi sjónarmiði að slæm bernska eyðileggi lífið, og virkja þann sköpunarmátt sem megnar að endurbyggja og heila hið brotna. Það kunni Guðlaug. Og svo var það húmorinn og sjálfsírónían, snarbeitt og elegant kaldhæðni þegar best lét. Alveg rosalega góð stóra systir sem vissi hvað yngri systkinum var fyrir bestu og sagði þar sögur af eigin ágæti. Meðal annars hve hart hún lagði að foreldrum sín- um að láta laga eyrun á Þórði, það næði engri átt að hafa drenginn með svona útstæð eyru. Eða úti í snjónum með Pálma litla bróður, þar sem hún stóð álengdar og kastaði snjó í hann uns hann fór að gráta, kom þá og huggaði hann af alúð og endurtók svo leikinn nokkrum sinnum. Það þurfti nefnilega að herða Pálma fyrir líf- ið, sem fyrir vikið uppskar fágæta blöndu af hörðu og mjúku sem reynst hefur hið vænsta vega- nesti í sambúð okkar hjóna. Ekki skemmir fyrir að Guðlaug sagðist hafa valið mig sem mágkonu á námsárum okkar í Gautaborg. Hvort sú var raunin má einu gilda, sagan er í senn tákn um hlýju, velvild og áhrifavald. Í Guðlaugu mættust ósvikin umhyggja fyrir öðrum og sá eig- inleiki að standa með sjálfum sér. Atkvæðamikil og næm, vakin og sofin yfir velferð annarra, á vett- vangi stjórnmála, sem félagsráð- gjafi og í hópi fjölskyldu og vina. „Allrar veraldar vegur víkur að sama punkt, fetar þann fús sem tregur, hvort fellur létt eða þungt.“ Það er með djúpri virð- ingu og þakklæti sem ég kveð þessa einstöku konu. Þorgerður Einarsdóttir. Nú þegar komið er að kveðju- stund, sem allt of fljótt ber að, er hugurinn hjá ástvinum Guðlaug- ar svilkonu minnar. Missir þeirra er mestur og heimurinn verður ekki samur. Guðlaug átti góða vini og hafði einlægan áhuga á velferð náungans. Hún var sann- arlega á réttri hillu sem fé- lagsráðgjafi þar sem starf hennar var gjöfult og frjósamt. Hún átti í sér mikla væntumþykju gagnvart fólki almennt og þoldi ekki mis- rétti eða ójöfnuð. Hin sterka sam- félagslega tilfinning sem ein- kenndi hana hafði greinilega einnig ríkt á æskuheimilinu í Vík, en Guðlaug var elst í glæsilegum systkinahópi sem ber með sér óminn af sterkri náttúrunni og hafinu við suðurströndina. Þorsteinn og Guðlaug voru ákveðin fyrirmynd fyrir okkur Þorgeir. Er ég kynntist þeim fyrst í byrjun áttunda áratugar síðustu aldar voru þau nýkomin frá námi í Svíþjóð og báru með sér nýja strauma sem þó féllu vel að þeim samfélagslegu hugsjón- um sem voru ráðandi hjá ungu fólki hér heima á Íslandi. Það var spennandi og gaman að koma í heimsókn á hið fallega heimili þeirra. Þorgeir á að sjálfsögðu eldri minningar um Guðlaugu, sú fyrsta frá því er Þorsteinn stóri bróðir tók hann með sér í heim- sókn til kærustunnar, sem þá var í kennaraskólanum og leigði íbúð í Norðurbrún með vinkonu sinni. Einnig er sterkt í minningu Þor- geirs hve gaman var að kynnast hinni fjörugu fjölskyldu í Vík í að- draganda brúðkaups Þorsteins og Guðlaugar árið 1968. En allt er breytingum háð, nú hafa orðið straumhvörf og sorgin ríkir. Elsku Þorsteinn, Magnús, Helgi, Sigrún, tengdabörn og öll barna- börnin, guð styrki ykkur og hjálpi ykkur til að muna að Guðlaug lifir áfram í ykkur og einnig í sínum kæru vinum, í skjólstæðingum sínum og í okkur öllum sem feng- um að njóta við hana samvista. Laufey Tryggvadóttir. Elsku Guðlaug. Ég trúi ekki ennþá að þú sért farin. Allt frá því fréttirnar af veikindunum bárust hefur lífið verið eins og skrýtinn millikafli í tónverki, með ómstr- íðum hljómum og óþægilegum takti. Þú sagðir í sumar að þú værir hætt við að deyja og mér fannst ekkert vera sjálfsagðara en að trúa því. Innst inni beið ég eftir því að skrýtni kaflinn kláraðist og breyttist aftur í kunnuglega lag- línu en veikindin urðu þess í stað bara raunverulegri með tíman- um. Ég var samt ekki tilbúin að trúa því að þú myndir fara í al- vöru. Þú varst stóra systirin sem stýrði ferðinni, sannkölluð ætt- móðir, alltaf svo sterk og ákveðin. Þú hugsaðir vel um alla og virtist hafa einlægan áhuga á fólki og að hjálpa öðrum. Frá því ég man eftir mér hef- urðu sýnt okkur krökkunum áhuga og vildir alltaf heyra hvað við vorum að bralla. Oftar en ekki hafðir þú sterkar skoðanir og vildir gefa mér ráð með ýmislegt. Þú virtist alltaf hafa nægan tíma og endalausa umhyggju fyrir börnunum, barnabörnunum og allri fjölskyldunni. Ég vildi bara óska þess að við tvær hefðum get- að kynnst aðeins betur. Mér þyk- ir vænt um allar heimsóknirnar með pabba og mömmu á Freyju- götuna í gegnum tíðina. Það er hægt að læra margt og mikið af ykkur Þorsteini, ekki bara um fræðin og pólitíkina, heldur líka um listina að njóta. Hvað er betra en að drekka te, borða nýbakaðar bollur og ræða heimsmálin á fal- legasta og notalegasta heimili Þingholtanna? Það var alltaf spennandi að fylgjast með þegar þið voruð öll að rökræða. Jafnvel í síðasta skiptið sem við hittumst varstu tignarleg eins og alltaf og sinntir gestgjafahlutverkinu vel að venju. Mér þykir svo leitt að ég hafi ekki verið til staðar undir lokin og kvatt þig. Ætli ég verði ekki að hugga mig við tilhugs- unina um hvað þú átt marga góða að og hversu margir munu fylgja þér síðasta spölinn. Þú ert stór persóna í lífi svo margra og þín verður sárt saknað. Þegar við töl- uðum saman síðast sagðir þú að við myndum hittast næst hinum megin. Ég veit að þar verður tek- ið vel á móti þér, elsku Guðlaug. Ég verð bara að vona að við hitt- umst þar einhvern tíma. Við átt- um margar heimsóknir inni. Ástarkveðjur. Þín bróðurdótt- ir, Katrín. „Nú er ég búin að finna flotta íbúð fyrir ykkur rétt hjá okkur.“ „En, við erum ekkert að flytja frá Selfossi.“ „Það er bara miklu þægilegra fyrir ykkur að vera í miðbænum í Reykjavík.“ Svona gátu byrjað samtöl við Guðlaugu. Það var henni svo mikilvægt að fólki liði vel og að hafa fólk nálægt sér til að geta verið í samskiptum við vini og fjölskyldu. Guðlaug og Þorsteinn eiga bæði ættir að rekja til Austfjarða og Skaftafellssýslu. Þau voru samt ekki lík í háttum – eiginlega mjög ólík. En áhugi þeirra á sam- félagsmálum var óskiptur. Mark- miðin hin sömu þó að leiðin að settu marki og hraðinn þyrfti ekki að vera með sama brag. Það kom mjög sterkt fram núna á þessum erfiðu tímum sem hafa verið hjá fjölskyldunni síðasta ár hve þau voru samhent og hvað Guðlaug Magnúsdóttir Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 ALLAR SKREYTINGAR UNNAR AF FAGMÖNNUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.