Morgunblaðið - 30.12.2014, Síða 33
Atvinnuauglýsingar
Starfsmenn
í Dagsetri
Hjálpræðisherinn óskar eftir að ráða starfs-
fólk í umönnunarstarf með utangarðsfólki í
Dagsetri. Um er að ræða eitt 100% starf, en
einnig starfsfólk til þess að sinna störfum
aðra hverja helgi í hlutastörfum. Leitað er
eftir fólki sem hefur áhuga og/eða reynslu af
starfi með fólki í erfiðum félagslegum
aðstæðum.
Upplýsingar um starfið veitir Rannvá Olsen
í s. 896 6303 og netfangi: rannva@herinn.is.
Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2015.
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á eigninni
sjálfri, þriðjudaginn 6. janúar 2015, kl. 13.00-13.10:
Iðjuvellir 5a, Skaftárhreppi, 33,33% ehl. fnr. 234-1397, þingl. eig Gústaf
B. Pálsson, uppboðsbeiðandi Sýslumaðurinn í Vík,
Iðjuvellir 3, Skaftárhreppi 33,33 % fnr. 219-0821, þingl. eig. Gústaf
Pálsson, uppboðsbeiðandi Sýslumaðurinn í Vík
23. desember 2014.
Sýslumaðurinn í Vík,
Anna Birna Þráinsdóttir.
Félagsstarf eldri borgara
Bólstaðarhlíð 43 Handavinna allan daginn. Botsía kl. 10.30.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Furugerði 1 Leikfimi með Halldóru Björnsdóttur og léttar
æfingar með virkniþjálfa.
Gerðuberg Opnar vinnustofur kl. 9-16.
Gjábakki Handavinnustofan opin, jóga kl. 10.50,
hádegisverður kl. 11.45. Starfsfólk Gjábakka óskar gestum
sínum og velunnurum gleðilegra áramóta, þökkum
ánægjulega samveru á liðnu ári. Opið föstudaginn 2. janúar.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Vesturgata 7 Þriðjudagur: Setustofa / kaffi kl. 9. Almenn
handavinna kl. 9. Glerskurður kl. 9.15. Hádegisverður kl.
11.30. Leshópur kl. 13. Glerskurður kl. 13. Kaffiveitingar kl.
14.30.
Félagslíf
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Garðar Björg-
vinsson, Michael-miðill,
Símon Bacon, Guðríður
Hannesdóttir kristalsheilari
og auk annarra, starfa hjá
félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum upp á einka-
tíma. Upplýsingar um félagið,
starfsemi þess, rannsóknir og
útgáfur, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga
ársins frá kl. 13-18. auk þess
oft á kvöldin og um helgar.
SRFR
Smáauglýsingar
Smáauglýsingar
Bækur
Vestfjarðabækurnar
standa fyrir sínu!
Þegar þú skilar glæpasögunum eða
öðrum bókum, fáðu þér þá endilega
Vestfjarðabækur í staðinn.
Vestfirskir sjómenn og stjórnmála-
menn í blíðu og stríðu eru góð
blanda. Svo má nefna Hornstranda-
bækurnar þrjár, Frá Bjargtöngum að
Djúpi og Ýmislegt frá fyrri tímum eftir
Lýð Björnsson sagnfræðing. Ótrúlega
margt í þeirri bók.
Vestfirska forlagið
Sumarhús
Eignarlóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi, ca 45 km frá Reykjavík. Vaxta-
laust lán í allt að 1 ár.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864.
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Verslun
Trúlofunar- og giftingar-
hringar í úrvali
Auk gullhringa eigum við m.a. titan-
ium- og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðar-
þjónusta.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Ódýr blekhylki og tónerar
Verslun í Hagkaup, Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði
Blekhylki.is, sími 517 0150
Bílar
Nýr Ford Transit 17 manna
hópferðabíll. Á frábæru verði,
aðeins 5.990 þús. án vsk. miðað
við hópferðaleyfi.
Nú er að vera snöggur áður en að
vsk reglur breytast um áramót því
þá hækkar þessi um 1 milljón í
verði !
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
2015 Dodge RAM 3500
Vissir þú að árgerð 2015 kemur með
original loftpúðafjöðrun að aftan?
Bílar á lager á nýju ári.
Hringdu og kynntu þér málið.
Sími 480-8080.
Fossnesi A - www.ib.is - ib@ib.is
Húsviðhald
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
þennan heim nokkrum dögum
fyrir jól. Það eru margar góðar
minningar sem hafa komið upp
í hugann þessa síðustu daga,
ein minning kemur mjög oft
upp í huga minn og hún er þeg-
ar þú stóðst fyrir framan speg-
ilinn í ganginum hérna heima á
Hafrafelli og reyndir að kenna
mér að gera bindishnút svo ég
gæti nú haft bindið tilbúið fyrir
hann nafna þinn, hann Binna
minn. Önnur minning er þegar
þú keyrðir mig einhverntím-
ann austur í kaupfélag þegar
Binni var að keyra suður til
Reykjavíkur, þá fræddir þú
mig á því að áttirnar austur og
norður standast á hérna á Hér-
aðinu og svo líka hvað það væri
að segja „út og niður“, „inn og
upp“ og allt það. Eins gátum
við rætt um ættfræði fram og
tilbaka, sem var alltaf gaman
og enn er ég að læra hverjir
tengjast hverjum og hversu
langt aftur fólk er skylt hvort
sem það er skylt ykkur eða
ekki. Það sem hefur yljað mér
þessa síðustu daga er hvað þú
varst alltaf góður við mig og
bara allar aðrar minningar um
þig sem ég á. Þín verður sárt
saknað, elsku Brynjólfur afi,
nú ertu kominn til hennar Týru
þinnar eins og langafabörnin
þín hérna segja. Hvíldu í friði
og Guð varðveiti þig með öllum
hinum englunum sínum. Þín
Helga Björg Garðarsdóttir.
Fermingarvorið mitt 1971
réðst ég sem vinnumaður,
sumarlangt, að Hafrafelli hjá
Brynjólfi föðurbróður mínum
og Sigrúnu heitinni, konu hans.
Renglulegum strák að sunnan
á nýjum skóm og með heiðgula
ónotaða vinnuvettlinga í far-
teskinu var vel tekið og frá
fyrsta augnabliki fannst mér
ég vera hluti af heimilisfólkinu.
Sveitin er í senn heimili og
vinnustaður. Menningin, við-
horfin, stemningin á þessu
heimili og vinnustað reyndist
unglingnum hollmeti fyrir lífið.
Þrjú sumur vinnumaður og
önnur þrjú viðloðandi Hafra-
fell á mótunarárum milli tektar
og tvítugs gáfu verðmætt vega-
nesti, dýrmæta jarðtengingu.
Engum manni hef ég kynnst
á lífsleiðinni með augnblik eins
og Brynka. Augun beinlínis
tindruðu af gæsku og glettni
og voru sannarlega hans sál-
arspegill. Far hans einkennd-
ist af jafnaðargeði, hjálpsemi
og samstöðu með sínum sam-
ferðamönnum. Valinn til að
gegna ýmsum störfum í þágu
síns samfélags. Hann hafði
ákveðna sýn á lífið og til-
veruna, sýn sem hann markaði
meira með gjörðum en orðum.
Hann var orðvar en mjög orð-
hagur, átti létt með að binda
mál sitt. Hann var fæddur
bóndi, bóndi til líkama og sál-
ar, bóndi í vöku og í svefni,
bóndi af guðs náð. Mannlýsing-
in rúmast í einu orði, öðlingur.
Sveitin hans Brynka var hon-
um hjartkær, eins og kvæðið
hans um Héraðsbúann endur-
speglar svo vel en þar lýsir
hann lífsgöngu sinni, og loka-
erindið undirstrikar sátt hans
við lífið, ævikvöldið og förina
hinstu:
Í ellinni sat í sæti, – með sigurbros
á vör.
Léttur af lífsins kæti, – lagði í
hinstu för.
Sjálfsagt mun sálin hlýða,- á söng
frá englafans.
En Fljótsdalshérað fríða,- faðmar nú
beinin hans.
Í vor sem leið fékk ég tæki-
færi til að hitta Brynka stutta
stund. Heilsan var á undan-
haldi en hann tók mér fagnandi
eins og ávallt og sérkennið
hans, leiftrandi augnsvipurinn,
einkenndi þennan síðasta fund
okkar í þessu jarðlífi.
Far þú nú í friði og þökk,
kæri frændi. Minningin lifir
sem meitluð í stein.
Jón Steinar
Jónsson.
Brynjólfur á Hafrafelli er
lagður af stað í gönguna löngu.
Örlögin höguðu því þannig að á
árabili var ég ungur maður
vistaður á Hafrafelli, og þar,
hjá Brynjólfi og Sigrúnu, vildi
ég helst vera. „Ég ól þig upp,“
sagði kallinn stundum þegar
ég á seinni árum ók honum
heim af einhverju þorrablótinu
og tók hann þá þéttingsfast ut-
anum mann til áherslu, þetta
var reyndar ekki nein lygi,
hann ól mig upp og marga
fleiri. Og maður man allskonar,
ferðalög á gamla frambyggða
Rússanum, urgandi og brak-
andi í öllum gírum, heimspeki-
legar spekúleringar við eldhús-
borðið, fjárhúsferðir allskonar
á allskonar tækjum sem við
Bergsteinn fengum að vera
nokkuð óáreittir með.
Það var frjálst og gott líf að
vera drengur hjá þeim Hafra-
fellshjónum en auðvitað fékk
maður að heyra það ef fram úr
hófi keyrði. Þakka þér ægilega
vel fyrir samfylgdina, fóstri
minn, þú skilar kveðju til henn-
ar Sigrúnar þinnar frá mér, því
hún bíður eftir þér innan við
hliðið.
Við sjáumst þó síðar verði
og það er þá rétt eins gott fyrir
þig að hafa koníakspelann
kláran fyrir fundinn þann.
Hvers vegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Gardi)
Aðstandendum Brynjólfs
sendi ég hugheilar samúðar-
kveðjur vegna fráfalls hans og
mun ekki svíkjast um að faðma
ykkur fast þegar ég kem aftur
á heimaslóðir.
Hlynur Bragason
og fjölskylda.
Ástkæra systir mín.
Ferðalagi þínu er nú lokið. Þú
hefur átt ansi erfiða dvöl hérna á
jörðinni og þurft að þreyta marg-
ar erfiðar þrautir. Þú hefur farið
til heljar og til baka ótal sinnum.
Þú kenndir mér fyrirgefningu og
kærleik. Þú varst svo oft til stað-
ar fyrir mig og hjálpaðir mér í
gegnum mín eigin vandamál. Það
sem þú gerðir mest af öllu í þínu
lífi var að gefa af þér allt sem þú
gast. Takk fyrir að hafa verið til
og sýnt mér ást þína, hún er
ómetanleg.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Ég mun aldrei gleyma þér.
Sigurboði bróðir.
Mikið er erfitt að sitja hér og
skrifa kveðju til þín, elsku fallega
Gwenny mín. Þín fallega sál er nú
komin á góðan stað. Þegar maður
fer að hugsa til baka þá rifjast
upp góðu minningarnar sem er
svo gott að ylja sér við. Eins og
t.d. þegar við fórum saman á jóla-
ball með strákana okkar og
barnaafmælin með guttunum
okkar.
Það var líka svo gaman að
hlusta á þig tala um andleg mál-
efni, þar varst þú í essinu þínu og
vissir svo margt. Að hlusta á þig
syngja var yndislegt, svo falleg
röddin þín.
Lífið þitt var ekki alltaf dans á
rósum, elsku stelpan mín. Þú
þráðir svo að byggja upp gott líf
fyrir þig og litla gullmolann þinn
hann Grétar Anton. Vonandi líð-
ur þér betur núna, elsku Gwenny
mín.
Ég skal passa mömmu þína,
pabba þinn, bræður þína og elsku
litla Grétar þinn. Guð blessi þig
og englar varðveiti þig, Gwenny
mín.
Þín vinkona og mamma 2.
Kristborg, Friðrik og Leó.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og við-
eigandi liður, „Senda inn minn-
ingargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar um
foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar