Morgunblaðið - 30.12.2014, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skoðaðu hvað þú getur gert til að
auka tekjurnar. Vertu rólegur, fyrr eða síðar
býðst þér hentug leið. Eftir nokkra daga verð-
ur þessu öfugt farið.
20. apríl - 20. maí
Naut Þín bíða svo mörg verkefni að það er
ljóst að þú ræður ekki við þau öll í einu. Netið
geymir alls konar fróðleik og bókin er við
höndina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst ekkert ganga, hversu
hart sem þú leggur að þér. Stattu hins vegar
fast á þínum rétti hvað sem á dynur. Vertu
ánægður með þig og þína hæfileika og njóttu
þess sem lífið er þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það eru ýmsar nýjungar að banka
upp á hjá þér og þér finnst erfitt að sinna
þeim öllum í einu. Velgengni þín er eilítið
óttablandin.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einbeittu þér að þeim málum er varða
heimilið. Allt sem viðkemur keppnisíþróttum,
fjármálaviðskiptum og listum gengur að ósk-
um.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Rómantík, ástarævintýri, orlof,
skemmtanir með börnum og listræn verkefni
höfða til þín þessa dagana. Annars kemurðu
engu í verk í dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þegar við vitum hvað við viljum fara allar
tafir afskaplega í taugarnar á okkur. Láttu
aðra ekki draga úr þér kjarkinn til að sinna
áhugamáli þínu af ákefð.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert að velta fyrir þér
ákveðnum fjáröflunarhugmyndum í dag.
Fatavalið getur haft áhrif á framkomu þína.
Gættu þess þó að taka tillit til þinna nánustu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Jafnvægi er að komast á pen-
ingamálin en samt þarf enn meira jafnvægi.
Efnisleg gæði eru líka nauðsynleg svo gefðu
þér tíma til að afla þeirra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér finnst þú ekki fá útrás fyrir at-
hafnaþörf þína. Og af óljósum ástæðum er
það meðhöndlað eins og það sé ekkert per-
sónulegt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér ætti að ganga vel að koma
málum þínum á framfæri ef þú gætir þess að
tala hreint út um hlutina. Settu vandamálið
sem þyngir huga þinn í þetta samhengi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Til allrar hamingju mun orðspor þitt
og ferill blómstra á komandi tímum. Vertu
viðbúinn því að eitthvað óvænt komi í ljós.
Einar K. Guðfinnsson skrifaðimér að sá snjalli hagyrðingur
Sigurður Hansen á Kringlumýri í
Blönduhlíð hefði átt 75 ára afmæli á
aðfangadag. Hjálmar Jónsson sendi
honum meðfylgjandi afmælisvísu.
Þótt veðráttan gerist grimm
og geisi hríðarél dimm,
yfir byggðir og ból
breiðast nú jól
og Siggi er 75….
Davíð Hjálmar Haraldsson gerir
sér það að yrkisefni að „nýlega var
sagt frá því í fréttum að við birgða-
stöð stutt frá suðurskautinu væri
útikamar. Fæstir á þeim slóðum
hafa þó aðgang að slíkum munaði
og ekki þarf ríkt ímyndunarafl til
að sjá atburðarás þar fyrir sér.
Við suðurskaut er svakalegur rosinn
og sárkalt þótt menn losni fljótt við
skarnið.
Dólgurinn þar fellur niður frosinn
og fýkur eins og vettlingur um hjarnið.“
Philip Vogler skrifaði mér á
laugardag að hann hefði farið í
sund með konunni og séð þá fyrsta
glitský vetrarins sem þau tóku eft-
ir. – „Sennilega þekkir þú fyrir-
bærið vel meðal annars úr Eyja-
firði,“ segir hann, „ en vinur okkar
hjónanna á Breiðdalsvík (Hákon
Hansson) hefur tekið frábærar
myndir glitskýja eins og birtast til
dæmis hjá þýsku veðurstofunni:
www.meteoros.de/themen/
atmos/beugung-interferenz/
polare-stratosphaerische-wolken/.
Glitský eru svo flott að ég bjó til
eftirfarandi stafhendu á meðan ég
synti:
Í suðri glóir glitský bjart,
gerist helst ef frost er hart.
Vetur minnir alla á,
oft er fegurð hans að sjá.“
Mikið hefur verið ort yfir hátíð-
arnar. Hjálmar Freysteinsson
kvað:
Ársins merkustu atburðir ske
oft þegar dagur er stystur.
Mér finnst ósköp sanngjarnt að sé
Sigmundur Davíð krysstur.
Hjálmar tekur sérstaklega fram
að hér forði stafsetningin öllum
misskilningi! Og bætir við: „Rétt er
að taka fram að Björn Ingólfsson er
upphafsmaður að notkun sagnar-
innar „að kryssa“ í merkingunni að
hengja kross á. Ég hef ekki gáð
hvað orðabækur segja, treysti Birni
fullkomlega. Þetta er sem sagt ekki
frumlegt hjá mér en ekki heldur
beinlínis stolið.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kamar við suðurskaut
en glitský í norðri
Í klípu
„ÞETTA ER HÚLAHRINGUR, ÉG BAÐ ÞIG
UM AÐ FINNA GLOPPU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ER ÞETTA EINA LEIÐIN FYRIR ÞIG AÐ
SKEMMTA ÞÉR... MEÐ ÞVÍ AÐ SKEMMA
ALMENNINGSEIGUR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að syngja af hjartans
lyst fyrir gott málefni.
JÆJA, ÉG SKAL LESA YFIR
BRÉFIÐ ÞITT TIL
JÓLASVEINSINS
GEMMÉR! GEMMÉR!
GEMMÉR! GEMMÉR!
ÞAÐ ER
FULLEINHÆFT,
FINNST ÞÉR EKKI?
EN
PUNKTURINN
KEMST TIL
SKILA,
ER ÞAÐ EKKI?
LÆKNIR, ÉG ER Í SVO LÉLEGU
FORMI AÐ ÉG GET EKKI
EINU SINNI GENGIÐ UPP
STIGAGANG!
SELJA
KASTALANN
MINN?
AH-HA! OG HVAÐ
SEGIR ÞAÐ ÞÉR
AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ
GERA?
Það sætir alla jafna ekki tíðindumþegar gestir yfirgefa veislur.
Hitt er örugglega sjaldgæfara að
þeir geri það í miðri ræðu – sem
þeir eru sjálfir að halda.
Þetta upplifði Víkverji í fyrsta
skipti í stórafmæli á dögunum.
Nokkrir félagar afmælisbarnsins
höfðu þá beðið um orðið og dregið
sig út úr hópnum. Allra augu voru á
þeim. Einn stýrði framsögunni en
hinir skutu inn sögum og athuga-
semdum eftir þörfum. Eftir dágóða
tölu klauf einn þeirra sig skyndilega
út úr hópnum, fór og sótti yfirhöfn
sína og tilkynnti afsakandi að hann
þurfti að yfirgefa samkvæmið.
Faðmaði afmælisbarnið að sér og
var þar með horfinn á braut. Án út-
skýringa, að því er Víkverji kemst
næst. Hinir, sem eftir stóðu, kláruðu
ræðuna, sem var bráðskemmtileg
með leikrænum tilþrifum, eins og
ekkert hefði í skorist. Innst inni
hafa þeir þó eflaust verið jafnundr-
andi og Víkverji.
x x x
Sonur Víkverja fékk nýjastaspurningaspilið á markaðnum,
Bezzerwizzer, í jólagjöf og eftir að
hafa gripið tvisvar í það getur Vík-
verji vottað að það er bráð-
skemmtilegt. Reglurnar eru snið-
ugar og spurningarnar óvenju
fjölbreyttar enda efnisflokkarnir
hvorki fleiri né færri en tuttugu.
Keppendur draga flokka í upphafi
spils og þá ríður á að vera heppinn,
fá til dæmis sögu, íþróttir eða
stjórnmál frekar en hönnun, náttúru
eða mat, frá bæjardyrum Víkverja
séð.
Víxla má efnisflokkum einu sinni í
hverri umferð og stela þannig frá
andstæðingnum. Þá má einnig stela
svari í tvígang í hverri umferð.
Tveir synir Víkverja voru spurðir
um nafn á hnífnum sem skurðlækn-
ar nota. Eftir að hafa velt vöngum
heillengi yfir því hvort um einhverja
blekkingu væri að ræða svöruðu
þeir: „Skurðhnífur.“ Víkverji þver-
skallaðist við að gefa þeim rétt enda
var gefið svar á spjaldinu „skurðar-
hnífur“. Gaf sig ekki fyrr en annar
sonanna gúglaði verkfærið og sýndi
honum svart á hvítu að þetta er
sami hluturinn.
Óþolandi þetta gúgl!
víkverji@mbl.is
Víkverji
Enginn er sem þú, Drottinn. Voldugur
ert þú og mikill er máttur nafns þíns.
(Jeremía 10:6)