Morgunblaðið - 30.12.2014, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Magnað er að verða vitniað því þegar hógværirlistamenn, sem lítið hef-ur farið fyrir á sýning-
arvettvangi, breiða út vængina og
hefja sig hátt og tignarlega til flugs.
Sú er raunin á sýningu Hólmfríðar
Árnadóttur „Hughrif“ í Listasafni
Kópavogs, Gerðarsafni. Hómfríður
var mikilvirk á sviði listkennslu um
árabil og nýtur mikillar virðingar fyr-
ir störf sín þar. Meðfram kennslu-
störfum vann hún alla tíð að eigin list-
sköpun og eftir fyrstu
einkasýningarnar á 9. áratug síðustu
aldar, hafa verk hennar helst verið
sýnileg íslenskum almenningi á sam-
sýningum, en lítið sem ekkert hin síð-
ari ár.
Á sýningunni nú, sem er yfirlits-
sýning, getur að líta á fjórða tug
verka. Annars vegar er um að ræða
pappírsverk unnin á tímabilinu frá
1980 og fram á miðjan næsta áratug
en Hólmfríður telst frumkvöðull í
markvissri notkun sinni á pappír í
myndlist. Þá eru á sýningunni text-
ílverk frá 10. áratugnum og allt til líð-
andi stundar, verk sem byggja á
þekkingu listamannsins á efniviðn-
um, sögu hans og aðferðum ásamt
næmri innsýn í möguleika textílsins í
samtali við önnur form og hefðir, má
þar nefna kvenlægar handverks-
hefðir, en einnig málverkið og þá
rýmishugsun og samruna miðla sem
einkennt hefur myndlist síðari ára-
tugina – og eru pappírsverkin einnig
hluti af slíkri gerjun. Verk Hólm-
fríðar má þannig skoða sem allt í
senn: mikilsvert framlag til text-
íllistar og jafnframt til afstraktlistar,
til naumhyggju í myndlist og til
landslagshefðarinnar. Verkið Garður
tískunnar sker sig úr á sýningunni
því það er talsvert eldra eða frá 1949,
að segja má framtíðarverk korn-
ungrar listakonu, og gæti allt eins
verið frá þessu ári, enda talar það
með ferskum hætti til samtímans.
Sýningunni fylgir látlaus en falleg
sýningarskrá með ljósmyndum af úr-
vali verka.
Verkin sóma sér vel í björtum söl-
um safnsins, og er sýningin í heild
sérlega falleg í úthugsaðri uppsetn-
ingu og samspili verka þar sem engu
er ofaukið og hvert verk nýtur sín á
hárréttum stað. Sýningin end-
urspeglar þannig þá þætti sem ein-
kenna verk Hólmfríðar: yfirvegun,
vandvirkni en jafnframt tjáningu sem
leitar fram í margvíslegum leik hug-
ar, handar og efnis. Einfaldur svart-
ur satínborði verður þannig að
klettagjá í rými sýningarsalarins,
pappír brotnar og ummyndast í berg,
flauel og bývaxbatík rennur saman í
berjamó, einlitt silkimóher töfrar
fram birtu sleginn fjallasal og ís-
lenska ullin tekur að bylgjast sem haf
við sjónbaug – um leið og efnisleikinn
sjálfur er ávallt í fyrirrúmi í ríkri til-
finningu fyrir áferð og samtali ólíkra
efna. Í pappírs- og textílverkum sín-
um túlkar Hólmfríður þannig á frjó-
an og fágaðan hátt þau hughrif sem
kvikna af efninu sjálfu. Jafnframt er
efnið mótað til að tjá skynjun lands-
lags og birtu, og andartök þar sem
saman fara kyrrð og næmi. Blæ-
brigði í lit og áferð pappírsarka
kveikir hughrif af rósablöðum eða
næturhúmi, og tveir renningar af
handofnu silki kveikja hugrenningar
um kynin í verkinu Hann og hún.
Hólmfríður bregður á leik þegar
pappírsform mynda kjól og iðandi
þræðir og tvinnaflækjur leika á slétt-
um pappír og hvössum skurðum og
túlka Lífshlaup. Pappírinn getur
einnig túlkað hið óhlutbundna, eins
og í verkinu Hugblæ, og Friður ein-
faldlega ríkir í silkitærum efnisleika
sínum. Í heild er „Hughrif“ ein-
staklega fallega unnin sýning sem
varpar ljósi á feril vandvirks lista-
manns og jafnframt á merkan þátt
Hólmfríðar í íslenskri listasögu.
Morgunblaðið/Kristinn
Falleg „Í heild er „Hughrif“ einstaklega fallega unnin sýning sem varpar ljósi á feril vandvirks listamanns og jafn-
framt á merkan þátt Hólmfríðar í íslenskri listasögu,“ segir í niðurlagi gagnrýni um sýningu Hólmfríðar.
Leikur hönd við efni
Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn
Hólmfríður Árnadóttir – Hughrif
bbbbn
Til 4. janúar 2015. Opið þri.-su. kl. 11-17.
Aðgangur kr. 500. Börn og ungmenni
yngri en 18 ára, aldraðir, öryrkjar, náms-
menn: ókeypis. Frítt á miðvikudögum.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Esjan Eitt af verkum Hólmfríðar, Esjan, á sýningunni í Gerðarsafni.
Fjórum sérsýningum lýkur í
Þjóðminjasafninu um áramótin.
Um er að ræða Silfur Íslands í
Bogasal Þjóðminjasafnsins, en
þar getur að líta silfurgripi sem
smíðaðir voru af íslenskum lista-
og hagleiksmönnum allt frá síð-
miðöldum fram á fyrri hluta 20.
aldar, og Silfursmiður í hjáverk-
um í Horni, en sýningarnar tvær
hafa staðið frá því safnið fagnaði
150 ára afmæli sínu 24. febrúar
2013. Einnig lýkur sýningunum
Svipmyndir eins augnabliks. Ljós-
myndir Þorsteins Jósepssonar í
Myndasal og Natríum sól á
Veggnum.
Fjórum sýn-
ingum lýkur
Víravirki Gull- og silfurskartgripir.
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa nýja
lágkolvetnabrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 3/1 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00
Sun 4/1 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 1/2 kl. 13:00
Lau 10/1 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00 Lau 7/2 kl. 13:00
Sun 11/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00 Sun 8/2 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Þri 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 4/1 kl. 20:00 4.k. Sun 11/1 kl. 20:00 7.k.
Fös 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 7/1 kl. 20:00 5.k. Fim 15/1 kl. 20:00 8.k.
Lau 3/1 kl. 20:00 3.k. Fim 8/1 kl. 20:00 6.k.
Sígilt meistarastykki Ibsen í nýrri þýðingu Hrafnhildar Hagalín
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00
Hundur í óskilum snúa aftur með nýja sýningu
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 9/1 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi