Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Síða 80
Sú grundvallarandstæða sem ber uppi
söguna sem heild mætti því orða á þessa
leið: Það er eðlilegt að öll böm krefjist sama
arfs eftir foreldra sína. Aftur á móti geta
þjóðfélagsaðstæður krafist þess að þeim sé
mismunað. Sætti þau sig ekki við einhvers
konar málamiðlun, leiðir það til bræðra-
víga.
Hjúskaparraunir Heiðreks
Áðan var sagt að frásögn væri form hugs-
unar. Hvað hugsar Hervarar saga og Heið-
reks um þessa grundvallarandstæðu sem
ber hana uppi?
Svarsins er annars vegar að leita í því
hvemig þessi andstæða kemur á mismun-
andi hátt fram eftir því sem líður á söguna
og hins vegar í afdrifum Heiðreks eftir að
honum er vísað úr ríki föður síns. Lítum
fyrst á seinna atriðið. Þátturinn af Heiðreki
er þungamiðja sögunnar. Frásagnir af hon-
um er í senn lengstar og flóknastar. Einnig
gæti verið að Heiðreks þáttur sé megin
framlag þess höfundar sem skeytti saman
misjafnlega fomum kvæðum og bjó til úr
þeim ættarsögu. Allt gefur þetta til kynna
að leita megi í Heiðreksþætti að hugsuninni
í sögunni. Miðlæg staða hans bendir til að
hann sé einhvers konar kjami hennar og það
gerir lengdin líka. Hann er flókinn og það
býður upp á túlkun eða að minnsta kosti það
að reynt sé að finna einhverjar hugmyndir
sem búa undir þessari flóknu byggingu. Ef
hann er framlag höfundar til hefðarinnar
sem hann er að vinna úr er líklegt að þar
megi finna túlkun hans á þessari hefð.
Ef við lítum nánar á það sem á daga
Heiðreks drífur eftir að honum hefur verið
vísað úr föðurhúsum, sjáum við að unnt er
að skipta því í tvo hluta, annars vegar frá-
sagnir af hjónaböndum og bameignum
Heiðreks og hins vegar viðureign hans við
Oðin í gervi Gestumblinda og það hvemig
dauði hans atvikast.
Fyrri hlutinn hefst á því að Heiðreki er
hlíft við því að vera hengdur, sem hann á þó
skilið eftir bróðurmorðið að sögn föður
hans. Hann er rekinn burt og fer hann í
gegnum þrjú hjónabönd og eignast þrjú
böm. Fyrsta hjónabandið gefur honum ríki
og son, Angantý, en endar með ósköpum
vegna ósættis við tengdaföður hans. Síðan
eignast hann annan son með dóttur Húna-
konungs en hér er ekki um hjónaband að
ræða því hann tekur hana án frændaráðs og
sendir hana síðan aftur heim til föður henn-
ar þegar hún verður bamshafandi. Hjóna-
band númer tvö fer ekki síður illa.
Heiðrekur kemst að því að konan er honum
ótrú og skilur við hana en þau eiga engin
böm. Loks giftist Heiðrekurenn einni kon-
ungsdóttur, dóttur konungsins í Garðaríki.
Áður hafði hann tekið bróður hennar í fóst-
ur, komið af stað kviksögu um að hann
hefði drepið hann og verið nærri því hengd-
ur fyrir vikið af föður piltsins en verið
bjargað á síðustu stundu þegarkonungsson-
urinn birtist til að bjarga honum frá heng-
ingu. Eftir þetta giftist hann konungs-
dótturinni og þau eignast eina dótmr, Her-
vöm.
Hægt væri að fara nánar út í þessa röð
hjónabanda ef rúm gæfist en ég læt mér
nægja að benda á að einhverjir meinbugir
em á hverju þeirra og þau ganga ekki fyrr
en eftir að Heiðrekur hefur sloppið naum-
lega frá því að vera hengdur.
Eg minni á að eftir bróðurmorðið segir
Höfundur faðir Heiðreks að það ætti að
hengja hann. Hjónabönd hans hefjast eftir
78
TMM 1992:3