Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 15
28.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Eitt helsta áhyggjuefni Vogarinnar síðustu árin hafa verið fjármálin og himinhvolfin geta glatt hana með því að þessum áhyggjukafla er nú að stærstum hluta lokið. Vogin hefur upplifað sig svolítið tætta vegna þessa og fundið fyrir byrðum á bakinu og í ár finnst henni loksins gefast tími í annað en streð. Plútó hefur verið í fjórða húsi heimilis og fjölskyldu í nokkur ár og verið miskunnarlaus í því að hræra upp í fjölskyldulífinu. Vogin getur hafa þurft að fara í gegnum uppgjör og áföll þótt síðasta ár hafi verið rólegra en árin þar á undan, en Plútó verður þarna áfram næstu árin. Að því leytinu til er það gott, að vandamál og erfiðleikar liggja ekki þarna án þess að tekið sé á þeim. Vogin hefur leyst úr mörgum hnútum og ef þeir eru ennþá þarna til staðar mun hún halda áfram að slétta úr misfell- unum. Gott er að hafa það í huga, þegar Vogin hugsar að stundum væri hún til í einfaldara líf, að hið einfalda þarf ekki að vera gott. Þá er hún minnt á að fara í sund eins oft og hún getur, hvergi finnur hún betri slökun en í vatni. Það er skemmtilegra að vera einhleyp Vog í ár en gift ef litið er til þess að það er togstreita í lang- tímasamböndum. Einhleypar Vogir eru hins vegar með aðdráttarafl á við rjómaís á sumri og virðast laða að sér á óútskýranlegan hátt allt og alla. Framan af ári mun Vogin hafa í sig og á en ekki sjá mikla peninga umfram það, það breytist hins vegar eftir 11. ágúst og mun koma ánægjulega á óvart þegar það verður aukaafgangur til að nota í meira en daglegar nauðsynjar. Í ár þarf Vogin að vera dugleg að minna á sig og láta vita að hún sé viljug til að taka að sér spennandi verkefni á vinnustað eða nýjum vígstöðvum svo hún gleymist ekki. 23. SEPTEMBER – 22. OKTÓBER Vogin Þeim Steingeitum sem hafa ekki gegnið í gegnum hjónaskilnaði á síðasta ári, eigin eða í nærfjöl- skyldu, getur engu að síður liðið eins og einhver sprenging hafi átt sér stað í fjölskyldunni. Það hefur alveg verið gaman, en mikill ólgusjór engu að síður. Steingeitin hefur stundum spurt sig af hverju það er ekki bara hægt að láta eitthvað eitt gerast í einu en ekki allt á einu bretti eins og undanfarið. Þetta hefur líka kostað peninga, breytingar geta reynst kostnaðarsamar á fleiri máta en að reyna á andlega, sérstaklega fyrir þá sem hafa þurft að kaupa nýjan helming af innbúi. Góðu fréttirnar er að útgjöldin minnka á árinu um leið og það hægist um. Og það er heilmikla næringu og ró að fá í umgengni við systkini Steingeitarinnar eða nána vini. Steingeitin er ekki áhættusækin á þann hátt að sækja í spilakassa en hún grípur góð viðskipta- tækifæri óhikað ef áhættan er ekki of mikil. Hún á líka að gera það í ár, það er bjart yfir í þeim efnum, sérstaklega frá 21. mars til 19. apríl og 23. júlí til 23. ágúst. Þess má geta að árið 2016 verður frábært fyrir Steingeitina í atvinnumálum, árið 2015 er fremur rólegt þar, en Júpíter verður á þarnæsta ári í húsi starfsferilsins, sem eru ljómandi góð tíðindi. Ástin er í loftinu upp úr miðjum ágúst, sérstaklega fyrir fráskildar Steingeitur eða þær sem voru að slíta langtímasamböndum, svo ekki sé minnst á þær sjóuðustu; tví- og þrífráskildar; því fleiri skilnaðir að baki, því betra. Það er logn á eftir stormi síðasta árs og þau sambönd sem lifðu hann af verða með ágætasta móti árið 2015. Steingeitin má ekki trassa það að fara til læknis í ár ef hún verður slöpp og hlúa vel að sér. Þá er heldur ekki ólíklegt að spennandi rómantískir hlutir gerist einmitt á ólíklegum stöðum svo sem læknabiðstofum eða á bókasafninu. 21. DESEMBER – 19. JANÚAR Steingeitin Sporðdrekinn hefur verið eitthvað lítill í sér, þreyttur og búinn á því síðasta árið, sjálfstraustið ekki sem best og í versta falli hefur þrítugum Sporðdrekum liðið sem þeir væru sextugir og sex- tugum liðið sem níræðum. Góða fréttirnar eru þær að þetta lagast, Sporðdrekinn finnur aukinn innri styrk, meiri og meiri eftir því sem líður á árið og laðar að sér fólk. Þetta mun einnig sýna sig sérstaklega hjá þeim Sporðdrekum sem eru í námi þar sem þeim gengur vel með auknu sjálfstrausti og þeir sem vinna í hvers kyns sölustörfum og þar sem þeir þurfa að koma fram og tala og sannfæra fólk finna fyrir miklum meðbyr og sköpunarkrafturinn er með blómlegasta móti. Sporðdrekinn gæti haldið eitt augnablik að spenna í stórfjölskyldunni sé að minnka eftir átök við foreldri eða aðra nána fjölskyldumeðlimi síðustu misserin og það er rétt, en hann má ekki verða fyrir vonbrigðum ef einhver vandamál koma upp, þetta gerist smátt og smátt en í það heila má hann kætast því flestallt er á uppleið í lífi hans þótt það gerist ekki á einni nóttu og það á líka við um fjármálin. Er það helst því að þakka að Sporðdrekinn hagar neyslu sinni skynsamlegar. Þeir sem kjósa það að hlutirnir breytist ekki og allt haldist við það sama njóta góðs af því að það er ólíklegt að það flosni upp úr ástarsamböndum en á hinn bóginn er Sporðdrekinn ekki lík- legur til að bindast neinum sterkum böndum í ár. Það er ekki þar með sagt að það skorti róm- antíkina, það verður nóg af fólki á vegi hans og létt ástarskot hægri/vinstri. Þetta gæti orðið valdamikill einstaklingur eða ríkur, í það minnsta mun Sporðdrekinn eignast einhvers konar fé- laga, vini eða elskhuga á árinu sem eru ríkari en hann sjálfur. 23. OKTÓBER – 22. NÓVEMBER Sporðdrekinn Vatnsberinn er nokkuð sáttur við þá stefnu sem fjárhagurinn tók á síðasta ári þar sem innkoman varð meiri, með hærri launum, aukaverkefnum og öðru í þeim dúr. Engar áhyggjur, það eru ekki fjárhagsvandræði í vændum, en Vatnsberans bíður mikil og krefjandi vinna á næsta ári, tekj- urnar eru í góðu lagi en nú þarf að spýta í lófana sem aldrei fyrr og svitna. Það kann því að skjóta skökku við en orkan þverr ekki og Vatnsberinn er sérlega hress og orkumikill og hvetur alla til að koma með sér í bátana. Það verður gaman að vera í kringum hann og hann smitar út frá sér gleðinni. Og heillar fólk upp úr skónum. Vatnsberinn fær meiri tíma fyrir sjálfan sig (og vinnuna) því heima fyrir eru ekki jafnkrefjandi verkefni og árin á undan, fjölskyldumeðlimir eru minna upp á hann komnir og heilsufar nánustu fjölskyldumeðlima breytist til hins betra. Það er rétti tíminn til að skipta um húsnæði ef það hef- ur verið í bígerð lengi, sérstaklega í vor. Vatnsberar í langtímasamböndum eða hjónaböndum eiga ágætis ár í vændum en hins vegar gætu foreldrar hans, tengdaforeldrar eða aðrir mjög nánir aðstandendur þurft að ganga í gegn- um sitt. Vatnsberinn hefur einstaka hæfileika til að að vera hlutlaus og hlusta á alla aðila af yfir- vegun en það gæti engu að síður tekið á taugarnar og Vatnsberinn á ekki taka þetta of mikið inn á sig. Vatnsberar eru fljótir að tileinka sér það sem nútíminn og tæknin býður upp á og einhleypir Vatnsberar eru afar líklegir til að kynnast einhverjum á spjalli í tölvunni. Hins vegar er þetta lík- lega einhver sem þeir þekkja nú þegar en þeir eiga eftir að kynnast einhverjum upp á nýtt í afar skemmtilegu spjalli, líklega strax núna eftir áramótin í skammdeginu. 20. JANÚAR – 18. FEBRÚAR Vatnsberinn Fiskurinn á viðburðaríkt ár framundan, með eindæmum. Hann er allra vinsamlegast beðinn um að huga vel að heilsunni því hún er viðkvæmari en oft áður enda þolir Fiskurinn illa stress. Fiskurinn er ekkert gefinn fyrir dramatískar breytingar á eigin högum og Fiskar sem eru sáttir við eigin hagi í langtímasamböndum eða hjónaböndum eru ekki að fara að stokka þá hluti upp. Segja má að árið verði lærdómsríkt fyrir Fiskinn. Hann mun læra, með því að reka sig á veggi, hvernig hann þarf að haga fjármálunum betur en það eru góð tíðindi. Í Fisknum blundar smá- áhættufjárfestir en engu að síður getur það vel skeð í ár að hugmyndir hans verði að peningum í stað þess að misheppnast, það getur brugðið til beggja vona. En ýmiss konar viðskipta- og gróða- hugmyndir munu skjóta upp kollinum allt næsta ár. Gott er ef Fiskurinn ráðfærir sig við jarð- bundið og skynsamt fólk, allra helst naut. Góðu fréttirnar eru að í heild eru næstu ár ábótasöm og margir Fiskar gætu farið að kallast „ríkir“ í veraldlegum skilningi orðsins innan nokkurra ára. Miklar kröfur verða gerðar til Fisksins á vinnustað og honum er ráðlagt að standa sig og sýna sínar bestu hliðar því hann getur vel staðið undir þeim væntingum. Enda er líka alltaf betra að einhver trúi á mann en að öllum sé nákvæmlega sama. Það verður ógurlega gaman í félagslífinu seinni part árs. Og þarna er eitthvað alvarlegt í kort- unum, það skellir sér einhver á skeljarnar, vill endilega fara í sambúð með Fisknum eða gefa honum allan heiminn. Þetta er einhver sem er þegar farinn að gefa Fisknum gaum en líklega er Fiskurinn heldur blindur á þessa athygli enn sem komið er. 19. FEBRÚAR – 20. MARS Fiskurinn Leiðtogahæfileikar Bogmannsins muna njóta sín til fullnustu á árinu og yfirmenn hans eða við- skiptavinir sjá gusta af honum. Bogmaðurinn verður mikils metinn á vinnustaðnum en fjöl- skyldumeðlimir þurfa að sætta sig við að hann er eilítið fjarlægur heima við, ekki er ólíklegt að hann endi á að fá gusu frá einhverjum í sínum nánasta hring sem fær sig fullsaddan á því sem við- komandi upplifir sem kulda eða afskiptaleysi. Þess má geta að af því hve mikið verður að gera hjá Bogmanninum gleymir hann jafnvel stundum að borða, þeir sem mega ekki við því að fara niður í vigtinni þurfa að passa að borða vel og reglulega. Bogmenn þekkja það sjálfir að þeir eru ekki til í að hanga í sambandi bara til að vera í því, til þess eru þeir of sjálfstæðir og þurfa frelsi til að skoppa út um allar trissur. Bogmaðurinn er með aðdráttaraflið í lagi á árinu og er hvattur til að njóta þess að klæða sig fallega og leyfa sér að njóta sín því það æxlast svo að hann verður miðdepill athyglinnar víðast hvar sem hann kemur. Þeir sem falla fyrir Bogmanninum árið 2015 eru fólk sem er veiðimenn í eðli sínu og vilja þurfa að hafa fyrir því að ná ástum einhvers. Einhleypir Bogmenn eru nefnilega ekkert sérstaklega upp- teknir af því að sinna einhverjum öðrum en sjálfum sér í ár, þeir sem alla jafna eru svo hlýir og tilbúnir til að elska. Ef Bogmaðurinn verður ástfanginn á næstu mánuðum er það því að öllum lík- indum manneskja sem er ákveðin og ákaflega sjarmerandi. Og það er langlíklegast að það gerist einhvers staðar á tímabilinu 1. maí til 21. júní. Peningar þefa Bogmanninn uppi í ár fremur en að hann finni þá með því að leita sérstaklega að þeim og þá rekur helst á land í formi einhvers konar velgjörðar frá nánum aðstandanda eða skonsu sem verður fyrirframarfur. 23. NÓVEMBER – 20. DESEMBER Bogmaðurinn Stjörnuspáin er byggð á spá stjörnuspekingsins Joseph Polansky fyrir stjörnumerkin árið 2015. Hún birtist í bókinni Your Personal Horoscope 2015.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.