Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.12. 2014
V
ið erum mjög saklaus og
erum bara heima með
fjölskyldunni,“ segir
Klara Hjartardóttir,
nemandi í 10. bekk, og hlær þeg-
ar blaðamaður spyr hvort eitthvað
sé um hópahitting í Garðabæ.
„Við höfum ekki farið út að hitta
krakkana hingað til, en það er
eitthvað verið að ræða að gera
það kannski í ár,“ segir Birgir
Steinn Jónsson. Krakkarnir sam-
mæltust um að það væru frekar
krakkar á fyrsta ári í framhalds-
skóla sem hittust eftir miðnætti
enda eru ákveðin skil á milli
gagnfræðaskóla og framhalds-
skóla. „Þeir sem eru farnir yfir í
menntaskóla hittast frekar og eru
líka frekar að djamma og svona,“
segja krakkarnir. „Það mun
kannski breytast á næsta ári.“
Krakkarnir segja þó að í fjöl-
skyldum þeirra sé haldið í
ákveðnar hefðir á áramótum og
segja þau blaðamanni frá því
hvernig kvöldinu er háttað.
Brennan við Sjálandshverfi í
Garðabæ er ákveðinn samkomu-
staður og hitta flestir krakkarnir
vini sína þar áður en haldið er
heim að horfa á áramóta-
skaupið í faðmi fjölskyld-
unnar.
STERK SKIL Á MILLI GAGNFRÆÐASKÓLA OG FRAMHALDSSKÓLA
Frá vinstri: Þórdís Ragna,
Sigríður Erna, Klara, Birgir
Steinn og Bjarki Rúnar eru
öll í 10. bekk í Garðaskóla
og hlakka til áramótanna.
Morgunblaðið/Þórður
Njóta þess að vera með foreldr-
um sínum á gamlárskvöld
GAMLÁRSKVÖLD ER EINA KVÖLD ÁRSINS SEM ÖLL FJÖLSKYLDAN VAKIR FRAMEFTIR, KVEÐUR GAMLA ÁRIÐ OG BÝÐUR ÞAÐ NÝJA VELKOMIÐ.
NOKKRIR HRESSIR KRAKKAR Í 10. BEKK Í GARÐASKÓLA VORU SPURÐIR HVERT FERÐINNI VÆRI HEITIÐ Á GAMLÁRSKVÖLD.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Eru einhverjar hefðir innan fjölskyldunnar á
gamlárskvöld? Við erum oftast heima hjá
mér, ég og fjölskyldan, ömmur og afar, frænk-
ur og frændur. Yfirleitt er það alltaf sami hóp-
urinn og það er í raun engin hefð með matinn.
Ég og bróðir minn förum yfirleitt út að
sprengja saman áður en áramótaskaupið byrj-
ar. Við horfum síðan öll á áramótaskaupið og
förum síðan út að sprengja. Á miðnætti skál-
um við og fáum okkur ís eða ein-
hvern annan eftirrétt. Yfirleitt
horfum við samt alltaf á gaurinn
sem býr á móti okkur. Hann flyt-
ur held ég flugelda inn eða eitthvað
álíka og er alveg með fullan bílskúr af
rakettum og alls konar. Hann er með alveg
helling og við erum því bara með einkaflug-
eldasýningu þar. Við erum stundum með ná-
grönnum okkar eftir klukkan tólf.
Ferð þú út að hitta vinina eftir miðnætti?
Fjölskyldan hittir stundum nágrannana eftir
miðnætti, ég fer kannski frekar daginn eftir að
hitta vinina. Við erum bara öll með fjölskyld-
unni á gamlárskvöld.
Nágranninn með magnaða
flugeldasýningu
Eru einhverjar hefðir innan fjölskyldunnar á
gamlárskvöld? Jú, jú, ætli það ekki. Öll fjöl-
skyldan kemur heim til mín í Goðatúnið og við
borðum öll saman. Það er alltaf eitthvað mismun-
andi, en alltaf flottur kvöldverður. Mamma er
kokkur og breytir því alltaf til og kemur með eitt-
hvað nýtt á hverju ári. Eftir mat förum við öll
saman á brennuna, hittum þar alls konar fólk úr
Garðabænum og svo komum við heim. Þá horfum
við öll saman á áramótaskaupið og förum síðan út
að sprengja. Öll gatan hittist alltaf í botnlang-
anum og sprengir saman þar. Flestir þekkjast í
götunni svo það er mikil stemning. Þegar klukk-
an slær 12 fagna allir saman. Mamma fer síðan
oftast í eitthvert partí og vinkonur mínar koma
heim til mín og við spilum oftast.
Ferð þú að hitta vinina eftir miðnætti? Jú, jú.
Fjórar vinkonur mínar koma heim til mín eftir
miðnætti og við spilum saman og það er bara
gaman hjá okkur. Það er ákveðin hefð hjá okkur
að við búum okkur alltaf til óáfengan mohito. Síð-
an klárum við að sprengja allt smádraslið, það fer
alltaf í taugarnar á foreldrunum að hafa eitthvert
andskotans smádrasl.
Flestir í götunni þekkjast
og allir fagna saman
Fjölskyldan Austan við Reynisvatn í Grafarholti er æðislegt útivistarsvæði sem nefnistSæmundarsel. Í Sæmundarseli er þrautabraut, eldstæði og fleira og snjallt
að taka með sér jafnvel heitt kakó og nesti. Upplagt að gera sér ferð þang-
að með fjölskylduna einn helgardag og njóta samverunnar.
Leynistaður í Grafarvogi
KLARA HJARTARDÓTTIR BJARKI RÚNAR SVERRISSON