Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 25
28.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Litið yfir hópinn í Gamlárshlaupi ÍR árið 2006.
Morgunblaðið/Kristinn
inu í stað gamla ÍR-heimilisins við
Túngötu. Búningahefðin er því
sjálfsprottin og tengist bara ára-
mótastuðinu. „Þeim sem mæta í
búningum hefur fjölgað ár frá ári
og nú er þetta orðinn ansi stór
hluti af hlaupinu þar sem heilu
hlaupahóparnir taka sig jafnvel
saman,“ segir Inga Dís og eins og
meðfylgjandi myndir bera með sér
setja skrautlega klæddir hlaupa-
hópar sannarlega svip sinn á
hlaupið.
„Núna ætlum við að koma til
móts við þessa þróun og vera með
verðlaun fyrir bestu búninga hóps,“
segir Inga Dís en síðustu ár hafa
aðeins verið veitt einstaklings-
verðlaun í búningaflokki.
Ennfremur er fjöldi verðlauna í
boði fyrir góðan árangur í ýmsum
aldursflokkum og til viðbótar fá um
hundrað heppnir hlauparar fjöl-
breytt útdráttarverðlaun.
Árið 2011 var síðan rás og enda-
markið fært úr Ráðhúsinu í Hörpu
og Sæbrautin hlaupin. „Við náum
allt annarri stemningu þarna,“ seg-
ir Inga Dís en Harpa rúmar hlaup-
arana vel. Í ár verður bryddað upp
á þeirri nýjung að bjóða upp á ljós-
myndatökur af hópum.
Súmóglímukappi
tók fram úr henni
Þó að margir séu búningaklæddir
verður líka komið til móts við þá
sem eru ekki aðeins að hlaupa sér
til yndis. „Við ætlum að vera með
hraðastjóra núna ef veður leyfir,“
segir hún.
Inga Dís byrjaði að hlaupa árið
2009. Hún hefur tvisvar sinnum
tekið þátt í gamlárshlaupinu, árin
2009 og 2010 og hefur eftir það
komið að skipulagningu hlaupsins.
Hún hefur þó ekki keppt í búningi.
„Ég er ennþá bitin af þeirri
reynslu þegar maður í búningi
súmóglímukappa tók fram úr mér.
Mér féllust hendur. Þetta var mitt
fyrsta tíu kílómetra hlaup og ég
eiginlega bugaðist þegar þessi
blaðra tók fram úr mér,“ segir hún
og hlær. „Ég jafnaði mig hins veg-
ar fljótt og var rígmontin það sem
eftir var dags og næstu daga að
hafa hlaupið þessa vegalengd.“
Gleðin er við völd hjá þessum hlaupahópi og stemningin áþreifanleg.
Sérstaklega skemmtilegir búningar í bæverskum anda.
Það eru ábyggilega margir sem eyða jólafríinu í bóklestur, bæði lestur jólabókanna
og rafbóka sem búið er að kaupa en hefur vantað tíma til að lesa. Betra er að lesa af
hefðbundinni bók á kvöldin heldur en iPad því ljósið sem tölvan gefur frá sér getur
haldið vöku fyrir fólki. Kindle með rafbleki en ekki baklýstum skjá gengur líka.
Bóklestur á kvöldin*Heimurinn er góðurstaður og þess virði aðfyrir hann sé barist.
Ernest Hemingway
Bretum finnst laun ekki eins
mikilvæg og að vinna með fólki
sem þeim líkar við, að því er
kemur fram í nýrri könnun um
hamingju á vinnustöðum sem
tók til 2.000 manns. Átta af
hverjum tíu Bretum myndu velja
starf sem þeir njóta fram yfir
hærri laun, að því er segir í
frétt á vef breska dagblaðsins
Independent.
Könnunin leiddi í ljós að
Bretum finnst ábyrgð og við-
urkenning í starfi, góður fé-
lagsskapur og stuttur ferðatími í
vinnunna mikilvægari en launin.
Þriðjungur þeirra, sem tóku þátt
í könnuninni, hefur hætt í vinnu,
þrátt fyrir góð laun og þá
vegna þess að þeim fannst mik-
ið stress ekki virði launanna.
Aðeins 15% óánægð í
vinnunni
Samkvæmt könnuninni eru flestir
Bretar hamingjusamir í starfi en
aðeins 15% aðspurðra voru
óánægð í vinnunni.
„Það er áhugavert hversu
mikið staða og viðurkenning
hefur að segja varðandi ánægju í
vinnu ásamt því að fólk hafi til-
finningu fyrir því að það geti
þróast í starfi og sé að vinna
að einhverju meira,“ segir Mark
Farrar, framkvæmdastjóri AAT,
sem lét gera könnunina.
Launin ekki úrslitaatriði
Þriðjungur þeirra, sem tóku þátt í könnuninni, hefur hætt í vinnu, þrátt fyrir
góð laun og þá vegna þess að þeim fannst mikið stress ekki virði launanna.
Getty Images
Ástæður til að halda starfinu:
* Ég á í góðu sambandi viðvinnufélagana.
* Ég hef gaman af starfinu.
* Gott samband við yfirmann.
* Annað starf býðst ekki.
* Ferðatíminn í vinnuna er viðráðanlegur.
* Launin.
* Ég á í góðu sambandi við við-skiptavinina.
* Mér finnst ég hafa tækifæri tilað þróast í starfi.
* Ég er góð(ur) í því sem éggeri.
* Stressið er ekki of mikið.
VINNUFÉLAGAR, VIÐ-
URKENNING Í STARFI OG
ÞÆGILEGUR FERÐATÍMI
HAFA MEIRA AÐ SEGJA UM
STARFSÁNÆGJU EN LAUN.
Kalk er mikilvægt næringarefni í líkamanum.
Það er ómissandi til að viðhalda sterkum
• Beinum
• Tönnum
• Vöðvum
• Taugaviðbrögðum
• Blóðstorknun
Lífræn jurtablanda sem auðveldar
og eykur upptöku kalks.
Nýtist líkamanum vel.
Nánari upplýsingar á
www.heilsa.is
Fæst í heilsuvöruverslunum
og apótekum
Fljótandi kalk
frá Salus
Inniheldur ásamt öðru þykkni
úr gulrótum, rósaber og mangó.