Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 53
28.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Morgunblaðið/Einar Falur
„Ég er nú ekkert montinn af
því að vera Íslendingur nema
þegar eldgos hefjast, þá minn-
ir fólk mig á að ég sé íslensk-
ur,“ sagði listamaðurinn
Erró í viðtali 14. septem-
ber. Stærsta yfirlitssýning
sem sett hefur verið upp
á verkum hans var opnuð
í samtímalistasafninu í
Lyon í ár.
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/
Eggert
Morgunblaðið/Golli
„Lengi vel var maður að burðast með að nota þær
kolröngu aðferðir sem maður lærði sem barn í
Laugarnesinu við að reyna að leysa aðstæður sem
komu upp á fullorðinsárum. Ég sá fljótlega að það
gekk ekki upp og þannig er ég alltaf að læra að gera
betur. Það verkefni er ævilangt eins og hjá öllum
sem alast upp við svona aðstæður,“ sagði Þor-
steinn J. Vilhjálmsson fjölmiðlamaður 21.
september í viðtali um líf og störf og hvernig
var að alast upp við alkóhólískar aðstæður.
Morgunblaðið/Rósa Braga
„Við Íslendingar erum fallnir úr úrvalsdeild í
krabbameinslækningum, þar sem við höfum
verið áratugum saman. Það get ég fullyrt. Ég
fylgist mjög vel með á Norðurlöndunum og í
Bandaríkjunum og eins og staðan er orðin
stöndum við þeim heilbrigðiskerfum ekki leng-
ur á sporði. Og hvað gerir lið sem fellur úr úr-
valsdeild? Annaðhvort gefst það upp og við-
urkennir að það hafi hvorki aðstöðuna né
þekkinguna lengur eða spyr hvað það geti gert
til að komast aftur upp í úrvalsdeild,“ sagði
Helgi Sigurðsson, yfirlæknir í krabba-
meinslækningum, 28. september.
Morgunblaðið/Einar Falur
„Stundum fæ ég þessa skrýtnu tilfinn-
ingu, að ég verði að útbreiða orðið –
ég vona að ég sé ekki trúboði í eðli
mínu!“ sagði rithöfundurinn
Gyrðir Elíasson 9. nóvember.
Morgunblaðið/Eggert
„Ég vorkenndi foreldrum mínum ekki að missa mig, ég
var að gera þeim greiða því ég vorkenndi mínum nán-
ustu fyrir að eiga svona ömurlegt barn, systur og vin-
konu. Það er algengur misskilningur að fólk sem sviptir
sig lífi geri það af eigingjörnum hvötum; eins furðulega
og það hljómar er það að hugsa um aðra,“ sagði Silja
Björk Björnsdóttir, 22 ára, 9. nóvember. Silja
hefur í sjálfboðaliðastarfi frætt ungmenni um
þunglyndi og sagt frá eigin tilraun til sjálfsvígs.
Morgunblaðið/Kristinn
„Við erum orðnir svo gamlir og þroskaðir, að þótt það séu
einhverjir vina minna þeirrar skoðunar að ég eigi ekki að gefa
þessa bók út og ég eigi ekki að segja frá þessu máli, þá hefur
það engin áhrif á vináttu sem staðið hefur nánast alla ævi,“
sagði Styrmir Gunnarsson í viðtali 16. nóvember. Ný
bók eftir Styrmi, Í köldu stríði, hefur vakið miklar
umræður en Styrmir upplýsir í bókinni að hann hafi
skrifað skýrslur um sósíalista og kommúnista á ár-
unum 1961-1968.
„Við vorum samningsbundnir og
máttum því ekki gefa neitt út.
Með tímanum verður maður
leiður á að vera alltaf að spila
sömu lögin. Það er ekki hægt að
gera hlé á sköpunargáfunni, hún
gæti þess vegna verið horfin á
morgun og því þarf að njóta
hennar á meðan hún er til stað-
ar,“ sagði tónlistarmaðurinn
Jón Jónsson 14. desember
um það af hverju hann rifti
samningi sínum við Sony.
„Ekki misskilja mig. Ég ber fulla virðingu
fyrir því en það eru hipparnir. Mín kyn-
slóð og fólk sem er yngra en ég upplifir
þessa náttúrutengingu með allt öðrum
hætti. Hjá okkur er tæknin komin inn af
fullum þunga. Ég meina, það er búið að
finna upp Hubblekíkinn. Það er ákveðin
smekkvísi í því. Fattarðu?“ sagði Björk
Guðmundsdóttir 7. september,
um leikstjórn Peters Stricklands á
heimildarmyndinni Biophilia Live.
Hún fagnaði því að leikstjórinn
nálgaðist verkefnið ekki á for-
sendum hippakynslóðarinnar.
„Fólk kemur og vill búa hérna og finnst
þetta fallegur staður og gaman að vera í
sveit en gallinn við þetta er að svo þolir
fólk ekki að það sé sveitalykt í kringum
það. Við höfum lent í rosalega leiðin-
legum útistöðum við fólk sem flytur
hingað. Það er ekki rósailmur af dýrum
og ekki hægt að búast við því ef þú býrð
við hliðina á bóndabæ. Fólk er jafnvel að
taka mynd af skítadreifaranum og senda
mynd til heilbrigðiseftirlitsins,“ sagði
Guðrún Helga Skowronski, söðla-
smiður og bóndi á Dalsbúi í Mos-
fellsdal, í viðtali 28. september.