Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 58
BÓK VIKUNNAR Í lok dags er að-
gengileg vinnubók sem auðveldar fólki
að gera upp daginn og bæta sig.
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.12. 2014
BÓKSALA 15.-21.DESEMBER
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 DNAYrsa Sigurðardóttir
3 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
4 Saga þeirra, sagan mínHelga Guðrún Johnson
5 Sveitin í sálinniEggert Þór Bernharðsson
6 Þín eigin þjóðsagaÆvar Þór Benediktsson
7 Útkall : ÖrlagaskotiðÓttar Sveinsson
8 LjónatemjarinnCamilla Läckberg
9 NáðarstundHannah Kent
10 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason
Uppsafnaður listi frá
áramótum
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 DNAYrsa Sigurðardóttir
3 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
4 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason
5 Útkall : ÖrlagaskotiðÓttar Sveinsson
6 Vísindabók Villa 2Vilhelm Anton Jónsson
7 Saga þeirra, sagan mínHelga Guðrún Johnson
8 Þín eigin þjóðsagaÆvar Þór Benediktsson
9 NáðarstundHannah Kent
10 Sveitin í sálinniEggert Þór Bernharðsson
BESTU ÍSLENSKU BÆKURNAR
Jólin hans Ófeigs
ÝMISLEGT BITASTÆTT KOM ÚT FYRIR JÓLIN. ÓFEIGUR SIGURÐSSON STAL ÓVÆNT SENUNNI MEÐ SKÁLD-
SÖGUNNI ÖRÆFI SEM VARÐ METSÖLUBÓK. NOKKUÐ SEM ENGINN HAFÐI REIKNAÐ MEÐ.
Ófeigur Sigurðsson er hin
óvænta stjarna þessa jóla-
bókaflóðs. Þeir sem hafa lesið
bækur hans vita vel af hæfi-
leikum hans, en hann hefur
aldrei áður nýtt þá jafn vel og í
hinni frumlegu og óvenjulegu
skáldsögu sinni Öræfum. Bók
sem erfitt er að lýsa en svo afar
auðvelt að njóta.
Skáldsaga
ársins
Lífríki Íslands er ein af glæsi-
legustu og fallegustu bókum
ársins. Snorri Baldursson fjallar
þar á ítarlegan hátt um náttúr-
una og vistkerfi lands og sjávar.
Bók sem er tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna og
bókin sem bóksalar völdu
fræðibók ársins.
Glæsilegt og
fallegt verk
Gerður Kristný sendir frá
sér magnaðan ljóðabálk,
Drápu, sem fjallar um dráp.
Gerður yrkir meitlaðan texta
og dregur upp sterkar myndir
sem fanga lesandann. Bók sem
hefði sannarlega átt að tilnefna
til Íslensku bókmenntaverð-
launanna.
Ljóðabók
ársins
Í hinni kraftmiklu skáldsögu
Kötu fjallar Steinars Bragi um
kynferðisofbeldi gegn konum
og dregur hvergi af sér og
margt í bókinni er beinlínis slá-
andi. Höfundar vísar í samtíma-
atburði og nafngreinir jafnvel
fólk. Bók sem líklegt er að
skiptar skoðanir séu um.
Kraftmikil
skáldsaga
Unglingaskáldsagan Hafnfirð-
ingabrandarinn er afar fjörlega
skrifuð, skemmtileg og fyndin og
aðalpersónan er minnisstæð. Höf-
undurinn skrifar um ýmis alvarleg
efni en predikunar verður ekki
vart. Sérlega vel heppnuð ung-
lingabók sem hefur slegið í gegn
og er tilnefnd til verðlauna.
Sérlega góð
unglingabók
Táningasaga Sigurðar Páls-
sonar er einstaklega skemmti-
leg, fyndin og falleg bók um
unglingsár höfundar. Bókin er
einkar vel skrifuð, sneisafull af
eftirminnilegum atvikum og
höfundur lýsir samferðamönn-
um sínum á lifandi hátt. Bók
sem hefur þegar heillað marga
og örugglega ein af bestu bók-
um Sigurðar.
Fyndin og
falleg bók
Orð að sönnu eftir Jón G. Frið-
jónsson er vegleg bók sem geymir
stærsta safn íslenskra málshátta
sem út hefur komið. Fjallað er um
12.500 málshætti, allt frá elstu
heimildum til nútímans. Ein af þess-
um bókum sem fólk verður að eiga.
Vegleg bók um
málshætti Skáldsaga Guðrúnar Evu
Mínervudóttur er lágstemmd,
vel skrifuð og falleg saga um
unglingsstúlku sem ákveður að
lifa samkvæmt kenningum
Krists og kemur þar með um-
hverfi sínu í uppnám. Persón-
urnar eru sérlega vel dregnar.
Verk sem vekur til umhugsunar.
Falleg og lág-
stemmd saga
Í bókinni Náttúra ljóðsins
fjallar Sveinn Yngvi Egilsson
prófessor um náttúrusýn og
umhverfisvitund í íslenskri
ljóðagerð frá 19. öld og til nú-
tímans. Þetta er fallega skrifuð
bók og innihaldsrík þar sem
sýnt er glöggt fram á að róm-
antíkin lifir enn góðu lífi í ís-
lenskri ljóðagerð og í við-
horfum okkar til náttúrunnar.
Rómantíkin í
ljóðunum
Gyrðir Elíasson sýnir alla sína
miklu snilli í Koparakri sem er ein
af bestu bókum hans á ferlinum.
Gyrðir býr yfir einstakri stílsnilld,
hefur ríkt ímyndunarafl og er
einkar lagið að skapa stemningar
sem fanga lesandann. Það er hrein
unun að lesa þessa frábæru bók.
Meistaralegur
Gyrðir