Fréttablaðið - 08.08.2015, Page 96
8. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 40
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur
nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða, búa til úr þeim skutlur og skutla þeim í net sem eru í öllum söfnum Borgarbóka-
safns. Vikulega er einn þátttakenda útnefndur Lestrarhestur vikunnar og sá eða sú hlýtur bók að launum frá Forlaginu.
Pála Ölvisdóttir 11 áraLestrarhestur vikunnar
Einn úr hópnum er valinn til að
„ver’ann“. Þátttakendur dreifa sér
og sá sem er „er’ann“ kallar „byrja“.
Þá hlaupa allir af stað, hann reynir
að ná einhverjum og segir „frosinn“.
Sá sem náð var stendur þá alveg
kyrr með fætur í sundur en ein-
hver af hinum þátttakend-
unum þarf að skríða
milli fóta hans og
frelsa hann þannig.
Þá getur hann hald-
ið áfram í leiknum
sem lýkur þegar
allir eru frosn-
ir.
Frost
Sigurrós Ásta kveðst hafa ákveðið að taka þátt í
söngkeppni barnanna á Þjóðhátíð og valið lagið Í
réttu ljósi, sem er úr Ávaxtakörfunni. „Ég æfði lagið
fimm sinnum á dag vikuna fyrir þjóðhátíð,“ segir
hún og er ánægð yfir að hafa unnið.
Hún kveðst ekki hafa sungið opinberlega áður nema
á litlum tónleikum í söngskólanum sínum, Söngskóla
Maríu Bjarkar, en segist ekkert hafa verið stressuð
þegar hún fór upp á sviðið í Herjólfsdal. „Ég er ekk-
ert feimin,“ útskýrir Sigur rós Ásta sem syngur mikið
dags daglega. „Ég syng mjög mikið því mér finnst
það svo skemmtilegt og gaman að læra ný lög.“
En fer hún oft til Eyja? „Nei, ekkert oft en ég er
mikið þar á sumrin. Ég fór þrisvar þangað í sumar og
ég fer alltaf á Þjóðhátíð.“
En hvernig finnst henni að ferðast í skipi? „Það er
mjög gaman að vera uppi í glugga að horfa út á sjó
og svo fæ ég oft ís í skipinu.“
Gaman að læra ný lög
Hún Sigurrós Ásta Þórisdóttir, fi mm ára, sló í gegn á Þjóðhátíðinni í Eyjum þegar
hún steig á svið rétt áður en brekkusöngurinn hófst og söng lagið Í réttu ljósi.
Áður hafði hún borið sigur úr býtum í söngkeppni yngri barnanna í dalnum.
Útileikur
SÖNGKONAN UNGA „Ég æfði lagið fimm sinnum á dag vikuna fyrir þjóðhátíð,“ segir Ásta Sigurrós. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Á SVIÐINU Ásta Sigurrós var öryggið uppmálað þegar hún
flutti lagið fyrir þúsundir hátíðargesta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hvað er skemmtilegast við bækur? Þegar maður
les þá gerist eitthvað skemmtilegt sem gerist ekki í
alvörunni.
Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Ég
las Afbrigði. Hún er um stelpu sem heitir Tris og býr
í heimi sem skipt er í fylki eftir persónuleika. Hún
er í hugrekkisfylkinu en hún er Afbrigði en þá getur
maður verið í fleiri en einu fylki.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi
hjá þér? Fjóla á ferð í rigningu hét hún og var um
mús sem fór út að taka myndir. Hún fann orm, risa-
stóran poll, steina og laufblað sem hún tók myndir af.
Hvers lags bækur þykir þér skemmtilegastar?
Ævintýrasögur.
Í hvaða skóla ert þú? Austurbæjarskóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Já, oft.
Bragi Halldórsson
160
„Hvað skyldi þetta nú vera,“ sagði Konráð og tók upp pappírsblað með
tölustöfum og undarlegum táknum sem hann sá liggja á jörðinni.
„Mér sýnist þetta vera stærðfræðiþraut,“ sagði Lísaloppa. „En þessi þarna
þessi þrjú tákn standa, svo þessi fjögur dæmi gangi upp,“ bætti hún við.
svo dæmin gangi upp?
Umsóknarfrestur 1. september
Æskulýðs-
sjóður
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
A
E
-3
B
7
0
1
5
A
E
-3
A
3
4
1
5
A
E
-3
8
F
8
1
5
A
E
-3
7
B
C
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K