Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.08.2015, Qupperneq 118

Fréttablaðið - 08.08.2015, Qupperneq 118
8. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 62SPORT FÓTBOLTI Þetta er ekki fyrsta sumarið sem Atli Viðar Björnsson situr þolin- móður á bekknum á meðan Heimir Guð- jónsson, þjálfari FH-liðsins, leitar að öðrum kostum í framlínu FH-liðsins. Heimir á hins vegar alltaf ásinn uppi í erminni og enn á ný ætlar reyndasti framherji deildarinnar að grípa tæki- færið þegar það loksins gefst. Atli Viðar Björnsson komst í hundrað marka klúbbinn í byrjun sumars en hefur síðan fengið fá tækifæri, allt of fá að mati flestra. Mörk hans í tveimur síðustu leikjum hafa hins vegar spilað stórt hlutverk í að koma FH-vélinni aftur í gang í baráttunni um að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn í Krikann. Fyrir þessa tvo sigurleiki í röð hafði FH aðeins unnið einn af fjórum leikjum frá því um miðjan júní. Atli Viðar skoraði sigurmarkið á móti Keflavík eftir að hafa komið inn á sem varamaður níu mínútum áður og mark- ið hans í uppbótartíma fyrri hálfleiks á móti Val á miðvikudagskvöldið var eins klassískt Atla Viðars mark og þau ger- ast. Þar er reyndar af nógu að taka enda kappinn kominn með 102 mörk fyrir FH í efstu deild. Fréttablaðið skoðaði markaskor og mínútur spilaðar hjá þeim tuttugu leik- mönnum Pepsi-deildar karla sem hafa skorað fjögur mörk eða fleiri í fyrstu fjórtán umferðum sumarsins með það markmið að finna hvaða markaskorarar nýta spilatíma sinn best. Það kemur kannski ekki mörgum á óvart að það skuli einmitt vera Atli Viðar Björnsson sem er efstur á þessum lista. Hann er rétt á undan Fjölnismanninum Mark Charles Magee sem skoraði sigur- mark Fjölnis á móti KR í fyrrakvöld. Báðir voru þeir Atli Viðar og Magee að skora í öðrum leiknum í röð en Mark Charles Magee hefur komið inn á sem varamaður í báðum leikjum sínum. Mark Charles Magee hefur eins og Atli Viðar fengið fá tækifæri en hefur lagt það í vana sinn í sumar að nýta sér það vel þegar Ágúst Þór Gylfason, þjálf- ari Fjölnis, veðjar á hann. Frammistaðan á móti Stjörnunni í Garðabænum í byrj- un júní, þar sem hann skoraði tvö góð mörk, breytti að því er virðist litlu um það. Magee hefur aðeins byrjað inn á í tveimur Pepsi-deildarleikjum síðan þá. Hann var ekki í byrjunarliðinu á móti KR þó að Fjölnir væri án Þóris Guðjóns- sonar en beið klár á bekknum og skor- aði síðan mark sem hjálpaði ekki aðeins Fjölni að komast upp töfluna heldur gæti einnig haft miklar afleiðingar fyrir tit- ildrauma KR-liðsins. FH á tvo af þremur hæstu á þessum lista því Kristján Flóki Finnbogason er í þriðja sæti og þar með á undan Vals- manninum Patrick Pedersen, marka- hæsta leikmanni deildarinnar. Þórir Guðjónsson er síðan í fimmta sætinu og Skagamaðurinn Garðar Gunnlaugsson er sjötti. - óój Minna en hundrað mínútur á milli marka hjá Atla Viðari Fréttablaðið skoðar hjá hvaða markaskorurum Pepsi-deildarinnar hefur liðið stystur tími á milli marka í fyrstu fj órtán umferðunum. MINNTI ENN Á NÝ Á SIG Atli Viðar Björnsson fagnar marki sínu á móti Val ásamt þeim Jonathan Hendrickx og Emil Pálssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ FÆSTAR MÍNÚTUR MILLI MARKA Í PEPSI-DEILDINNI MEÐAL LEIKMANNA MEÐ 4 MÖRK EÐA FLEIRI Í SUMAR 1. Atli Viðar Björnsson, FH 94,8 2. Mark Charles Magee, Fjölnir 101,8 3. Kristján Flóki Finnbogason, FH 135,3 4. Patrick Pedersen, Val 145,3 5. Þórir Guðjónsson, Fjölni 147,1 6. Garðar Gunnlaugsson, ÍA 160,3 7. Jeppe Hansen, Stjörnunni 166,8 8. Þorsteinn Már Ragnarsson, KR 169,8 9. Steven Lennon, FH 178,8 10. Jonathan Glenn, ÍBV/Breiðabl. 184,4 11. Höskuldur Gunnlaugsson, Breið. 199,0 12. Óskar Örn Hauksson, KR 215,0 13. Sören Frederiksen, KR 244,5 14. Arsenij Buinickij, ÍA 249,0 15. Albert Brynjar Ingason, Fylki 251,4 16. Arnþór Ari Atlason, Breiðabliki 253,0 17. Sigurður Egill Lárusson, Val 266,0 SPÁ FRÉTTABLAÐSINS SÆTI 1 TIL 2Í DAG ER FYRSTI LEIKDAGUR Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI 2015-2016 ENSKUR MEISTARI ARSENAL Arsenal-liðið hefur verið við toppinn síðustu ár en hefur ekki tekist að verið á meðal tveggja efstu í áratug. Nú er allt til alls hjá Arsene Wenger að koma sínum mönnum aftur á toppinn og vinna fyrsta meistaratitilinn frá 2004. 2. SÆTI CHELSEA Jose Mourinho gerði Chelsea að meisturum tvö ár í röð fyrir áratug en hann endurtekur ekki leikinn í ár. Chelsea er líklegt til að vera í aðalhlut- verki í titilbaráttunni en þarf á endanum að sjá á eftir titlinum til Wengers og nýju liðsfélaga Petr Cech. Arsenal hefur unnið titil tvö ár í röð og því yfir mörgu að gleðjast hjá stuðningsmönn- um félagsins en sá stóri hefur ekki unnist eftir að félagið yfirgaf Highbury 2006. Arsenal hefur verið í annaðhvort þriðja eða fjórða sæti undanfarin tíu tímabil en það hefur alltaf vantað aðeins upp á að liðið hefði burði í að keppa um enska titilinn. Chelsea vann enska meistaratitilinn með sannfærandi hætti á síðustu leiktíð en Jose Mourinho hafði ekki pláss fyrir tékkneska landsliðsmarkvörðinn Petr Cech. Petr Cech var búinn að vinna þrettán titla á ellefu árum með Chelsea og rússneski eigandinn Roman Abramovich var tilbúinn að leyfa honum að fara, meira að segja til erkifjendanna í Arsenal. Cech þakkaði Roman Abramovich fyrir en um leið varð verkefni Jose Mourinho að verja titilinn enn erfiðara. Sóknarleikur Arsenal hefur ávallt verið í hæsta gæðaflokki undanfarin ár en vandamálið hefur verið hinum megin á velli og ekki síst í markvarðarstöðunni. Koma Petr Cech er í raun svar við öllum bænum stuðningsmanna Arsenal sem sáu liðið sýna styrk á lokasprettinum í fyrra þar sem það vann meðal annars átta leiki í röð og tapaði aðeins einum af 18 deildar- og bikarleikjum frá miðjum febrúar. Fréttablaðið spáir Arsenal meistaratitl- inum og að Petr Cech sé síðasta púslið í meistaraverk Arsene Wenger. Það hefur tekið hann sinn tíma að byggja upp nýtt lið á Emirates og í vetur er hann með efni í fyrstu Eng- landsmeistara Arsenal í tólf ár. ➜ Verður Petr Cech munurinn á milli Arsenal og Chelsea í vor? KÖRFUBOLTI Íslenska karlalands- liðið í körfuknattleik vann frá- bæran sigur á Hollandi í fyrsta æfingarleik liðsins í undirbúning fyrir EM í Berlín í gær. Hollenska liðið átti fá svör gegn varnarleik íslenska liðsins og gekk sóknar- leikurinn vel fyrir sig. Haukur Helgi Pálsson var hæstánægður með spilamennsku liðsins í heild sinni og sérstaklega varnarleikinn. „Samskiptin okkar voru frábær. Þegar við vorum að tvöfalda var alltaf einhver að passa sending- arnar út. Við vorum að gera það sem hefur vantað; vera ákveðn- ari þegar við tvöföldum. Það sást í dag, þeir komust ekkert út úr þessu,“ sagði Haukur sem hrósaði flæðinu í sóknarleik liðsins. „Við munum ekki hitta úr öllum skotunum okkar en á meðan við fáum opin skot erum við hættu- legir,“ sagði Haukur en liðin mæt- ast á ný á sunnudaginn í Laugar- dalshöllinni. - kpt Hollendingar slegnir í rot ATKVÆÐAMESTUR Haukur lék manna best í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR HM Í KAZAN 2015 7. sæti í undanúrslitum 2:09.16 mínútur og 2:09.04 mínútur 2 Íslands- og Norðurlandamet. Keppir í úrslitasundinu í dag. HM Í BARCELONA 2013 17. sæti í undanrásum 2:12.32 mínútur ÓL Í LONDON 2012 20. sæti í undanrásum 2:11.31 mínútur EM Í DEBRECEN 2012 11. sæti í undanúrslitum 2:13.81 mínútur og 2:13.77 mínútur HM Í SJANGHÆ 2011 30. sæti í undanrásum 2:15.16 mínútur FRÁBÆR ÁRAN- GUR Eygló Ósk Gústafsdóttir er að standa sig vel á HM í Kazan. EYGLÓ ÓSK GÚSTAFSDÓTTIR Í 200 METRA BAKSUNDI Á STÓRMÓTUM SUND „Það er erfitt að lýsa þessu, ég er alveg í skýjunum og þetta hefur gengið mun betur en ég hefði þorað að vona. Ég gæti ekki beðið um neitt meira,“ sagði Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Ægi, þegar náð var á hana í Rússlandi í gær. Eygló setti í gær nýtt Íslands- og Norður- landamet í tvígang á Heimsmeistaramótinu í Kazan. Eygló synd- ir í úrslitasundi í 200 metra baksundi í 50 metra laug í dag. Verður það í fyrsta sinn sem hún keppir í úrslitum á Heimsmeist- aramótinu. Fylgir hún í fót- spor Hrafnhild- ar Lúthersdóttir sem varð á dög- unum fyrsta íslenska konan sem synti í úrslitum á HM. Þurfti að halda einbeitingunni Eygló hefur, líkt og liðsfélagar hennar, staðið sig gríðarlega vel í Rússlandi en Íslandsmet hafa fallið að því er virðist á hverjum degi. „Markmið mitt var að komast í úrslit og ég vissi að ég þyrfti líklegast að setja nýtt met til þess að keppa í úrslitunum,“ sagði Eygló sem keppti í sterk- um undanúrslitum en alls kom- ust fimm keppendur úr undan- úrslitariðli Eyglóar í úrslitin. „Maður keppir alltaf við sjálfan sig en vitandi af jafn góðum mótherjum gaf mér auk- inn kraft. Ég var örlítið stress- uð fyrir undanúrslitasundið enda var ég að keppa við konur sem ég hef fylgst með síðan ég var krakki en ég þurfti að vera einbeitt. Ég þurfti að koma því inn í hausinn á mér að til þess að verða betri yrði ég að synda hraðar en þær,“ sagði Eygló, sem tók undir að tilfinningin væri góð að koma í mark á betri tíma en æskufyrirmyndirnar. „Ég er enn að átta mig á því að ég hafi komið í mark á undan sumum af þessum konum, það er ótrúleg tilfinning.“ Hvatning fyrir ungt sundfólk Eygló sagði samheldnina hjá íslenska sundfólkinu frábæra á mótinu. Hefur árangur íslenska liðsins leitt til þess að keppi- nautar hafa lofsamað íslenska sundfólkið. „Við erum að stíga upp sem þjóð í þessari íþróttagrein og keppendur frá öðrum þjóð- um hafa tekið sér tíma til að óska okkur til hamingju með árangurinn á mótinu,“ sagði Eygló sem var stolt af því að tvær sundkonur hefðu synt til úrslita á Heimsmeistaramótinu í Kazan. „Þetta hvetur vonandi áfram ungt sundfólk á Íslandi. Þetta leiðir vonandi til þess að þau átta sig á því að þau geti synt til úrslita á jafn stóru móti í fram- tíðinni. Ef að við getum þetta þá geta aðrir þetta líka með réttu æfingunni og réttum áherslum,“ sagði Eygló sem syndir að lokum með boðsundssveit Íslands á sunnudaginn. kristinnpall@365.is Tvö Norðurlandamet á sama deginum Eygló Ósk Gústafsdóttir tryggði sér sæti í úrslitum í 200 metra baksundi á HM í sundi í Kazan í gær. Hún hefur þegar sett fj ögur Norðurlandamet í greininni á árinu 2015. 0 7 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :0 5 F B 1 2 8 s _ P 1 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 A E -1 8 E 0 1 5 A E -1 7 A 4 1 5 A E -1 6 6 8 1 5 A E -1 5 2 C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 1 2 8 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.