Fréttablaðið - 08.08.2015, Page 128

Fréttablaðið - 08.08.2015, Page 128
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja Förum lauslega yfir hvað er í boði fyrir forsetakosningarn- ar í Bandaríkjunum á næsta ári. Repúblikanar eru í rugli eins og oft áður. Ekki enn búnir að hrista af sér teboðsslenið og eru heldur ekki með Víetnamnagla eins og McCain í slagnum. Þeirra helstu kandídatar nú eru Jeb Bush og Donald Trump. Sá síðarnefndi er maður sem stærir sig af því að vera drulluhali og því óþarfi að fara fleiri orðum um hann. Um Jeb má helst segja að hann er matrósabubbinn sem var ríkisstjóri í Flórída þegar stóri bróðir, tvöfalda vaffið, mjakaði sér í Hvíta húsið með vafasömum atkvæðum sem komu upp úr kjörkössum einmitt í Flórída. Jeb myndi setjast notalega í stólinn. Hann virðist ekki jafn átakasækinn og W enda holdugri og sællegri og ef eitthvað er að marka orð Sesars þá eiga grannir menn ekki að vera leiðtogar því þeir eru of hungraðir. En það hlýtur að vera fullmikið af hinu góða að fá þriðja labbakútinn úr sömu fjölskyldunni í forsetastól- inn. Það er eitthvað svo óbandarískt. Minnir frekar á lönd sem skipta einræðistignum á milli frænda og systkina eins og boðhlaupskefli. SÖMU atriði fara um huga minn þegar Hillary, líklegasti frambjóð- andi demókrata, kemur til tals. Að vísu er hún „self-made“ að hætti Kana, ólst upp við hversdagsleg kjör og hefur þurft að vinna fyrir sínum sigrum. En hún er eiginkona fyrrverandi forseta og því yrði hún tengdari inn í embættið en nokkur forveri á stóli. Það þykir mér líka óbandarískt en síðan hvenær ætti Íslendingur að leggja Könum línurn- ar um hvað sé bandarískt? Hillary er líklega minn frambjóðandi enda styð ég byltingar og það er vissulega kvenréttindabylting ef kona sest í valdamesta embætti heims. EN Hillary hefur ekki unnið þetta enn þá. Varaforsetinn Joe Biden íhugar framboð. Hann gæti farið alla leið. Hann er 73 ára gamall en það kemur ekki að sök. Andlitið á honum er enn jafn líflegt og hesta- mót í Skagafirði. Hann hreinlega geislar, þessi maður. Þegar hann gengur inn í herbergi þurfa menn að setja upp logsuðugleraugu því and- litið á honum er eins og brennandi magnesíum. Veljið vel, Ameríka, og góða skemmtun við hin. Næsti forseti Bandaríkjanna Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA KINGS OF LEON Á FIMMTUDAGINN Í NÝJU HÖLLINNI #KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL MIÐASALA Á TIX.IS BAKÞANKAR Bergs Ebba 0 7 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :0 5 F B 1 2 8 s _ P 1 2 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 A D -E C 7 0 1 5 A D -E B 3 4 1 5 A D -E 9 F 8 1 5 A D -E 8 B C 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 1 2 8 s C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.