Fréttablaðið - 15.08.2015, Qupperneq 42
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur
og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
LISTAMAÐURINN Elli hefur alla tíð haft áhuga á kvikmyndagerð, hjólabrettum og
tónlist. Hann segir að þetta smelli allt mjög vel saman. MYND/ANTON
SHADES OF REYKJAVÍK Þeir eru flottir, félagarnir, sem nú hafa unnið skemmtilegt
myndband ásamt indversku prinsessunni Leoncie. MYND/ANTON
Leoncie. Hann á áritað plakat
frá henni og sýndi mér ýmislegt
stöff sem enginn annar á. Rútur
Skæringur er engum líkur, hann
er menntaður kvikmyndatöku-
maður, og er einstakur á allan
hátt. Hann safnar ótrúlegustu
hlutum og skilur til dæmis mjög
vel að Leoncie er með einstakan
stíl sem fáir aðrir átta sig á.
Honum fannst því mjög gaman
að vinna að þessu,“ segir Elli enn
fremur. Þegar hann er spurður
hvort hann sé þá sjálfur orðinn
aðdáandi Leoncie númer tvö
svarar hann því játandi. „Það er
ánægjulegt að myndbandið hafi
vakið svona mikla athygli. Von-
andi vekur það athygli á öðru
sem við höfum gert.“
BRETTASTRÁKUR
Hljómsveitin Shades of Reykja-
vík var með frumsýningarpartí
á Loftinu á miðvikudagskvöldið
þar sem myndbandið var sýnt.
„Það varð allt brjálað þegar víde-
óið fór í gang, góð mæting og
mikill stemmari í loftinu. Þetta
heppnaðist frábærlega. Með-
limir Shades eru, fyrir utan Ella,
Shaman Shawarma (Emil Andri
Emilsson), hann býr til sándið og
rappar, Prins Puffin (Arnar Guðni
Jónsson) rappari er æskuvinur
Ella og þeir hafa gert bretta-
myndir saman. Síðan er Her-
mann Bridde pródúser og Máni
Kjartansson sem flúrar fólk uppi
á sviði. „Við breyttum örlögum
hans, útveguðum tattúvél og
hvöttum hann til að flúra. Nú er
hann að fara að læra þetta fag og
ætlar alla leið.“
Elli er brettakappi og hefur
verið á hjólabretti frá unga
aldri. Hann keppir á hverju ári í
Norðurlandakeppni sem fram fer
í Kaupmannahöfn. „Ég stofnaði
Shades of Reykjavík fyrst sem
hjólabrettagrúppu. Við vorum
strákar á hjólabrettum sem
bjuggum til myndbönd. Ég valdi
stráka með mér sem hafa hæfi-
leika á sviði kvikmyndunar og
tónlistar. Við byrjuðum fljótlega
að búa til leikna sketsa. Ég er
alinn upp við teknó-tónlist og er
mjög hrifinn af henni en síðan
hefur rappið og hipphopp-tón-
listin bæst við.
AFINN VAR DJASSARI
Elli er sjálfmenntaður á sínu
sviði. Hann hefur unnið töluvert
við kvikmyndagerð, til dæmis
hjá RÚV og Pegasus. Hann gerði
sína fyrstu brettamynd sumarið
áður en hann fór í áttunda bekk.
„Þetta byrjaði með myndbands-
vél sem ég fékk í fermingargjöf,“
segir hann. Fyrsta brettamyndin
tókst svo vel að hann framleiddi
strax þrjár í viðbót sem voru vin-
sælar á sínum tíma. „Hjólabretti
og tónlist fara einstaklega vel
saman og sameinast í götulist,“
segir Elli.
Þegar hann er spurður um
tónlist í fjölskyldunni kemur í
ljós að djassleikarinn Viðar Al-
freðsson, sem var skólastjóri
tónlistarskólans á Mývatni, var
afi hans. „Hann var þekktur fyrir
að vera orkumikill á sviðinu, rétt
eins og ég.“
Elli segist í eðli sínu vera mjög
rólegur þrátt fyrir líflega sviðs-
framkomu. „Ég hef hins vegar
alltaf sankað að mér ofvirkum
vinum sem hafa góð áhrif á mig.“
GENGINN ÚT
Sambýliskona Ella er Karen
Elva Lundberg en þau eiga átta
mánaða gamlan son, Annel
Elvis Lundberg. „Við vildum
hafa nafn sem gæti gengið í
Skandinavíu. Ég hef oft dvalið í
Kaupmannahöfn í lengri tíma til
að stunda bretti og gert mynd-
band þar. Fólk getur fundið það
undir Shade of Reykjavík cph
2013.“
Strákarnir í Shades of Reykja-
vík eru nýbúnir að smíða stúdíó
þar sem þeir vinna allt sjálfir. „Ný
plata er í vinnslu og margt fleira
spennandi í gangi hjá okkur. Við
erum alltaf að búa til músík og
fleiri tónlistarmyndbönd eru á
leiðinni,“ segir Elli. Þeir munu
koma fram á Iceland Airwaves.
„Við seljum fatnað undir okkar
merkjum til að fjármagna nýju
plötuna og svo getur fólk séð
hvað fleira er að gerast hjá okkur
á Facebook-síðunni minni – Elli
Grill.“
Þegar Elli er spurður hvort
hann eigi eftir að koma fram með
Leoncie, svarar hann því játandi.
„Það á eftir að koma á óvart
fljótlega en ég get ekki sagt frá
því strax.“
SILFURTENNUR FRÁ TEXAS
Shades of Reykjavík er með þrjú
tónlistarmyndbönd á Youtube
sem hafa fengið meira en sjötíu
þúsund áhorf. „Ég hef fulla trú á
að við séum að slá í gegn,“ segir
Elli og bætir við að fólk víða um
heim horfi á myndböndin. Eitt
vinsælt vídeó er til dæmis Górillu
Grill sem vakti mikla athygli.
Það hefur sömuleiðis vakið at-
hygli að Elli er með silfurtennur.
Hann hefur mjög gaman af litrík-
um búningum og hefur sinn eigin
stíl. Nafnið Grill tengist þessum
silfruðu tönnum. „Gulltennur
kallast grillz á ensku svo ég pant-
aði mér gull- og silfurtennur frá
Texas í Bandaríkjunum. Ég sendi
mót út og fékk góma til baka.
Þetta eru eins og sogskálar sem
festast við tennurnar sem síðan
er hægt að taka út,“ útskýrir
hann. Elli Grill er sem sagt ekki
alltaf með silfraðar tennur. „Við
pælum mikið í búningum, fötum
og öllum fylgihlutum. Einnig í
húsgögnum og umhverfi,“ segir
hann. „Við höfum mikinn metnað
fyrir því sem við erum að gera
og ætlum að halda því áfram,“
segir þessi litríki og skemmtilegi
listamaður.
Þess má geta að Shades of
Reykjavík er með útvarpsþátt á
föstudagskvöldum kl. 21-23 á FM
Extra á 101,5. ■ elin@365.is
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
2
K
_
n
y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
C
8
-C
A
6
0
1
5
C
8
-C
9
2
4
1
5
C
8
-C
7
E
8
1
5
C
8
-C
6
A
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K